142. kirkjuráðsfundur 28. september 2009
Hópur:
Kirkjuráð
Dagsetning:
10/28/2009 (All day)
Staður:
Biskupsstofa - Símafundur 1. Kirkjuþing 2009. 3. mál.Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007 Tillögurnar höfðu verið til umræðu á biskupafundi, sama dag og var farið yfir samþykktir biskupafundar og tillögurnar í heild sinni. a) Þingvallakirkja. b) Sameining Skaftafells- og Rangárvallaprófstsdæma. Samþykkt var að heiti hins nýja prófastsdæmis verði Suðurprófastsdæmi. c) Sameining Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæma. d) Samþykkt var að tillögur um að skoða framtíðarskipan annarra prófastsdæma verði felld inn í 5. mál um heildarskipan þjónustu kirkjunnar. Kirkjuráð samþykkti þessar breytingatillögur biskupafundar og verður 3. mál sent þannig til umsagnar viðeigandi aðila. 2. Önnur málSkipan nefndar til að vinna að viðbótarsamkomulagi við samning ríkis og kirkju. Fleira ekki gert |
|||||