Valið í Hjallaprestakall

Valnefnd Hjallaprestakalls í Kópavogi ákvað á fundi sínum 5. október s.l. að leggja til að Sigfús Kristjánsson guðfræðingur verði skipaður prestur frá 1. nóvember n.k.

Sjö sækja um Fellaprestakall

Sjö umsækjendur sækja um embætti sóknarprests í Fellaprestakalli í Reykjavík. Umsóknarfrestur rann út þann 5. október september síðastliðinn.

Innsetning prests í Tjarnaprestakalli

Á átjánda sunnudegi eftir þrenningarhátíð var sr. Carlos Ferrer settur inn í embætti sóknarprests í Tjarnaprestakalli. Það var dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur í Kjalarnessprófastsdæmi sem setti Carlos inn í embættið.

„Þú nýtur viðurkenningar Guðs ...“

„Yvette er 36 ára. Hún býr í San Francisco, en er fædd og uppalin í Frakklandi. Snemma varð sundrung í sambandi hennar við foreldra sína, líf sitt og sjálfsmynd. Yvette fæddist nefnilega sem drengur ...“ segir dr. Bo Larsson í prédikun á 18. sunnudegi eftir þrenningarhátíð.

Lesa áfram ...

Fréttir og fordómar

Hvar enda fréttir og fordómar taka við? Eiga fréttamenn að miðla eigin fordómum í fréttaflutningi sínum? Halldór Reynisson fjallar um málið en tilefnið er umfjöllun fréttamanns á Stöð tvö um málefni presta 18. september s.l.

Lesa áfram ...

Ráðstefna um íslenskar kvenna- og kynjarannsóknir

Rannsóknarstofa í kvennafræðum stendur fyrir ráðstefnu um íslenskar kvenna- og kynjarannsóknir dagana 4. og 5. október næstkomandi. Þar verða meðal annars málstofur um ungt fólk, kyn og ofbeldi og um ofbeldi, þjáningu og frelsun í femínískri guðfræði.

Lesa áfram ...

Umfangsmikið barna- og unglingastarf KFUM og K

Um 130 sjálfboðaliðar koma að starfi KFUM og K í vetur þar af yfir 100 í 30 barna- og unglingadeildum víðsvegar um landið, sums staðar í samstarfi við þjóðkirkjuna.

Nýr svefnskáli í byggingu í Skálholtsskóla

Þegar Skálholtsskóli var teiknaður fyrir nær 30 árum var gert ráð fyrir tveimur svefnálmum með 18 tveggja manna herbergi. Það er þó ekki fyrr en nú sem seinni álman er byggð.

Syngjandi tjáning kærleikans

„Söngurinn er tjáning hjartans og lyftir andanum í átt til almættisins. “ segir Þorvaldur Víðisson í pistli vikunnar þar sem kastljósinu er beint að kirkjustarfi og barnakórum.

Lesa áfram ...

Þjóðahátíð á Tálknafirði

Á Tálknafirði verður haldin þjóðahátíð 4.-5. október. Þá kynna íbúar á svæðinu sína eigin menningu en margir þeirra eru komnir langt að. Hluti málþingsins „Á sama báti. Fjölmenningarlegt samfélag og trúarbrögð þess“ verður fluttur laugardaginn 5. október.kl 16.