Starfsreglur um kjör til kirkjuþings nr. 234/2006

Kjördæmi Kirkjuþings
1. gr. Kjördæmi Kirkjuþings eru:
1. Reykjavíkurprófastsdæmi vestra
2. Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
3. Kjalarnessprófastsdæmi
4. Borgarfjarðar- og Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi
5. Vestfjarðaprófastsdæmi
6. Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi
7. Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi
8. Múla- og Austfjarðaprófastsdæmi
9. Skaftafells-, Rangárvalla- og Árnessprófastsdæmi.

Fulltrúar á Kirkjuþingi
2. gr. Á Kirkjuþingi eiga sæti 29 fulltrúar kjörnir til fjögurra ára í senn. Eru 12 þeirra úr hópi vígðra manna þ.e. þjónandi presta og djákna og 17 leikmenn úr hópi þjóðkirkjumanna, sem tilnefndir hafa verið til kjörs samkvæmt ákvæðum starfsreglna þessara og sem jafnframt uppfylla skilyrði til að taka sæti í sóknarnefnd í kjördæmi sínu 1. febrúar það ár sem kjósa skal.

 Fjöldi leikmanna á Kirkjuþingi í einstökum kjördæmum
3. gr. Sóknarnefndarmenn í 1., 2. og 3. kjördæmi, hverju fyrir sig og varamenn þeirra kjósa úr röðum leikmanna, þrjá kirkjuþingsmenn og þrjá varamenn.
Aðalmenn í sóknarnefndum í 7. og 9. kjördæmi, hvoru fyrir sig, kjósa úr röðum leikmanna, tvo kirkjuþingsmenn og tvo varamenn.
Aðalmenn í sóknarnefndum í 4., 5., 6. og 8. kjördæmi, hverju fyrir sig, kjósa úr röðum leikmanna, einn kirkjuþingsmann og tvo til vara.
Miða skal kosningarrétt samkvæmt ákvæði þessu við 23. mars á kosningarári.

Tilnefning sóknarnefnda á leikmönnum
4. gr. Kjörstjórn kynnir sóknarnefndum með hæfilegum fyrirvara að hverri sóknarnefnd sé heimilt en ekki skylt að tilnefna leikmenn til kjörs á Kirkjuþingi og skulu þeir sem tilnefndir eru uppfylla skilyrði til setu í sóknarnefnd innan kjördæmisins. Jafnframt auglýsir kjörstjórn opinberlega að hver kjörgengur maður geti óskað eftir því við sóknarnefnd í sókn sinni fyrir 1. mars á kosningarári að verða tilnefndur til kjörs. Sóknarnefnd er heimilt en ekki skylt að verða við þeim tilmælum.
Sóknarnefndir geta komið sér saman um tilnefningu. Gætt skal jafnræðis eins og kostur er.

Kjördæmisfundur
5. gr. Kjörstjórn boðar með viku fyrirvara hið minnsta til kjördæmisfundar leikmanna í hverju kjördæmi árið sem kosið er til Kirkjuþings, eigi síðar en 15. mars. Fundurinn telst lögmætur sé réttilega til hans boðað. Formaður sóknarnefndar eða annar fulltrúi úr sóknarnefnd mætir á kjördæmisfund auk þeirra sem tilnefndir eru. Heimilt er leikmönnum sem njóta kosningarréttar í kjördæminu að sitja fundinn sem áheyrnarfulltrúar. Formaður sóknarnefndar eða fulltrúi úr sóknarnefnd þeirrar sóknar kjördæmisins þar sem flestir þjóðkirkjumenn eru setur fundinn og lætur kjósa fundarstjóra og ritara.
Á kjördæmisfundi er gengið frá tilnefningum í kjöri til Kirkjuþings en þar fer einnig fram kynning þeirra sem tilnefndir eru. Hafi ekki nægilega margar tilnefningar borist, skal tilnefna menn á fundinum.
Á þeim lista yfir tilnefningar sem fundarstjóri skilar til kjörstjórnar skulu vera tvöfalt fleiri nöfn en aðal- og varamenn þess kjördæmis. Ef sóknarnefndir kjördæmisins hafa tilnefnt fleiri til kjörs skal kjósa í leynilegri kosningu um tilnefningu og hefur hver sóknarnefnd eitt atkvæði. Fulltrúi hverrar sóknar ritar á kjörseðil jafnmörg nöfn og tilnefna skal í kjördæminu. Fundarstjóri sendir kjörstjórn niðurstöður fundarins þegar í stað.
Þeir einir leikmenn sem eru tilnefndir eru í kjöri.
Kirkjumálasjóður greiðir kostnað vegna fundaraðstöðu.

Kjörskrá
6. gr. Kjörstjórn semur kjörskrá fyrir 1. apríl það ár sem kjósa skal og leggur hana fram sama dag. Miða skal kosningarrétt og kjörgengi vígðra manna til Kirkjuþings við embætti og stöðu 23. mars á kosningaári. Kosningarrétt leikmanna skal einnig miða við 23. mars það ár sem kjósa skal. Kjörskrá skal liggja frammi í eina viku á Biskupsstofu og hjá próföstum. Heimilt er kjörstjórn að láta kjörskrá liggja frammi á fleiri stöðum svo og að birta hana á svæði þjóðkirkjunnar á Netinu.
Kjörstjórn auglýsir framlagningu kjörskrár og kærufrest, sem skal vera ein vika frá framlagningu. Kæruheimild vígðra manna er bundin við þá sem eru í Þjóðkirkjunni 15. mars á kosningaári og í starfi, en kæruheimild leikmanna við þá sem eru í Þjóðkirkjunni og njóta kosningarréttar 23. mars á kosningarári. Kjörstjórn úrskurðar kærur, og gengur endanlega frá kjörskrá innan viku frá lokum kærufrests. Niðurstöður kjörstjórnar skulu liggja frammi á Biskupsstofu og skulu kærendur kynna sér þær þar. Heimilt er að skjóta úrskurði kjörstjórnar til yfirkjörstjórnar Þjóðkirkjunnar, innan þriggja daga frá því að kærufrestur rann út. Yfirkjörstjórn skal hafa lokið úrlausnum kærumála innan viku frá því kæra barst.

Kjör vígðra manna
7. gr. Við kosningu vígðra þjóna eru allir þjónandi prestar og djáknar kjörgengir innan hvers kjördæmis, nema biskupar og kennarar í fullu starfi við guðfræðideild Háskóla Íslands.
Kosningarrétt hafa þeir einir sem eru í fullu starfi.
Kjósa þeir einn kirkjuþingsmann fyrir kjördæmið og tvo til vara. Í 1., 2. og 3. kjördæmi skal þó kjósa tvo vígða menn og tvo til vara.
Prestur sem settur er til þjónustu til lengri tíma en eins árs samfellt nýtur kosningarréttar. Prestur sem settur er í embætti, þar sem ekki er skipaður prestur fyrir, skal hafa kosningarrétt í því kjördæmi sem hann þjónar í. Prestur, sem sinnir aukaþjónustu, getur ekki greitt atkvæði fyrir það embætti. Prestur í launalausu leyfi eitt ár eða lengur, nýtur ekki kosningarréttar.
Djákni skal vera ráðinn til a.m.k. eins árs til að njóta kosningarréttar.

Útsending kjörgagna - Kosning
8. gr. Kosning skal fara fram með rafrænum hætti eigi síðar en 1. maí á því ári sem kjósa skal. Þá sendir kjörstjórn öllum þeim sem kosningarrétt eiga nauðsynleg kjörgögn, þ.e. skrá yfir tilnefningar til leikmanna og kjörskrá vígðra manna. Þá skulu fylgja leiðbeiningar um það hvernig kosning fari fram.
Kjörgögn þessi eru send rafrænt með staðfestri móttöku. Hafi kjósandi ekki rafrænt póstfang skal senda lykilorð til hans í pósti ásamt leiðbeiningum um hvert hann skuli snúa sér. Allar upplýsingar og nauðsynleg gögn eru einnig aðgengileg á vef Þjóðkirkjunnar.
Rafrænni kosningu skal vera lokið á miðnætti 15. maí.

Kjörstjórn við kirkjuþingskjör
9. gr. Kjörstjórn skipa þrír menn til fjögurra ára.
Biskup skipar formann og varaformann. Kirkjuþing kýs tvo kjörstjórnarmenn og tvo varamenn hvors þeirra um sig. Varamenn skulu kosnir í þeirri röð sem þeir taka sæti aðalmanns.
Kjörstjórnarmenn mega hvorki vera kirkjuþingsmenn eða varamenn þeirra né í föstu, launuðu starfi hjá þjóðkirkjunni.
Kosning til kjörstjórnar fer fram á þriðja reglulega Kirkjuþingi eftir kjör Kirkjuþings. Biskup skal kunngera skipun formanns og varaformanns á því Kirkjuþingi, áður en þingið kýs til kjörstjórnar.
Kjörtími kjörstjórnar er frá 1. desember það ár sem þriðja Kirkjuþing er haldið. Kjörstjórn hefur aðsetur á Biskupsstofu. Kjörstjórn er heimilt að fela starfsmönnum eða trúnaðarmönnum Þjóðkirkjunnar að annast á ábyrgð kjörstjórnar framkvæmd tiltekinna þátta í kosningu til Kirkjuþings. 

Niðurstaða kosningar og útgáfa kjörbréfa
10. gr. Kjörstjórn úrskurðar atkvæði og staðfestir niðurstöðu kosningar. .
Sá er kjörinn aðalmaður, sem flest fær atkvæði sem aðalmaður. Sá er kjörinn 1. varamaður sem flest fær atkvæði sem varamaður að viðbættum þeim atkvæðum sem hann fær sem aðalmaður, sá 2. varamaður sem næstflest fær atkvæðin talin með sama hætti og sá 3. varamaður þar sem það á við sem fær atkvæði talin með sama hætti.
Hljóti tveir eða fleiri jöfn atkvæði ræður hlutkesti og gildir það einnig um röð varamanna ef því er að skipta.
Kjörstjórn skal birta nöfn þeirra er kosningu hlutu, strax að lokinni talningu.
Kjörstjórn gefur út kjörbréf til þingmanna, aðalmanna og varamanna og skal röð varamanna greind sérstaklega.

Gerðabók kjörstjórnar
11. gr. Kjörstjórn færir gerðabók þar sem skrá skal meginatriði funda, kærumál og úrlausnir þeirra, svo og úrslit kosninga.

Varamenn
12. gr. Ef kirkjuþingsmaður andast á kjörtímabilinu, flytur burt úr kjördæminu eða forfallast varanlega eða tímabundið, tekur varamaður hans sæti í þeirri röð sem hann er til kjörinn. Hafi hlutaðeigandi kirkjuþingsmaður gegnt embætti forseta kirkjuþings, skal kirkjuþing kjósa til embættisins að nýju.
Varamaður tekur sæti aðalmanns í föstum þingnefndum og þarf ekki að kjósa að nýju um sæti aðalmannsins.

Kærur vegna kirkjuþingskosninga
13. gr. Rétt til að kæra eiga þeir einir sem hafa kosningarrétt við kirkjuþingskjör. Kærur vegna kirkjuþingskosninga skulu hafa borist kjörstjórn eigi síðar en einni viku eftir að atkvæði eru talin sbr. 1. mgr. 12. gr. Leggur hún þær, ásamt athugasemdum sínum, fyrir yfirkjörstjórn Þjóðkirkjunnar sbr. 16. gr. til úrskurðar.

Yfirkjörstjórn Þjóðkirkjunnar
14. gr. Yfirkjörstjórn þjóðkirkjunnar fer með endanlegt úrskurðarvald í ágreiningsmálum vegna kirkjuþingskosninga. Hún er skipuð þremur mönnum og þremur til vara, til fjögurra ára í senn. Skal einn þeirra vera löglærður sem og varamaður hans. Formaður boðar fundi í yfirkjörstjórn.
Aðsetur yfirkjörstjórnar skal vera á biskupsstofu. Biskupsstofa sér nefndinni fyrir aðstöðu og þjónustu.

Kosning til yfirkjörstjórnar fer fram á þriðja reglulega kirkjuþingi eftir kjör kirkjuþings.

15. gr. Kæra má til yfirkjörstjórnar:
1) Úrlausnir kjörstjórnar vegna kjörskrármála
2) Framkvæmd kirkjuþingskosninga.

Yfirkjörstjórn hefur eftirfarandi úrræði:
1) Hún getur fallist á - eða synjað - kröfu manns um að vera á kjörskrá.
2) Hún getur fallist á kröfu - eða synjað - um að tiltekinn maður skuli ekki vera á kjörskrá.
3) Hún getur staðfest lögmæti framkvæmdar kirkjuþingskosninga, eftir atvikum með athugasemdum.
4) Hún getur ógilt kosningu tiltekins kirkjuþingsmanns eða kirkjuþingsmanna og lagt fyrir kjörstjórn að endurtaka kosningu í hlutaðeigandi kjördæmi.
5) Hún getur ógilt tiltekna þætti í framkvæmd kirkjuþingskosninga og lagt fyrir kjörstjórn að endurtaka þann þátt svo og aðra þætti sem nauðsynlegt þykir, þannig að niðurstaða fáist.
6) Hún getur ógilt kirkjuþingskosningu að öllu leyti og lagt fyrir kjörstjórn að láta kjósa að nýju.

16. gr. Yfirkjörstjórn vísar kæru frá ef:
a) kærandi hefur ekki kæruaðild
b) hún er of seint fram komin
c) mál heyrir ekki undir yfirkjörstjórn
d) kröfugerð er óskýr eða vanreifuð þrátt fyrir ábendingar yfirkjörstjórnar.

17. gr. Yfirkjörstjórn þjóðkirkjunnar skal skera úr þeim málum sem fyrir hana eru lögð eins fljótt og auðið er og að jafnaði ekki síðar en 10 dögum eftir að mál barst.
Niðurstöður yfirkjörstjórnar skulu vera í úrskurðarformi og dregnar saman í úrskurðarorð. 

18. gr. Starfsreglur þessar sem settar eru með heimild í 7. mgr. 21. gr. og 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 öðlast gildi þegar í stað. Frá sama tíma falla brott starfsreglur um Kirkjuþing nr. 729/1998.

II. Ákvæði til bráðabirgða
Starfsreglur þessar skal endurskoða fyrir Kirkjuþing 2008. Verði sérstaklega hugað að ákvæðum um kosningarrétt.

III. Ákvæði til bráðabirgða
Reynist ekki unnt að framkvæma kosningu með rafrænum hætti skal hún fara fram samkvæmt ákvæði þessu.
Eigi síðar en 1. maí á því ári þegar kjósa skal, sendir kjörstjórn öllum þeim sem kosningarrétt eiga nauðsynleg kjörgögn, þ.e. skrá yfir tilnefningar til leikmanna, kjörskrá vígðra manna, auðan kjörseðil, óáritað umslag, eyðublað fyrir yfirlýsingu kjósandans um það að hann hafi kosið og umslag með utanáskrift kjörstjórnar. Þá skal fylgja leiðbeining um það hvernig kosning fari fram.
Kjósandi ritar nöfn aðal- og varamanna er hann vill kjósa, setur kjörseðilinn í óáritaða umslagið og lokar því. Hann fyllir út eyðublað fyrir yfirlýsingu og undirritar og leggur gögnin í áritaða umslagið og sendir kjörstjórn og skulu gögnin hafa borist kjörstjórn fyrir 20. maí.
Kjörgögn til vígðra manna og leikmanna skulu vera hvort með sínum lit.