145. kirkjuráðsfundur 6. nóvember 2009

Hópur: 
Kirkjuráð
Dagsetning: 
11/06/2009 (All day)
Staður: 
Biskupsstofa

Símafundur haldinn á Biskupsstofu, kl. 16.

Fundargerð

Mætt voru á Biskupsstofu: Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, sr. Kristján Björnsson, Jóhann E. Björnsson, Sigríður M. Jóhannsdóttir. Sr. Halldór Gunnarsson, var tengdur inn á fundinn í gegnum síma.
Auk þess Ragnhildur Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri, og sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari sem ritaði fundargerð.

1. Hagræðingarkrafa ríkisins. Viðaukasamningur við kirkjujarðasamkomulagið.

Rætt var um kröfu ríkisins um niðurskurð á framlögum til þjóðkirkjunnar fyrir árið 2010. Fyrir liggur að skerða fjárlagaliðinn biskup Íslands/þjóðkirkjan um 10% eða 160 m. kr. og kristnisjóð um 10% eða 9 m. kr. sem viðaukasamningur kveður á um og kirkjuráð samþykkti að leggja fyrir kirkjuþing til staðfestingar.

Kirkjuráð fellst á hagræðingarkröfu ríkisins vegna ársins 2009 að fjárhæð 26,2 m. kr. á fjárlagaliðnum biskup Íslands/þjóðkirkjan, með því að auka sértekjur á árinu 2009.

Ef kirkjuþing 2009 samþykkir viðaukasamninginn í 25. máli mun ráðherra leggja fram frumvarp um breytingu á þjóðkirkjulögunum í 26. máli kirkjuþings 2009. Samningurinn yrði borinn upp í heild og samþykktur eða felldur en ekki er unnt að breyta textanum eða ákvæðum hans. Sr. Halldór Gunnarsson kvaðst ekki geta samþykkt samninginn og mun gera grein fyrir hjásetu sinni á kirkjuþinginu.

Biskup greindi frá fundi sem hann átti með Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og símtali við Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, vegna viðaukasamningsins og hagræðingarkröfu ríkisins. Ekki er ljóst hvort frumvarpið um þjóðkirkjulögin sem samþykkt voru á kirkjuþingi 2008 verði lagt fram á núverandi löggjafararþingi.

2. Önnur mál

a) Skýrsla Grafarvogsnefndar.
Fram kemur að sókninni verði ekki skipt en að unnið verði að stefnumótun fyrir sóknina sem verði lögð fyrir kirkjuþing 2010, þegar tíu ára tilraunaverkefninu lýkur.

b) Leiðarþing Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæma.
Lögð var fram ályktun frá leiðarþingi Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæma þar sem mótmælt er stækkun kjördæmisins, eins og lagt er til í 12. máli kirkjuþings 2009.

c) Málefni sr. Gunnars Björnssonar.
Biskup greindi frá því að sr. Gunnar muni gegna embætti sérþjónustuprests á Biskupsstofu út skipunartíma fyrra embættis eða til maíloka 2012. Verkefni sr. Gunnars verður á sviði þýðinga og fyrir Helgisiðastofu sem vinnur að rannsóknum á hinum forna tónlistararfi. Að skipunartíma hans loknum mun sr. Gunnar verða verkefnaráðinn í 49% starf þar til hann verður sjötugur.

d) Samþykkt var að heimila Ragnhildi Benediktsdóttur, framkvæmdastjóra kirkjuráðs, að undirrita alla samninga er varða kaup og sölu fasteigna hjá kirkjumálasjóði og kirkjuráð hefur samþykkt.

 Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.10.
 

Deila með öðrum: Facebook Twitter