Daglegt brauð eru mannréttindi allra

LWF2010 - Brauð í krossi

Það er til nóg til af brauði til að fæða allan heiminn. Því hlýtur hungrið í heiminum að stafa af misskiptingu gæða. Sum hafa meira en nóg, önnur hafa alltof lítið. Slíkt er óásættanlegt.

Lesa pistilinn á trú.is ...

Fegurð og reisn náungans er brauðið sem nærir okkur

LWF2010 - dr. Rowan Williams, erkibiskup af Kantaraborg

Að gefa og þiggja brauð af hvert öðru snýst ekki bara um efnisleg gæði heldur um mannvirðingu, sagði erkibiskupinn af Kantaraborg, dr. Rowan Williams í aðalfyrirlestri heimsþingsins í Stuttgart í morgun. Hann fjallaði í erindi sínu um þema þingsins í Stuttgart og  þýðingu þess  fyrir kirkjuna sem samfélag gagnkvæmrar næringar.

Daglegt brauð og lútherska kirkjan – yfirlitsræða forseta LH

LWF2010 - Mark Hanson prédikar - ljósmynd: Erick Coll - http://www.flickr.com/photos/52081154@N06/4815059252/

Það er þrenging í heiminum þegar lútherskar kirkjur koma saman til heimsþingsins í Stuttgart, sagði Mark Hanson biskup, forseti Lúterska heimssambandsins (LH), í  yfirlitsræðu sinni við upphaf þingsins. „Stríð geisa, sköpunin stynur undan neysluþunga okkar, flóttafólk leitar skjóls, þau sem hafa ekki aðgang að hreinu vatni og heilsugæslu eru ofurseld veikindum og dauða.“

Messað á Þönglabakka í Fjörðum

Messað á Þönglabakka

Næstkomandi sunnudag, þann 25. júlí kl. 14, verður messað í eyðibyggðinni á Þönglabakka í Fjörðum. Þar stóð kirkja sem tekin var ofan árið 1944 og er messað á kirkjustaðnum.

Sjá nánar á vef Þönglabakkakirkju.

Land sögu, sigra og sorgar - heimakirkjan kynnir sig

Gef oss í dag vort daglegt brauð - á spænsku

Á fyrsta kvöldi heimsþingsins í Stuttgart var glæsileg dagskrá á vegum heimakirkjunnar sem býður þing Lh velkomið til sín í þetta sinn. Evangelíska þjóðkirkjan í Württemberg kynnti sögu sína og þýsku þjóðarinnar með myndum, fjölbreyttri tónlist og leik. 

Þitt fólk er mitt fólk – opnunarguðsþjónusta heimsþingsins

LWF2010 - Altari Stiftskirche í Stuttgart

Enn heitara var en ella í opnunarguðsþjónustu heimsþingsins í Stuttgart þar sem ofan á sumarhitann bættust fjölmargir ljóskastarar sem lýstu upp kirkjuskipið fyrir sjónvarpsútsendingu.

Gef oss í dag vort daglegt brauð – heimsþing hefst á morgun

LWF2010 - Vort daglegt brauð

Á morgun hittast fulltrúar frá 140 lútherskum kirkjum frá öllum heimshornum í Stuttgart í tengslum við heimsþing Lútherska heimssambandsins (Lh). Yfirskrift þingsins er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“. 

Metþáttaka í pílagrímagöngu

David Mouncer les um skírn Jesú fyrir pílagrímana.

Um 60 pílagrímar gengu frá Þingvöllum á Skálholtshátíð í einmuna blíðu dagana 17. - 18. júlí. Þetta er í sjöunda sinn sem slík ganga er skipulögð og hafa aldrei fleiri tekið þátt í henni.

Guð, gróður og grill á Nónholti

Mosi í hrauni - mynd: Árni Svanur Daníelsson

Næsta sunnudag 18. júlí er komið að árlegri sameiginlegri messu nágrannasóknanna þriggja, Árbæjar, Grafarholts og Grafarvogs í Reykjavík. Messan er haldin á Nónholti innst í Grafarvoginum kl. 11, en Nónholtið er á mörkum sóknanna þriggja.

Sjöundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð

Sunnudagurinn 18. júlí er sjöundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum.