Þrettándi sunnudagur eftir þrenningarhátíðSunnudagurinn 29. ágúst er þrettándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum. Kirkjan mótmælir ofbeldi gegn konumÉg hef horft á biskupa, presta, djákna, æskulýðsfulltrúa og fleiri í söfnuðum íslensku þjóðkirkjunnar nota þessa áætlun sem og önnur verkfæri til að taka á því alvarlega vandamáli sem ofbeldi gegn konum er, segir Pétur Björgvin Þorsteinsson í pistli á trúmálavef kirkjunnar. Trúa frásögum þolendaKirkjuráð samþykkti eftirfarandi yfirlýsingu á fundi sínum þann 25. ágúst 2010: Kirkjuráð hefur átt fundi með Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur og Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur þar sem þær lýstu sögu sinni sem þolendur kynferðisbrota. Kirkjuráð trúir frásögnum þeirra og tekur undir orð biskups Íslands í fjölmiðlum í dag þess efnis. Undirbúa tillögur að rannsóknarnefndKirkjuráð ákvað á fundi sínum í dag, 25. ágúst 2010, að beina því til forsætisnefndar kirkjuþings að undirbúa fyrir kirkjuþing 2010 tillögur að rannsóknarnefnd til þess að rannsaka alla starfshætti og viðbrögð kirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni, biskupi, um kynferðisbrot. Mun hlýða tilkynningaskyldu hér eftir sem hingað tilKarl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, og sr. Geir Waage áttu fund í morgun vegna ummæla sr. Geirs um tilkynningaskyldu samkvæmt barnaverndarlögum. Á fundinum kom fram að sr. Geir muni hér eftir sem hingað til hlýða þeirri tilkynningaskyldu og samsvarandi ákvæðum í siðareglum þjóðkirkjunnar. AfsökunarbeiðniUndanfarið hafa mál þjóðkirkjunnar verið rædd af miklum tilfinningahita sem eðlilegt er vegna þess sem kom fram í máli Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur um föður sinn eftir kirkjuráðsfund með henni 17. ágúst s.l. Í framhaldi hefur verið fjallað á ný um þau mál sem komu upp fyrir 15 árum og voru þá leidd til lykta af kirkjunni eftir þeim leiðum sem þá voru færar. Ríkíni hátíð á HólumAnnað þing Ríkíní, félags um forna tónlist verður haldið á Hólum í Hjaltadal helgina 27. til 29. ágúst. Félagið var stofnað fyrir tveimur árum af áhugafólki og fræðimönnum um fornan tónlistararf Íslendinga. Sr. Ágúst Sigurðsson látinnSéra Ágúst Sigurðsson, fyrrverandi sóknarprestur, rithöfundur og fræðimaður, lést að Líknardeild Landspítalans í Kópavogi aðfararnótt sunnudagsins 22. ágúst sl. Ágúst var fæddur á Akureyri 15. mars 1938, sonur hjónanna sr. Sigurðar Stefánssonar, síðar vígslubiskups Hólastiftis, og eiginkonu hans frú Maríu Ágústsdóttur. Yfirlýsing frá biskupi Íslands um tilkynningaskyldu prestaFyrirmæli barnaverndarlaga taka af öll tvímæli um tilkynningaskyldu presta að hún gengur framar ákvæðum laga eða siðareglna um þagnarskyldu. Gengið er út frá því að velferð barnsins hafi forgang. Það er í fullu samræmi við hina kristnu siðfræði og mannsskilning sem setur barnið og velferð þess fremst. Tólfti sunnudagur eftir þrenningarhátíðSunnudagurinn 22. ágúst er tólfti sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum. |
![]() |
||||