Fjármál rædd á aukakirkjuþingi í Grensáskirkju

Kirkjuþing 2009 - setning

Í dag er haldið aukakirkjuþing í Grensáskirkju. Eitt mál liggur fyrir þinginu: Umræða um viðbrögð kirkjunnar við kröfu ríkisvaldsins um niðurskurð fjárframlaga til þjóðkirkjunnar á árinu 2011 vegna aðstæðna í efnahagsmálum landsins.

Tíundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð

Sunnudagurinn 8. ágúst er tíundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum.

Útimessa í Valþjófsstaðarprestakalli

Útimessa í Valþjófsstaðarprestakalli - kort

Hin árlega útimessa í Valþjófsstaðarprestakalli verður að þessu sinni í mynni Sanddals að austan sunnudaginn 8. ágúst 2010, kl. 14:00.

Lesa áfram á vef Múlaprófastsdæmis ...

Þorvaldur Halldórsson heimsækir Múlaprófastsdæmi

Þorvaldur Halldórsson í Múlaprófastsdæmi

Um verslunarmannahelgina var tónlistarmaðurinn góðkunni, Þorvaldur Halldórsson, á ferð í Múlaprófastsdæmi og leiddi tónlistarflutning í guðsþjónustum í þremur kirkjum með sínum einstaka hætti. Með honum í för var eiginkona hans, Margrét Scheving, sem leiddi sönginn ásamt honum.

Afmælishátíð í Fnjóskadal

Illugastaðakirkja - mynd: Helga Kvam

Hálskirkja og Illugastaðakirkja eru 150 ára á þessu ári. Af því tilefni verður efnt til hátíðar sunnudaginn 8. ágúst. Hátíðarguðsþjónusta verður í Hálskirkju kl. 11.00 þar sem Jón Aðalsteinn Baldvinsson Hólabiskup predikar.

Lesa áfram á vef Laufásprestakalls ...

Níundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð

Sunnudagurinn 1. ágúst er níundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum.

Verslunarmannahelgin um landið

Messað í Ábæjarkirkju. Mynd: Sigurður Ægisson

Um Verslunarmannahelgina verður víða messað á fáfarnari stöðum auk hefðbundins helgihalds í kirkjum landsins.  Upplýsingar um helgihald um verslunarmannahelgi er að finna í Dagbók kirkjunnar en hér er tæpt á nokkrum.

Laust starf hjá Lúterska heimssambandinu í Genf

LWF2010 - Vort daglegt brauð

Lúterska heimssambandið auglýsir lausa stöðu verkefnastjóra í samfélagssiðfræði og þvertrúarlegum samskiptum (Social Ethical Witness and Interfaith Relations) í deild Guðfræði og rannsókna hjá höfuðstöðvum LH í Genf. Frestur til að skila umsóknum rennur út 17. september 2010. 

Send til að næra, þjóna og vera málsvarar

LWF2010 - Kosið á þingfundi

Á lokadegi lútherska heimsþingsins í Stuttgart var gengið frá skilaboðum þingsins til aðildarkirknanna. Skjalið inniheldur sýn, hvatningu og skuldbindingu til að vinna að málum sem eru knýjandi í lífi kirkjunnar og samfélagsins.

Samfélag er gjöf frá Guði

LWF2010 - Sr. Martin Junge, verðandi framkvæmdastjóri LH

Martin Junge, sem verður næsti framkvæmdastjóri LH, ávarpaði heimsþingið í Stuttgart í gær. Hann talaði um bakgrunn sinn, hlutverk trúarinnar í heiminum og áherslur í starfi LH næstu árin.