146. kirkjuráðsfundur 10. og 11. desember 2009

Hópur: 
Kirkjuráð
Dagsetning: 
12/10/2009 (All day)
Staður: 
Biskupsstofa

1. Fundarsetning, fundargerðir síðustu funda og staða verkefna.

Fundargerðir kirkjuráðsfunda 23. október og 6. nóvember voru samþykktar.

2. Kirkjuþing 2009

a) Ályktanir kirkjuþings.

1. mál 2009. Skýrsla Kirkjuráðs.

  • Kirkjuþing 2009 hvetur söfnuði landsins til að standa þétt að baki Hjálparstarfi kirkjunnar með auknum fjárframlögum og kynningu á starfinu.
  • Kirkjuþing 2009 hvetur kirkjuráð til að leita leiða við að styðja safnaðarstarf erlendis og kanna nýjar leiðir til þess að fjármagna það.
  • Kirkjuþing 2009 fagnar framkominni trúfræðsluáætlun og námsskrá fyrir börn 0-18 ára og hvetur til að gerð heildstæðrar námsskrár verði lokið fyrir kirkjuþing 2010.
  • Kirkjuþing 2009 ályktar að mikilvægt sé að kirkjuráð komi á framfæri við sóknir landsins hver ávinningurinn er af lögmætri skráningu eigna og réttinda sóknanna með þinglýsingu þeirra.
  • Kirkjuþing 2009 ályktar að prestar og söfnuðir sjái til þess að haldið verði vel utan um félagaskráningu í þjóðkirkjuna.
  • Kirkjuþing 2009 hvetur til þess að frumvarp til þjóðkirkjulaga sem samþykkt var á kirkjuþingi 2008 fái eðlilegan framgang.
  • Kirkjuþing 2009 leggur til að kannaðar verði leiðir til að rýmka kosningarétt til kirkjuþings og auka á þann hátt lýðræði innan þjóðkirkjunnar.

Kirkjuráð mun taka tillit til ofangreindra ályktana og koma þeim á framfæri eftir því sem við getur átt.

2. mál 2009 Fjármál kirkjunnar

Úr nefndaráliti fjárhagsnefndar.
a. Vegna fyrirsjáanlegrar skerðingar á tekjum sókna beinir fjárhagsnefnd því til kirkjuráðs að það fari þess á leit við héraðssjóði að þeir lækki framlag sókna til sjóðanna um eitt til tvö prósentustig þar sem tök eru á.
Kirkjuráð mun kynna héraðsnefndum þessi tilmæli.

b. Fjárhagsnefnd beinir því til forsætisnefndar að barna- og æskulýðsstarf þjóðkirkjunnar verði sérstaklega kynnt á kirkjuþingi 2010. 

c. Fjárhagsnefnd hefur valið þrjá kirkjuþingsfulltrúa úr sínum hópi, þau sr. Gunnlaug Stefánsson, Bjarna Grímsson og Helgu Halldórsdóttur til þess að ganga á fund fjárlaganefndar Alþingis og fylgja eftir ályktun kirkjuþings um að dregið verði úr skerðingu á sóknargjaldi. Samkvæmt lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum verður sóknargjaldið árið 2010 kr. 767 á mánuði. Skerðingin árið 2010 er um 218 milljónir króna, eða 10,8 % ef miðað er við fjárlög 2009 en 371,3 milljónir króna miðað við óskert sóknargjöld árið 2009 eða um 17% skerðing. Þess er farið á leit við Alþingi að fyrirhugaðri skerðingu á sóknargjaldi verði dreift á árin 2010 og 2011 t.d. með því að sóknargjaldið verði 820 kr. á mánuði bæði árin.
Fulltrúarnir hafa rætt við fjárhagsnefnd Alþingis og var lagt fram afrit bréfs þeirra til presta og sókna dags. 17. nóv. s.l. svo og fjárlaganefndar Alþingis dags. 16.11.09. Kirkjuráð mun fylgja þessu máli eftir.

d. Fjárhagsnefnd hvetur til þess að verkefnið um þinglýsingu kirkjulegra eigna verði kynnt rækilega fyrir sóknum og á héraðsfundum. Jafnframt væri ástæða til þess að mynda starfshóp um framgang málsins.
Kirkjuráð mun fela fasteignanefnd þjóðkirkjunnar verkefni þetta.

e. Fjárhagsnefnd beinir því til kirkjuráðs að auglýst verði sérstaklega eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála á vegum kirkjunnar, sbr. 18. mál kirkjuþings 2009.
Kirkjuráð mun athuga þetta við undirbúning úthlutunar fyrir árið 2011.

f. Varðandi frekari sparnaðaraðgerðir þjóðkirkjunnar bendir fjárhagsnefnd á að ná megi fram sparnaði með eftirtöldum aðgerðum sem lauslega áætlað geta numið um 60 m. kr. á árinu 2010. Því beinir fjárhagsnefnd eftirfarandi til kirkjuráðs og biskups Íslands:

  • Að prestastefna og leikmannastefna verði haldnar annað hvort ár og næst haldin árið 2011
    Biskup telur ekki unnt að fella niður prestastefnu 2010 en prestastefnan verður stytt og kostnaði haldið í lágmarki. 
  • Leikmannaráð hefur fundað og ákveðið að halda leikmannastefnu 10. apríl 2010 og verður kostnaður að mestu greiddur úr sjóðum stefnunnar.
  • Að námsleyfi verði ekki veitt árin 2010 og 2011.
    Sjá bókun síðar.
  • Að gerð verði gangskör að því að selja prestsbústaði á þeim stöðum þar sem viðkomandi prestar eru reiðubúnir að kaupa húsnæðið og búa áfram á staðnum. Í þessu sambandi minnir fjárhagsnefnd á fjárfestingastefnu þjóðkirkjunnar þar sem lögð er áhersla á samræmi innan svæða og sölu prestsbústaða í þéttbýli.
    Kirkjuráð mun taka þetta til athugunar.
  • Að þóknanir vegna setu í stjórnum, ráðum og nefndum lækki í ljósi aðstæðna frá og með 1. janúar 2010 og taki mið af reglum sem gilda um sambærileg nefndarstörf um þessar mundir.
    Sjá bókun síðar.
  • Að embætti presta í Kaupmannahöfn, London og Gautaborg verði lögð niður um óákveðinn tíma.
    Sjá bókun síðar.
  • Að farið verði yfir héraðs- og sérþjónustuprestsembætti þjóðkirkjunnar og þau metin með tilliti til sparnaðar, sameiningar eða fækkunar.
    Sjá bókun síðar.
  • Að starfsmannahald á Biskupsstofu verði endurmetið með tilliti til sparnaðar, sameiningar eða fækkunar.
    Sjá bókun síðar.
  • Að leitast verði við að fækka fjárveitingum og lækka styrki til verkefna utan þjóðkirkjunnar.
    Kirkjuráð mun taka tillit til þessarar ábendingar við gerð fjárhagsáætlana 2010.
  • Að útgáfustarfsemi verði endurskoðuð og færð í meira mæli í rafræna útgáfu m.a. Víðförli og útgáfa á umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar.
    Kirkjuráð mun taka tillit til þessarar ábendingar.
  • Að verkefna- og þjónustusamningar verði endurskoðaðir.
    Kirkjuráð mun taka tillit til þessarar ábendingar við gerð fjárhagsáætlana 2010.

Ályktun fjárhagsnefndar: Kirkjuþing 2009 afgreiðir ársreikninga þjóðkirkjunnar fyrir árið 2008 um einstaka sjóði, stofnanir og viðfangsefni þjóðkirkjunnar athugasemdalaust.
Rekstraráætlun fyrir árið 2010 um helstu viðfangsefni þjóðkirkjunnar, er í samræmi við megináherslur kirkjuþings með hliðsjón af þeim fjárhagsramma sem þjóðkirkjan býr við.
Kirkjuþing hvetur forráðamenn sókna til þess að fylgja því eftir við löggjafarvaldið að sóknargjald verði ekki skert þannig að safnaðarstarf þurfi að draga stórlega saman eins og nú stefnir í að verði.

5. mál 2009. Áfangaskýrsla um heildarskipan þjónustu þjóðkirkjunnar.

Ályktun: Kirkjuþing 2009 samþykkir að fela kirkjuráði að vinna áfram með tillögur um heildarskipan þjónustu þjóðkirkjunnar og höfð verði hliðsjón af efni áfangaskýrslunnar og tekið aukið tillit til ólíkra aðstæðna í dreifbýli og þéttbýli.
Áfram verði mótaðar tillögur um samstarfssvæði með tilliti til framtíðarskipunar sókna, prestakalla og prófastsdæma. Einnig verði gerð tillaga um starfsmannahald í sóknum og í sérþjónustu; um presta, djákna, organista og starfsfólk í barna- og æskulýðsstarfi, að höfðu samráði við þar að lútandi aðila. Tillögurnar verði lagðar fram fyrir kirkjuþing 2010.
Sjá bókun síðar um skipan nefndar.

9. mál 2009. Umhverfisstefna kirkjunnar.

Ályktun: Kirkjuþing 2009 staðfestir eftirfarandi umhverfisstefnu og áætlun um umhverfisstarf í söfnuðum og stofnunum þjóðkirkjunnar og felur kirkjuráði að fylgja eftir framkvæmd hennar. 
Fram kom að biskup hefur afhent umhverfisráðherra umhverfisstefnuna. Biskupi er falið að fylgja málinu eftir.

13. mál 2009. Jafnréttisstefna þjóðkirkjunnar.

Í lið II í stefnunni kemur eftirfarandi fram: „Kirkjuþing kýs fimm fulltrúa í jafnréttisnefnd til fjögurra ára og jafnmarga til vara.“
Núverandi jafnréttisnefnd er skipuð sr. Huldu Hrönn M. Helgadóttur, sem er formaður, Kristínu Magnúsdóttur kirkjuþingsfulltrúa og sr. Sigfúsi Baldvin Ingvasyni. Varamenn eru Hróbjartur Árnason, guðfræðingur, Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni og sr. Sólveig Lára Guðmundsdóttir. Jafnréttisfulltrúi er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Kirkjuráð ákvað að ný jafnréttisnefnd yrði kosin á kirkjuþingi 2010 á grundvelli stefnunnar, en núverandi nefnd sitji óbreytt áfram og er falið framkvæmd og kynning nýju jafnréttisstefnunnar.

14. mál 2009. Siðareglur vígðra þjóna og annars starfsfólks þjóðkirkjunnar.

Kirkjuráð ákvað að beina því til biskups að hlutast til um að siðareglurnar verði kynntar starfsfólki þjóðkirkjunnar. Kirkjuráð telur eðlilegt að leitað verði eftir því að prestar og starfsfólk kirkjunnar heimili að kallað verði eftir upplýsingum úr sakaskrá, eins og kveðið er á um í reglunum.

16. mál 2009. Tillaga til þingsályktunar um flutning verkefna út á landsbyggðina

Ályktun: Kirkjuþing 2009 ályktar að fela kirkjuráði að við endurskoðun á starfsháttum og heildarskipulagi kirkjunnar verði hugað að flutningi verkefna og stofnana af höfuðborgarsvæðinu á landsbyggðina. Í því sambandi verði stefnt að því að hýsa verkefni og málaflokka innan prófastsdæma og hjá vígslubiskupum.
Kirkjuráð mun taka málið til umfjöllunar á úthlutunarfundi í janúar, sérstaklega vegna nýrra verkefna.  

17. mál 2009. Þingsályktun um stefnumótun í málefnum fatlaðra innan kirkjunnar.

Ályktun: Kirkjuþing 2009 ályktar að fela kirkjuráði að undirbúa stefnumótun í málefnum fatlaðra innan kirkjunnar. Verkefnið verði unnið í nánu samstarfi við fagaðila um málefni fatlaðra. Niðurstöðum verði skilað til Kirkjuþings 2010.
Kirkjuráð vísaði málinu til biskups.

18. mál 2009. Tillaga til þingsályktunar um fjárstuðning til lista- og menningarmála.

Þetta mál var sameinað 2. máli. ”Fjárhagsnefnd beinir því til kirkjuráðs að auglýst verði sérstaklega eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála á vegum kirkjunnar, sbr. 18. mál kirkjuþings 2009”.

20. mál 2009. Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um sóknarnefndir nr.732/1998

Við 5. grein starfsreglna um sóknarnefndir nr. 732/1998 bætist við eftirfarandi málsgrein:
Ef fjárhag sókna er stefnt í tvísýnu með miklum hallarekstri eða skuldasöfnun þannig að það hamli eðlilegu safnaðarstarfi er kirkjuráði heimilt að grípa inn í reksturinn, t.d. með skipun fjárhaldsmanns eða eftirlitsnefndar.
Kirkjuráð samþykkti að óska eftir því að fjármálahópur fari yfir það hvort þetta ákvæði eigi við í einhverjum tilvikum.

21. mál 2009. Þingsályktun um stefnumörkun í sjálfboðaliðastarfi í þjóðkirkjunni 2010-2014.

Ályktun: Kirkjuþing 2009 samþykkir að efling sjálfboðaliðastarfs verði sett í forgang í starfi þjóðkirkjunnar og að stefna verði mörkuð um sjálfboðaliðastarf í söfnuðum, prófastsdæmum og stofnunum kirkjunnar næstu fjögur árin. Sett verði skýr markmið um fjölgun sjálfboðaliða á þessum tíma.
Málinu frestað.

23. mál 2009. Þingsályktun samskiptastefnu þjóðkirkjunnar

Ályktun: Kirkjuþing 2009 ályktar að fela Kirkjuráði að skipa starfshóp sem móti samskiptastefnu sem tekur til grunngilda og markmiða samskiptastarfs kirkjunnar í sóknum, prófastsdæmum og á landsvísu. Drög að stefnu verði lögð fyrir kirkjuþing 2010.
Málinu frestað.

24. mál 2009. Þingsályktun varðandi stöðu þjóðkirkjunnar innan Stjórnarráðs Íslands

Ályktun: Kirkjuþing felur kirkjuráði að skipa þriggja manna nefnd til að skoða þær breytingar sem orðið hafa vegna nýrra laga nr. 98/2009, þar sem dóms- og kirkjumálaráðuneyti er breytt í dómsmála- og mannréttindaráðuneyti og hvaða áhrif þær breytingar hafa varðandi samskipti ríkis og kirkju. Einnig á nefndin að athuga hvar málefni þjóðkirkjunnar kunna að eiga best heima innan stjórnsýslu ríkisins og skila niðurstöðu fyrir næsta kirkjuþing.
Kirkjuþing 2009 samþykkir að vísa málinu til kirkjuráðs.
Kirkjuráð mun athuga hvort unnt sé að taka málið til umfjöllunar á vettvangi samstarfsnefndar Alþingis og þjóðkirkjunnar.

25. mál 2009. Þingsályktun um viðaukasamning við samkomulag íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar frá 10. janúar 1997.

Þingsályktunin verður send til dómsmála- og mannréttindaráðherra en undirritað samkomulag var lagt fram á kirkjuþingi.

b) Erindi til kjörstjórna.
Forseti kirkjuþings kynnti bréf til kjörstjórnar við kirkjuþingskjör og yfirkjörstjórnar við kirkjuþingskjör.

c) Almennt um kirkjuþing 2009.
Forseti ræddi um stöðu og aðkomu kirkjuráðs sem fjölskipaðs stjórnvalds að málum á kirkjuþingi. Hann telur að setja verði kirkjuþingi skorður þegar fjallað er um mál þar sem starfsreglur gera ráð fyrir ákveðinni málsmeðferð þ.e. umfjöllun í héraði eins og t.d. á við um tillögur að breytingum á skipan sókna og prestakalla. Forseti taldi, vegna fram kominnar gagnrýni á afgreiðslu kirkjuþings á 3. máli, að formlega hafi verið rétt staðið að samþykkt hvað varðar breytingar á skipulagi kirkjunnar í héraði. Vald kirkjuþings í þessum efnum er ljóst.

3. Fjármál

a) Fjárhagsáætlanir Biskupsstofu og kirkjumálasjóðs.
Frestað var að ganga frá fjárhagsáætlunum 2010 til næsta fundar í byrjun janúar þegar fjárlög hafa verið samþykkt á Alþingi. Undir þessum lið voru ræddar ýmsar sparnaðarráðstafanir sem verða nánar útfærðar við frágang fjárhagsáætlana.
- Stefnt verður að 7% skerðingu á launalið hjá Biskupsstofu og stofnunum sem heyra undir kirkjuráð.
- Tímabundnar ráðningar á Biskupsstofu verða ekki framlengdar.
- Rekstrarkostnaður á Biskupsstofu lækki um 10%.
- Vígðum þjónum á Biskupsstofu verði falin tímabundin prestsþjónusta í sérstökum tilvikum án aukagreiðslna.
- Nágrannaþjónusta verður meginregla vegna afleysinga presta.
- Endurskoðuð verði erindisbréf héraðspresta í samráði við prófasta.
- Námsleyfakvóti verður lækkaður í 12 mánuði á árinu 2010.
- Embætti sérþjónustupresta erlendis. Lagt var fram erindi frá Sjúkratryggingum Íslands með tilboð um samstarfsverkefni um prestsþjónustu við sjúklinga í Gautaborg. Einnig var lagt fram erindi frá utanríkisráðuneytinu um prestsþjónustu í London. Kirkjuráð metur mikils þann vilja til áframhaldandi samstarfs sem kemur fram í þessum tilboðum og er staðfesting á góðri reynslu, en í ljósi mikils niðurskurðar sem Biskupsstofu er gert að mæta, sér kirkjuráð sér ekki fært annað en að leggja af prestsþjónustu að svo stöddu í Bretlandi, Danmörku og Svíþjóð. Prestsþjónusta í Noregi er greidd af sóknargjöldum íslenska safnaðarins þar og helst óbreytt. 
 
b) Úthlutanir úr Jöfnunarsjóði sókna, kirkjumálasjóði og Kynningar- , fræðslu- og  útgáfusjóði.
Jóhann E. Björnsson gerði grein fyrir erindi frá Reyðarfjarðarsókn en sr. Davíð Baldursson,  sóknarprestur og fulltrúi sóknarnefndar mættu á fund fjármálahóps kirkjuráðs. Málið verður til umfjöllunar á úthlutunarfundi í janúar n.k. 
 
c) Aukafjárveiting vegna Kapellu ljóssins, Vallarheiði, Reykjanesbæ.
Kirkjuráð staðfesti áður gerða samþykkt um aukafjárveitingu vegna vinnu við raflagnir í Kapellu ljóssins að fjárhæð kr. 1,5 millj.

d) Kirkjumiðstöðin á Akureyri (v/ Hjálparstarfs kirkjunnar og ÆSKÞ)
Málinu frestað til úthlutunarfundar.

4. Fasteignir

a) Yfirlit yfir verkefni fasteignahóps – fundargerð
- Stafholt. Stjórn prestssetra vísaði til kirkjuráðs erindi frá sóknarpresti Stafholtsprestakalls þar sem hann óskar eftir upplýsingum um áætlun kirkjuráðs vegna uppbyggingar prestssetursins í Stafholti.
Kirkjuráð taldi, í ljósi mikils niðurskurðar og lækkandi tekna, ekki mögulegt að gera ráð fyrir byggingu nýs prestsbústaðar í Stafholti á næstu tveimur árum hið minnsta.
- Vopnafjörður. Samkvæmt kostnaðaráætlun arkitektastofu kosta breytingar og viðbygging á íbúðarhúsi sem verður nýtt sem prestsbústaður um kr. 30 millj. Kirkjuráð taldi ekki unnt að breyta áður samþykktri kostnaðaráætlun sem var um kr. 15 millj. Kirkjuráð óskar eftir að fasteignanefnd þjóðkirkjunnar taki málið til umfjöllunar.
- Útskálar. Upplýst var að stefnt er að undirritun kaupsamnings sveitarfélagsins og kirkjumálasjóðs um Útskálajörðina á næstu dögum.
- Suðureyri.
Samþykkt var að fela framkvæmdastjóra að ganga til samninga um sölu á prestsbústaðnum að Túngötu 6, Suðureyri, með fyrirvara um samþykki kirkjuþings 2010.
- Borgarhóll, Skagafirði.
Kirkjuráð telur ekki tímabært að selja eign þessa nú en fyrr á árinu barst tilboð í jörðina Borgarhól sem er byggð út úr prestssetursjörðinni Miklabæ. 
 
b) Samþykktir kirkjuþings um kaup og sölu fasteigna.
Málinu frestað.

5. Málefni Selfoss og ákvörðun kirkjuþings 2009

Málefni Selfoss voru rædd er varðar ákvörðun kirkjuþings um sameiningu Hraungerðis- og Selfossprestakalls. Lögð voru fram eftirfarandi skjöl þar sem mótmælt er málsmeðferð kirkjuþings og þess krafist að embætti sóknarprests sé auglýst:
a) Til kirkjuráðs frá sóknarnefnd Selfosskirkju. (dags. 6.des. 2009)
b) Fylgibréf með undirskriftarlistum: “Rúmlega þriðjungur á tíu dögum! (1800 undirskriftir)”. (dags. 27. nóv. 2009)
c) Sr. Kristján Björnsson, kirkjuráðsmaður. Erindi frá Hirti Þórarinssyni. (dags.2.des.2009)
d) Bréf frá 12 sóknarbörnum á Selfossi, ásamt grein þeirra í Morgunblaðinu: “ Það er ekki kirkjuþings að kjósa Selfyssingum sóknarprest!” (dags. 4.des.2009)
e) Til kirkjuráðs: f.h. áhugahóps um almennar prestskosningar. (dags. 6. des. 2009)
f) Minnisblað stjórnar kirkjukórsins á Selfossi. (dags. 9. des. 2009)

Kirkjuráð ræddi fram komin erindi og var eftirfarandi bókað:
Kirkjuþing 2009 samþykkti starfsreglur um að sameina Hraungerðisprestakall og Selfossprestakall í eitt prestakall. Starfsreglur kirkjuþings eru bindandi og því er ekki unnt að verða við ósk sóknarbarna um að auglýsa embætti sóknarprests og almenna kosningu. Við sameininguna fækkaði prestaköllum um eitt þannig að nýtt prestakall varð ekki til og af þeim sökum hvorki skylt né heimilt að auglýsa embætti sóknarprests. Sóknarprestur Hraungerðisprestakalls er því sóknarprestur í hinu sameinaða prestakalli.

Biskup Íslands hefur ákveðið að auglýsa eftir presti til starfa í Selfossprestakalli með sérstakar skyldur við Selfosskirkju. Samkvæmt starfsreglum kirkjuþings geta sóknarbörn óskað eftir almennri kosningu um embætti prests innan tveggja vikna frá því að auglýsing birtist. Ella mun valnefnd prestakallsins velja prestinn.

6. Önnur mál

a) Erindi frá þóknananefnd kirkjunnar
Lagt var fram erindi frá Þóknananefnd sem hefur samþykkt að einingaverð haldist óbreytt, en einingafjöldi verði lækkaður um 10%. Nú er einingaverð 1.648 kr. og hefur sú fjárhæð verið óbreytt frá 2007.

b) Nefnd um heildarskipan þjónustu kirkjunnar.
Kirkjuráð samþykkti að skipa eftirtalda í nefndina:

  • Sr. Agnes Sigurðardóttir, prófastur, Bolungarvík.
  • Sr. Gísli Jónasson, prófastur, Breiðholtskirkju, Reykjavík.
  • Dagný Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri ÆSKR og kirkjuþingsfulltrúi, Reykjavík.
  • Sr. Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur og kirkjuþingsfulltrúi, Langholtskirkju, Reykjavík.
  • Katrín Ásgrímsdóttir, sóknarnefndarmaður og kirkjuþingsfulltrúi, Egilsstöðum/Akureyri
  • Magnea Sverrisdóttir, djákni, Hallgrímskirkju/Biskupsstofu.
  • Sr. Kristján Björnsson, sóknarprestur og kirkjuráðsmaður, Vestmannaeyjum.
  • Marínó Þorsteinsson, formaður sóknarnefndar Dómkirkjusóknar og formaður leikmannaráðs.
  • Sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, Biskupsstofu, og er hann formaður nefndarinnar.

Starfsmaður nefndarinnar verður sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, verkefnastjóri, Biskupsstofu. Framkvæmdanefnd starfi með þremur nefndarmönnum ásamt starfsmanni.

c) Skipun fasteignanefndar kirkjunnar.
Lögð var fram samantekt úr nýjum starfsreglum um prestssetur og aðrar fasteignir þjóðkirkjunnar nr. 950/2009 um hlutverk þeirra sem koma að umsýslu fasteigna þjóðkirkjunnar.
Kirkjuráð ákvað að skipa Guðmundi Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóra kirkjuráðs, sem formann nefndarinnar og Jóhann E. Björnsson, kirkjuráðsmann sem varamann hans. Þessi skipun gildir frá 1. janúar 2010 til eins árs. Jafnframt voru skipuð skv. tilnefningu kirkjuþings kirkjuþingsfulltrúarnir Helga Halldórsdóttir, Vík í Mýrdal, sem aðalmaður og Margrét Björnsdóttir, Kópavogi, sem varamaður hennar og Lárus Ægir Guðmundsson, Skagaströnd, sem aðalmaður og Bjarni Kr. Grímsson, Reykjavík, sem varamaður hans. Sr. Kristjáni Björnssyni var falið að skrifa drög að erindisbréfi fyrir nefndina. Skipun sviðstjóra fasteignasviðs ásamt öðru starfsfólki var frestað til næsta fundar.

Jafnframt var ákveðið að Ragnhildur Benediktsdóttir gegni starfi aðstoðarframkvæmdastjóra kirkjuráðs samhliða starfi sínu sem skrifstofustjóri Biskupsstofu.

d) Stjórn prestssetra og starfshópar kirkjuráðs.
- Stjórn prestssetra, ráðgjafarhópur kirkjuráðs um fasteignir og bygginga- og listanefnd leggjast af við gildistöku nýju starfsreglnanna um fasteignir kirkjunnar þann 1. janúar 2010. Kirkjuráð þakkar stjórnar- og  nefndarmönnum vel unnin störf.
- Lagahópur kirkjuráðs. Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri á Biskupsstofu, tekur sæti Guðmundar Þórs Guðmundssonar, í lagahópi.
- Fjármálahópur. Sr. Halldór Gunnarsson tekur sæti í fjármálahópi.

e) Skipun fagráðs um meðferð kynferðisbrota.
Kirkjuráð lítur svo á að nýjar starfsreglur breyti ekki skipan fagráðsins og að það starfi út skipunartímann.

f) Tímabundin ráðning forstöðumanns Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Kirkjuráð frestaði málinu til næsta fundar.

g) Stefnumótun þjóðkirkjunnar, lokamat 2010.
Málinu var vísað til biskups.

h) Tjarnaprestakall, Kjalarnessprófastsdæmi.
Lagt var fram erindi frá sr. Báru Friðriksdóttur, sóknarpresti í Tjarnaprestakalli, en hún telur mjög brýnt að prestsstaða verði stofnuð við prestakallið. Í prestakallinu eru tvær sóknir, Ástjarnarsókn (íbúar 1.des. 2008 eru 6050) og Kálfatjarnarsókn (íbúar eru 1215). Kirkjuráð vísaði málinu til biskups til frekari skoðunar.

i) Skálholt
Lögð var fram og kynnt tillaga að bráðabirgðaþjónustuhúsi í Skálholti sem stjórn Skálholts hefur fjallað um. Húsið er um 120 fm. og er áætlaður kostnaður við kaup á húsinu og nauðsynlega framkvæmd við að koma því fyrir við vesturenda skólans við bílastæði er um 8-9 millj. kr. 

j) Erindi frá sóknarnefnd Stóra-Dalssóknar
Lagt var fram erindi frá formanni sóknarnefndar í Stóra- Dalssókn, Rangárvallaprófastsdæmi, þar sem lýst er óánægju með ákvörðun kirkjuþings 2009 um að fella Stóra- Dalssókn undir Víkurprestakall. Biskupafundur hafði lagt fyrir kirkjuþing 2009 tillögu um að sóknin tilheyrði Breiðabólsstaðarprestakalli, Rangárvallaprófastsdæmi. Kirkjuþing féllst ekki á þá tillögu biskupafundar.

k) Skipulag starfa kirkjuráðs 2010.
Bókaðir voru fundir kirkjuráðs fram að kirkjuþingi í nóv. 2010.

Fundi var frestað fyrri daginn kl. 15,50. Fundi seinni daginn lauk kl 17.

Deila með öðrum: Facebook Twitter