Fimm nýjar kirkjur teknar inn í LH

LWF2010 - Stjórn sambandsins fundar

Á stjórnarfundi Lútherska heimssambandsins 18.-19. Júlí 2010 var samþykkt að veita fimm kirkjum aðild að samfélagi lútherskra kirkna innan LHS. Þessar kirkjur eru allar í Asíu, þrjár frá Myanmar, ein á Indlandi og ein í Nepal. 

Ályktanir um réttlæti, mannréttindi og umhverfisvitund samþykktar í Stuttgart

LWF2010 - Kosið á þingfundi

Afrakstur heimsþings LH liggur annars vegar í ályktunum sem fara í gegnum lagahóp þingsins og hins vegar í skjali sem inniheldur boðskap þingsins til aðildarkirknanna. Á næst síðasta degi þingsins voru nokkar ályktanir um áherslur í starfi LH ræddar og afgreiddar.  

Hvað varð um Melkorku?

Melkorka

Sunnudaginn 1. ágúst næstkomandir verður dagskrá  fyrir unga og aldna um konungsdótturina Melkorku sem numin var á brott frá Írlandi og flutt í Dali. Farið um söguslóðir á fjölskyldubílnum og saga hennar rakin og upplifuð.

HIV/AIDS - forvarnir í þágu lífsins

LWF2010 - Meðlimir úr Betseranai kórnum frá Zimbabwe

LH stendur fyrir átaki í baráttunni við HIV/AIDS faraldurinn sem ógnar lífi og heilsu milljóna manna út um allan heim. Árlega smitast 2.7 milljónir manna af HIV veirunni. Á hverjum degi smitast 3700 fullorðnir, 2500 ungmenni og 1200 börn.  Mikill meirihluti þeirra sem eru sýktir og þeirra sem deyja úr sjúkdómnum búa í Afríku sunnan Sahara. 

Óréttmætar skuldir þjóðríkja ræddar á heimsþingi LH

LWF2010 - Karl Sigurbjörnsson talar á heimsþingi LH í Stuttgart

Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands flutti kveðju til þingsins í Stuttgart í stuttu myndbandi, í dagskrá um óréttmætar skuldir á föstudaginn.  Í kveðjunni kom Karl biskup inn á mannlegu hliðina á fjárhagshruninu á Íslandi árið 2008 og samfélagslega ábyrgð kirkjunnar.

Munib Younan er nýr forseti LH

LWF2010 - Munib Younan, verðandi forseti Lútherska heimssambandsins

Munib Younan sem er biskup Lúthersku kirkjunnar í Jórdaníu og Landinu helga var kosinn forseti LH á þinginu í Stuttgart í morgun. Munib biskup er þekktur sem einlægur baráttumaður fyrir friði og samtali trúarbragðanna í löndunum við botn Miðjarðarhafs.

Íslenskur djákni í stjórn LH

LWF2010 - Magnea Sverrisdóttir, djákni, og sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir

Magnea Sverrisdóttir djákni er nýr fulltrúi þjóðkirkjunnar í stjórn LH. Í stjórninni, sem var kosin á þinginu í Stuttgart í dag, sitja 49 fulltrúar frá öllum heimsálfum. Nýja stjórnin situr fram að næsta heimþingi LH og er æðsta yfirvald LH á milli heimsþinganna.

Áttundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð

Sunnudagurinn 25. júlí er áttundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum.

Kirkjan er samfélag jafnréttis og öryggis

LWF2010 - Frá kvennafundi

Helmingur þátttakenda á heimsþinginu í Stuttgart eru konur. Í þeirra hópi eru biskupar, prestar, djáknar og óvígðir leiðtogar frá öllum heimshornum. Þessi myndarlegi hópur safnaðist saman við upphaf þinghaldsins í morgun og gekk syngjandi inn í salinn, þar sem fram fór kynning og umræða um þau málefni sem kvennafundur LH leggur fyrir þingið.

Frá fordæmingu til sátta – Iðrunarmessa

LWF2010 - Altari fyrirgefningar með ólífugreinum, olíu

Í dag var haldin Iðrunarmessa á heimsþingi LH í Stuttgart. Messan markar þáttaskil í samstarfi lútherskra kirkna og Mennoníta. Afrakstur af áralöngu samtali á LH og samtaka Mennoníta er yfirlýsing sem heimsþingið í Stuttgart tekur undir.