Matarúthlutun Hjálparstarfsins hefst aftur eftir sumarlokunMatarúthlutun Hjálparstarfs kirkjunnar hefst aftur eftir sumarlokun miðvikudaginn 18. ágúst kl. 12-17. Föt eru afgreidd á þriðjudögum í samræmi við ákvörðun félagsráðgjafa eftir viðtal. Eins og undanfarin ár er veittur styrkur vegna skólabyrjunar eftir aðstæðum og mat félagsráðgjafa. Þjóðkirkjan biður ekki um hlífð heldur sanngirniÞjóðkirkjan hefur þegar tekið á sig gífurlegar skerðingar frá efnahagshruni og er reiðubúin til að axla þær byrðar sem ýtrasta sanngirni krefst. Þjóðkirkjan biður því ekki um hlífð heldur skilning og réttsýni. Barnaníð og barnaverndBarnaníð á aldrei að hafa forgang yfir barnavernd hver sem í hlut á og því er hvert og eitt okkar undir tilkynningaskyldu til barnaverndar ef okkur grunar að líf og heilsa barns sé í veði. Við þurfum sem þjóðfélag að horfast í augu við það sértæka ofbeldi sem konur og börn búa við vegna misréttis kvenna og karla í samfélaginu í stað þess að tala það niður. Ellefti sunnudagur eftir þrenningarhátíðSunnudagurinn 15. ágúst er ellefti sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum. Kirkjan og kynferðisbrotÍ ljósi umræðu dagsins er rétt að minna á eftirfarandi aðgerðir af hálfu þjóðkirkjunnar undanfarin misseri varðandi kynferðisbrot og hvernig má koma í veg fyrir þau á vettvangi kirkjunnar. Helgiganga og messa á DagverðarnesiSunnudaginn 15. ágúst kl. 14 verður messað í Dagverðarnesskirkju á Fellsströnd en kl. 12.30 verður helgiganga í nágrenni kirkjunnar. Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir þjónar fyrir altari og sr. Gunnþór Þ. Ingason prestur á sviði þjóðmenningar prédikar en þau leiða einnig helgistundir við Altarishorn og Kirkjuhóla fyrir messu. Innviðir kærleiks- og velferðarþjónustu mega ekki brestaÍ ræðu sinni við setningu aukakirkjuþings ræddi Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, um fjármál þjóðkirkjunnar, fjárhagsleg tengsl ríkis og kirkju og um hlutverk kirkjunnar við kærleiks- og velferðarþjónustu í samfélaginu. Kirkjan er ekki að skorast úr leik!Kirkjan vill axla byrðar eins og allir. Starfsmönnum verður fækkað og laun verða lækkuð. En það var skoðum allra þeirra sem sóttu kirkjuþingið að niðurskurður til kirkjunnar ætti að haldast í hendir við niðurskurð til velferðarmála. Aukakirkjuþing fjallar um fjármál og niðurskurðÍ dag fór fram aukakirkjuþing í Grensáskirkju. Til þingsins var kallað til að fjalla um afstöðu kirkjuþings til kröfu ríkisvaldsins um 9% niðurskurð fjárframlaga til þjóðkirkjunnar á árinu 2011 vegna aðstæðna í efnahagsmálum landsins. Gef oss í dag vort daglegt brauð - ágústhefti VíðförlaÁgústhefti Víðförla 2010 er helgað ellefta heimsþingi Lútherska heimssambandsins sem var haldið í Stuttgart 20.-27. júlí. Meðal efnis eru viðtal við Munib Younan, nýkjörinn forseta LH, umfjöllun um skilaboð heimsþingsins, forvarnarátak gegn HIV/AIDS. |
![]() |
||||