Kirkjuþing 2002 hefst á sunnudag

Kirkjuþing 2002 hefst sunnudaginn 13. október n.k. og stendur í viku. Þingið verður haldið í Grensáskirkju í Reykjavík en að auki verður sérstök dagskrá á sunnudagskvöld á Eyrarbakka í tilefni af 150 ára afmæli barnaskólans þar.

Umburðarlyndi og ólíkar lífsskoðanir í skólastarfi

Hvað felst í umburðarlyndi í fjölmenningarsamfélagi? Hvers vænta foreldrar barna sem tilheyra minnihlutahópum? Þessar og fleiri spurningar verða ræddar á málþingi um umburðarlyndi og ólíkar lífsskoðanir í skólastarfi, þriðjudaginn 15. október næstkomandi.

Lesa áfram ...

Prestsþjónusta - fyrir alla landsmenn

„Prestar íslensku þjóðkirkjunnar mynda þéttriðið þjónustunet um allt land, og hefur svo verið um aldir ...“ segir Jón Helgi Þórarinsson í pistli vikunnar sem fjallar um prestsþjónustuna í landinu.

Lesa áfram ...

Opið hús hjá Nýrri dögun

Fimmtudaginn 10. október verður haldið opið hús á vegum Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð.

Verkefnisstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs ráðinn

Sr. Halldór Reynisson hefur verið ráðinn verkefnisstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs Biskupsstofu frá 1. október s.l.

Örþing um prestsímynd

Hvað er líkt og ólíkt í starfi presta, sóknarpresta, sérþjónustupresta, þéttbýlispresta og drefibýlispresta? Hver er sjálfsímynd stéttarinnar, hver er sérleikur starfanna og hvað sameinar?

Valið í Hjallaprestakall

Valnefnd Hjallaprestakalls í Kópavogi ákvað á fundi sínum 5. október s.l. að leggja til að Sigfús Kristjánsson guðfræðingur verði skipaður prestur frá 1. nóvember n.k.

Sjö sækja um Fellaprestakall

Sjö umsækjendur sækja um embætti sóknarprests í Fellaprestakalli í Reykjavík. Umsóknarfrestur rann út þann 5. október september síðastliðinn.

Innsetning prests í Tjarnaprestakalli

Á átjánda sunnudegi eftir þrenningarhátíð var sr. Carlos Ferrer settur inn í embætti sóknarprests í Tjarnaprestakalli. Það var dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur í Kjalarnessprófastsdæmi sem setti Carlos inn í embættið.

„Þú nýtur viðurkenningar Guðs ...“

„Yvette er 36 ára. Hún býr í San Francisco, en er fædd og uppalin í Frakklandi. Snemma varð sundrung í sambandi hennar við foreldra sína, líf sitt og sjálfsmynd. Yvette fæddist nefnilega sem drengur ...“ segir dr. Bo Larsson í prédikun á 18. sunnudegi eftir þrenningarhátíð.

Lesa áfram ...