144. kirkjuráðsfundur 23. október 2009

Hópur: 
Kirkjuráð
Dagsetning: 
10/23/2009 (All day)
Staður: 
Biskupsstofa

1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar og staða verkefna

Mætt voru auk biskups, Karls Sigurbjörnssonar, kirkjuráðsmennirnir, sr. Halldór Gunnarsson, sr. Kristján Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir. Jóhann E. Björnsson, boðaði forföll á síðustu stundu og ekki var unnt að boða varamann.

Þá sátu fundinn Ragnhildur Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð.

Þá sat fundinn á meðan málefni kirkjuþings voru til umræðu, Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings.

Fundargerð síðasta fundar var samþykkt.

2. Kirkjuþing 2009

Kirkjuþing 2009 hefst kl. 10, laugardaginn 7. nóvember í Grensáskirkju.

a) 3. mál. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007.
Biskup kynnti umfjöllun biskupafundar frá 22. október um fram komnar umsagnir safnaðafunda og aukahéraðsfunda. Að lokinni umræðu samþykkti kirkjuráð að senda málið út til kirkjuþingsfulltrúa.

b) 11. mál. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um rekstrarkostnað prestsembætta og vegna prófastsstarfa nr. 819/1999.
Málið verður lagt fram á kirkjuþingi 2009.

c) 13. mál. Tillaga að staðfestingu á jafnréttisstefnu þjóðkirkjunnar og greinargerð.
Lögð var fram fundargerð kirkjustarfshóps. Sigríður M. Jóhannsdóttir og biskupsritari kynntu niðurstöðu umræðna á fundi kirkjustarfshóps 22. október s.l. með jafnréttisnefnd kirkjunnar. Að lokinni umræðu samþykkti kirkjuráð að senda málið út til kirkjuþingsfulltrúa.

d) 25. mál. Tillaga til þingsályktunar að viðaukasamningi við kirkjujarðarsamkomulagi frá 10. janúar 1997. Fulltrúar úr kirkjuráði og fjármálastjóri hafa átt í viðræðum við fulltrúa dóms- og mannréttinda- og fjármálaráðuneytis um samninginn og hagræðingarkröfu ríkisins.
Málið er í vinnslu en verður sent út til kirkjuþingsfulltrúa.

e) 26. mál. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr.78/1997 um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar.
Málið er enn í vinnslu og verður út til kirkjuþingsfulltrúa.
Í þessu samhengi ræddi kirkjuráð um stöðu frumvarpsins um þjóðkirkjulögin en frumvarpið hefur ekki enn verið lagt fram í ríkisstjórn.

f) 27. mál. Tillaga að starfsreglum um meðferð kynferðisbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar.
Kirkjuráð samþykkti að leggja málið fram á kirkjuþingi.

g) Námskrá kirkjufræðslunnar.
Um er að ræða drög að framkvæmdaáætlun fræðslustarfs frá skírn barns til 18 aldurs ásamt drögum að námskrám kirkjunnar fyrir barna- æskulýðs og fermingarfræðslu.
Drögin voru samin af dr. Gunnari Finnbogasyni, sr. Maríu Ágústsdóttur, Dagnýju Höllu Tómasdóttur, Magneu Sverrisdóttur, sr. Hans Guðberg Alfreðssyni og Ásdísi Björnsdóttur. Framkvæmdaáætlunin miðar að því að setja fram þarfagreiningu skírnarfræðslunnar og er hún sem slík sameiginlegt verkefni sókna, prófastsdæma og fræðslusviðs Biskupsstofu. Framkvæmdaáætlun vegna fræðslustarfs kirkjunnar er sístætt verkefni sem þarfnast stöðugrar endurskoðunar og uppfærslu við. Heildstæð námskrá skírnarfræðslunnar verður lögð fram til samþykktar á kirkjuþingi 2010.
Drögin verða fylgiskjal með skýrslu kirkjuráðs.

3. Fjármál

a) 2. mál kirkjuþings 2009. Fjármál þjóðkirkjunnar.
Kirkjuráð samþykkti að senda 2. mál, fjármál þjóðkirkjunnar, út til kirkjuþingsfulltrúa.

b) Fjárfestingastefna kirkjuráðs 2010.
Kirkjuráð samþykkti að fjármunir verði í vörslu einkabankaþjónustu eignastýringar Nýja Kaupþings. Um er að ræða innlán en fjármunir verða færðir í áföngum inn á Ríkistryggða verðbréfasjóði, sem eru að stórum hluta verðtryggðir.

c) Fimm ára áætlun um prestsembætti og um prestssetur.
Unnin hefur verið að ætlununum en vegna óljósrar fjárhagsstöðu þjóðkirkjunnar var ákveðið að fresta þeirri vinnu að svo stöddu. Því verða áætlanirnar ekki lagðar fram á kirkjuþingi 2009 eins og gert hafði verið ráð fyrir.

4. Fasteignir

a) Yfirtökusamningur, hitaveita í Hruna.
Kirkjuráð samþykkti yfirtökusamning Hitaveitu Flúða, og kostnaðarhlutdeild prestssetursins í Hruna í endurnýjun hitaveitulagna. Stjórn prestssetra hafði áður samþykkt samninginn og kostnaðarhlutdeildina með fyrirvara um samþykki kirkjuráðs.

b) Ágreiningur um girðingar á Hrunaheiðum
Málinu var vísað til fasteignahóps.

5. Önnur mál

a) Grafarvogssókn - tilraunaverkefni í áratug.  
Kristján Björnsson kynnti vinnu samstarfshóps kirkjuráðs og Grafarvogssóknar. Fyrir liggja skýrslur Sigrúnar Hallgrímsdóttur, löggilts endurskoðanda og sr. Guðna Þórs Ólafssonar sem vann að úttekt á safnaðarstarfi sóknarinnar, auk skoðanakönnunar meðal íbúa Grafarvogs. Samstarfshópurinn mun leggja fram skýrslu en tilraunaverkefninu lýkur formlega í lok ársins 2010. Skýrslurnar verða kynntar í 3. máli kirkjuþings um skipulag kirkjunnar í héraði.

b) Erindi frá sóknarnefnd og Félagi Íslendinga í London.
Biskup upplýsti að hann muni fresta að auglýsa embætti prests í London að svo stöddu, vegna óvissu um sértekjur frá samstarfsstofnunum, þ.e. frá utanríkisráðuneyti og Sjúkratryggingum Íslands svo og vegna sparnaðarkröfu ríkisins.

c) Erindi frá sr. Gunnari Björnssyni.
Erindið fjallaði um beiðni sr. Gunnars Björnssonar, fv. sóknarprests Selfossprestakalls, um að greiða lögmannskostnað vegna máls hjá úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar. Kirkjuráð telur sér ekki fært að verða við þessari beiðni þar sem það var ekki aðili að málinu og var erindinu því hafnað.

d) Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar.
Stjórn Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar hélt fyrsta stjórnarfund þann 22. október s. l. Stjórnin ákvað að hefja vinnu að undirbúningi málþings um verkefni stofnunarinnar og ganga til samninga um verkefni við Háskóla Íslands og aðrar stofnanir. Einnig var ákveðið að huga að skipan fagráðs. Ekki verður ráðinn forstöðumaður á árinu 2010.

e) Starfslokasamningur.
Biskup upplýsti að hann hefði boðið sr. Gunnari Björnssyni, sérþjónustupresti á Biskupsstofu, starfslokasamning. Tilboðið felur í sér að sr. Gunnar fái greidd laun út skipunartíma sinn, þ.e. til og með 31. maí 2012. Ekki hefur borist svar frá sr. Gunnar Björnssyni.

f) Eftirfylgd við fólk í erfiðum aðstæðum
Á Kirkjuþingi 2006 var samþykkt að koma á fót tilraunaverkefni um uppbyggingu og eflingu kærleiksþjónustu sem lyti að eftirfylgd við syrgjendur í söfnuðum landsins.
Starfshópur vann þetta verkefni og kom á fót þróunar- og tilraunastarfi í nokkrum söfnuðum og hafði eftirlit með því starfi. Í ársbyrjun 2010 mun vinnuhópurinn kynna niðustöður sínar og tillögur.

 

Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 17.

 

Deila með öðrum: Facebook Twitter