Málstofa um tilkynningaskyldu og trúnaðarskyldu

Aðalbygging Háskóla Íslands - mynd: Árni Svanur Daníelsson

Í ljósi umræðu undangenginna daga, þar sem m.a. hafa vaknað upp spurningar um tilkynningaskyldu presta skv. ákvæði barnaverndarlaga og trúnaðarksyldu þeirra, sbr. lög um meðferð sakamála, boðar Rannsóknarstofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni í samstarfi við Lagastofnun Háskóla Íslands til opinnar málstofu í Lögbergi.

Innanndyra í kirkjunni 2010

Barnaguðsþjónusta

Hin árlegu Innandyranámskeið eru að hefjast og verður það fyrsta haldið í Seljakirkju í Reykjavík á morgun, 30. ágúst kl. 17 og í Keflavíkurkirkju og í Holti í Önundarfirði miðvikudaginn 1. september. Námskeiðin verða á 10 stöðum um landið og eru þau ætluð öllum þeim sem koma að barna- og æskulýðsstarfi kirkjunnar, hvort heldur eru vígðir þjónar eða leikmenn, launaðir starfsmenn eða sjálfboðaliðar.

Hvatning til samstöðu um úrbætur

Í bréfi til starfsfólks kirkjunnar laugardaginn 28. ágúst nefndi Karl Sigurbjörnsson fimm atriði til að kirkjan geti brugðist betur við kynbundnu ofbeldi.

Kirkjan og kynferðisofbeldi: Fimm hádegiserindi í Háskóla Íslands

Aðalbygging Háskóla Íslands

Frá mánudegi til föstudags, 30. ágúst til 3. september 2010, kl. 12.00-13.00, verða haldin fimm erindi um kirkjuna og kynferðisofbeldi á vegum Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands.

Hádegisfundur um trúnaðar- og þagnarskyldu presta

Lagadeild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir hádegisfundi um trúnaðar- og þagnarskyldu presta og tilkynningarskyldu fagstétta, þ.m.t. presta, samkvæmt barnaverndarlögum.

Samkirkjulegt átak gegn kynferðislegu ofbeldi

Kristnar kirkjur á Íslandi mótmæla ofbeldi

Þriðjudaginn 31. ágúst næstkomandi mun samstarfshópur á vegum Þjóðkirkjunnar og annarra kristinna trúfélaga hleypa af stokkunum átaki gegn kynferðislegu ofbeldi. Alls taka 15 trúfélög þátt í átakinu.

Þrettándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð

Sunnudagurinn 29. ágúst er þrettándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum.

Kirkjan mótmælir ofbeldi gegn konum

Pétur Björgvin Þorsteinsson

Ég hef horft á biskupa, presta, djákna, æskulýðsfulltrúa og fleiri í söfnuðum íslensku þjóðkirkjunnar nota þessa áætlun sem og önnur verkfæri til að taka á því alvarlega vandamáli sem ofbeldi gegn konum er, segir Pétur Björgvin Þorsteinsson í pistli á trúmálavef kirkjunnar.

Trúa frásögum þolenda

Kirkjuráð samþykkti eftirfarandi yfirlýsingu á fundi sínum  þann 25. ágúst 2010:

Kirkjuráð hefur átt fundi með Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur og Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur þar sem þær lýstu sögu sinni sem þolendur kynferðisbrota. Kirkjuráð trúir frásögnum þeirra og tekur undir orð biskups Íslands í fjölmiðlum í dag þess efnis.

Undirbúa tillögur að rannsóknarnefnd

Forsætisnefnd kirkjuþings

Kirkjuráð ákvað á fundi sínum í dag, 25. ágúst 2010, að beina því til forsætisnefndar kirkjuþings að undirbúa fyrir kirkjuþing 2010 tillögur að rannsóknarnefnd til þess að rannsaka alla starfshætti og viðbrögð kirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni, biskupi, um kynferðisbrot.