Dagsetning:
09/17/2009 (All day)
1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar og staða verkefna
Fundurinn hófst kl. 9 með ritningarlestri og bæn sem biskup leiddi.
Mætt voru auk biskups, Karls Sigurbjörnssonar, kirkjuráðsmennirnir, sr. Halldór Gunnarsson, Jóhann E. Björnsson, sr. Kristján Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir.
Fundinn sátu og Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð.
Þá sátu og fundinn á meðan málefni kirkjuþings voru til umræðu, Pétur Kr. Hafstein, forseti Kirkjuþings.
Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri gegnir starfi framkvæmdastjóra Kirkjuráðs á meðan Guðmundur Þór Guðmundsson er í ársnámsleyfi. Ragnhildur hefur þar með heimild til að undirrita öll skjöl og gögn fyrir hönd kirkjuráðs. Þetta tók gildi 1. sept.
Fundargerð síðasta fundar var samþykkt.
Biskup greindi frá því að Þórunn Hafstein ráðuneytisstjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu hefði mætt á fund á Biskupsstofu til að ræða um niðurskurð og hagræðingakröfur hjá Þjóðkirkjunni. Biskup hefur rætt við dóms- og kirkjumálaráðherra um fund kirkjuráðs með þremur ráðherrum en ráðherra taldi slíkan fund ekki tímabæran.
Biskup sendi ráðherra minnisblað þar sem gerð er grein fyrir þeim skerðingum sem kirkjan hefur mætt og vænta má og vísað til kirkjujarðasamkomulagsins. Er óskað eftir því að gerður verði formlegur samningur milli ríkisins og þjóðkirkjunnar um tímabundnar breytingar á kirkjujarðasamkomulaginu 10. janúar 1997. Til þess samnings verður síðan að vísa í lagaákvæði, sem breytir tímabundið framkvæmd 60. gr. laga nr. 78/1997 um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. Með sama hætti þyrfti að setja ákvæði til bráðabirgða í frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga en halda hins vegar óbreyttri 47. gr. þess, sem er efnislega samhljóða 60. gr. núgildandi laga. Samningurinn þarf að hafa í sér fólginn fyrirvara um samþykki kirkjuþings.
Sr. Halldór Gunnarsson og Sigríður Dögg Geirsdóttir fjármálastjóri greindu frá fundi 16. september með Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, og fulltrúum úr fjármálaráðuneytinu. Rætt var um tímabundna skerðingu sóknargjalda og niðurskurð hjá þjóðkirkjunni. Þar sem ekki er hægt að taka upp samkomulag ríkis og kirkju varðandi niðurskurð hjá þjóðkirkjunni var rætt um að gert þyrfti skriflegt samkomulag um niðurskurð sem yrði þá viðauki við kirkjujarðasamkomulagið. Stefnt væri því að skipun viðræðunefndar um málið með fulltrúum aðilanna.
Ýmis önnur mál voru rætt sem eru í vinnslu og til umfjöllunar. M.a. var lagt fram yfirlit um forathugun á þinglýsingum kirkna til kynningar.
Varðandi embættin í Lundúnum og Kaupmannahöfn þá upplýsi biskup að hann hafi greint viðkomandi prestunum frá því að embættin verði að öllum líkindum lögð niður þar sem sértekjur myndu falla niður um áramót í Kaupmannahöfn en 1. mars 2010 í Lundúnum. Hjá Sjúkratryggingum Íslands hefur verið ákveðið að færa líffæraflutninga frá Kaupmannahöfn til Gautaborgar og var sú ákvörðun tilkynnt Biskupsstofu í júlí sl. Fram kom einnig hjá biskupi að hann hefur rætt við sendiherrann í Kaupmannahöfn um framtíð prestsembættisins þar. Rita þarf Sjúkratryggingum bréf þar sem leitað verði eftir því að samið verði við prestinn í Gautaborg um þjónustu við sjúklinga, sem hann er þegar farinn að sinna.
2. Kirkjuþing 2009
a) Málaskrá Kirkjuþings 2009
- 1. mál. Skýrsla kirkjuráðs
Málið er í vinnslu.
- 2. mál. Fjármál þjóðkirkjunnar
Málið er í vinnslu.
-3. mál. Starfsreglur um breyting á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði.
Málið var lagt fram af biskupafundi. Ákveðið var að senda biskupafundi tillögur um breytingar.
- 4 mál. Þingsályktun um Samþykktir um innri málefni þjóðkirkjunnar.
Samþykkt var að senda málið út til kirkjuþingsfulltrúa. Leitað verður til dóms- og kirkjumálaráðherra um lagahreinsun í kjölfar samþykktar kirkjuþings, þ.e. fella þarf niður ýmis lagaákvæði og tilskipanir eins og getið er um í greinargerðinni.
- 5. mál. Tillaga til þingsályktunar um heildarskipan þjónustu kirkjunnar.
Málið er enn í vinnslu hjá nefndinni en stefnt er að því að ljúka störfum fyrir næsta fund kirkjuráðs í byrjun október. Samþykkt var að verða við ósk nefndarinnar og leita heimildar hjá forsætisnefnd um að tillagan fari ekki út fyrr en að loknum fundi kirkjuráðs í byrjun október.
- 6. mál. Tillaga að starfsreglum um þingsköp kirkjuþings.
Tillagan er tilbúin og samþykkt var að senda hana út til kirkjuþingsfulltrúa.
- 7. mál. Tillaga að starfsreglum um fasteignir.
Ræddar voru tillögur lagahóps kirkjuráðs. Nokkrar breytingar voru gerðar á tillögunum sem voru samþykktar til útsendingar til kirkjuþingsfulltrúa.
- 8. mál. Tillaga til þingsályktunar um kaup og sölu fasteigna.
Málið er í vinnslu.
- 9. mál. Tillaga til þingsályktunar um umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar.
Lögð var fram tillaga starfshóps um málið. Tillögunni var vísað til biskups til athugunar og verður til umfjöllunar að nýju á næsta fundi kirkjuráðs.
- 10. mál. Tillaga til þingsályktunar um fræðsluáætlun fyrir börn og unglinga.
Samþykkt var að fræðsluáætlunin verði lögð fram sem áfangaskýrsla með skýrslu kirkjuráðs.
- 11. mál. Tillaga til þingsályktunar um fimm ára áætlun prestsembætta.
Í athugun er að áætlunin verði fylgiskjal með 3. máli.
- 12. mál. Tillaga um starfsreglum um kirkjuþing unga fólksins.
Lögð var fram fundargerð kirkjustarfshóps kirkjuráðs en starfshópurinn hafði rætt um þessa tillögu svo og um hvort rétt væri að stofna nefnd um æskulýðsmál. Kirkjuráð samþykkti tillögurnar að starfsreglum um kirkjuþing unga fólksins.
Undir þessum lið var einnig rædd samþykkt kirkjuþings 2008 í 10. máli um það hvort stofnun æskulýðsnefndar þjóðkirkjunnar geti orðið skipulagi og æskulýðsstarfi til framdráttar. Kirkjuráð samþykkti að ekki væri þörf á að stofna sérstaka nefnd um æskulýðsmál, enda hefur fræðslusvið biskupsstofu það verkefni með höndum, eins og m.a. er fjallað um í fræðslustefnu þjóðkirkjunnar.
- 13. mál. Tillaga að starfsreglum um rekstrarkostnað prestsembætta og vegna prófastsstarfa.
Gerðar voru nokkrar breytingar á tillögunum og síðan samþykkt að senda málið til kirkjuþingsfulltrúa.
- 14. mál. Tillaga að starfsreglum um Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Tillagan var samþykkt með ákvæði til bráðabirgða um frestun á ráðningu prests sem forstöðumanns við stofnunina.
- 15. mál Tillaga til þingsályktunar um breyting á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði.
Málið fjallar um fækkun prófastsdæma, breyting á prestakallaskipan og breyting á skipan prestssetra. Ákveðið var að sameina það 5. máli.
- 16. mál. Tillaga að starfsreglum um kjör til kirkjuþings.
Samþykkt var að senda tillöguna til kirkjuþingsfulltrúa.
- 17. mál. Tillaga til þingsályktunar um jafnréttisstefnu þjóðkirkjunnar.
Jafnréttisnefnd hefur lagt fram drög að jafnréttisstefnu. Samþykkt var að fela kirkjustarfshópi að fara yfir drögin.
b) Siðareglur vígðra þjóna og annars starfsfólks kirkjunnar
Biskup lagði siðareglurnar fram til kynningar. Stefnt er að því að leggja siðareglurnar fyrir kirkjuþing til samþykktar.
c) Hjálparstarf kirkjunnar, kynning á kirkjuþingi 2009
Á kirkjuþingi 2008 var samþykkt að eitt mál í starfi kirkjunnar yrði tekið til sérstakrar kynningar á kirkjuþingi ár hvert og að Hjálparstarf kirkjunnar yrði til umfjöllunar á kirkjuþingi 2009.
Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri og Bjarni Gíslason, fræðslufulltrúi, mættu á fundinn, til að ræða hvernig staðið yrði að kynningunni. Forseti kirkjuþings hefur rætt við Jónas um útfærsluna. Bæði yrði um kynningu á starfseminni að ræða en einnig um framtíðarsýn. Hjálparstarfið hefur markvisst unnið eftir fimm ára áætlun og er eitt ár eftir af þeirri stefnuáætlun. Unnið er að úttekt á þessari áætlun og mun hún liggja fyrir á kirkjuþingi. Talið var eðlilegt að lögð yrði fram ályktun á kirkjuþingi sem sýndi vilja kirkjuþings á starfseminni og áherslur í starfinu á næstu árum hjá Hjálparstarfi kirkjunnar.
Þá var rætt um helstu verkefni sem Hjálparstarfið vinnur að þessa dagana, en neyðaraðstoð og innanlandsaðstoð og einkum matarúthlutun hafa vaxið mikið vegna efnahagsástandsins í landinu. Í sumar og haust var ákveðið að greiða skólagjöld fyrir nema í framhaldsskóla þar sem fjárhagur fjölskyldna hindrar að unglingurinn geti stundað nám. Samstarf við presta er ómetanlegt í þessum efnum, en þjónusta Hjálparstarfsins nær yfir allt land. Fjárframlag hafa borist víða að frá samtökum félögum og einstaklingum. Hjálparstarfið hefur ekki getað sinnt erlendri aðstoð sem skyldi þar sem miklir fjármunir hafa farið í aðstoð innanlands.
Í þessu sambandi greindi biskup frá ósk félagsmálaráðuneytis um að halda fund á Biskupsstofu um stöðu fjölskyldna á þessum krepputímum. Þar verður m.a. fulltrúi frá Hjálparstarfi kirkjunnar.
3. Fjármál
a) Kirkjumiðstöð á Akureyri.
Málinu frestað.
b) Reglugerð um breyting á reglugerð um ábyrgðir Jöfnunarsjóðs sókna. Tillaga kirkjuráðs til dóms- og kirkjumálaráðuneytis.
Samþykkt var að senda tillöguna til dóms- og kirkjumálaráðuneytis.
4. Fasteignir
a) Kolfreyjustaður
Samþykkt var að festa kaup á íbúðarhúsnæði á Búðum. Húsið er í byggingu en verður afhent fullbúið 1. desember nk.
b) Útskálar
Kirkjuráð samþykkti kauptilboð sveitarfélagsins Garðs í Útskálajörðina að því tilskyldu að fyrsta greiðsla komi 15. desember 2009 í stað 15. janúar 2010 eins og kemur fram í kaupsamningi. Fasteignasvið falið að ganga frá málinu.
c) Hof, Vopnafirði
Kirkjuráð samþykkti kauptilboð kirkjumálasjóðs í fasteignina Hamrahlíð 12, Vopnafirði.
Ákveðið var að falla frá skilyrði í tilboði sem kveður á um samþykki kirkjuþings enda ekki kveðið á um slíkt í starfsreglum. Þetta er gert til að flýta fyrir afhendingartíma hússins en brýnt er að geta hafið endurbætur á því hið fyrsta. Enn fremur var ákveðið að fela iðjuþjálfa að meta hvaða endurbætur þurfi að gera á húsinu til að það henti fjölskyldu með fatlað barn. Málinu verður síðan vísað til fasteignahóps kirkjuráðs þegar það mat liggur fyrir. Stjórn prestssetra mun sjá um framkvæmdir.
5. Úrskurður úrskurðarnefndar Þjóðkirkjunnar í máli sóknarnefndar Selfosssóknar og sr. Gunnars Björnssonar
Frestur til áfrýjunar er ekki liðinn. Fram kom hjá biskupi að sóknarnefnd Selfosssóknar hefur tjáð honum að sóknarnefnd muni ekki áfrýja til áfrýjunarnefndar. Kirkjuráð ákvað að áfrýja ekki.
6. Drög að samningi um greiðslur til Minningarkapellu Jóns Steingrímssonar
Málinu var frestað til úthlutunarfundar í október.
7. Drög að samstarfssamningi milli guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og Þjóðkirkjunnar
Kirkjuráð samþykkti fyrirliggjandi drög en endanleg ákvörðun verður tekin við úthlutun á fundi kirkjuráðs í október.
8. Önnur mál
Fleira ekki rætt og var fundi slitið kl. 17,30.
Næsti fundur verður haldinn miðvikudaginn 7. og fimmtudaginn 8. október.