Unga kirkjan - Hólahátíð tileinkuð unga fólkinuHólahátíð verður haldin 13. - 15. ágúst næstkomandi. Að þessu sinni verður hún sérstaklega tileinkuð unga fólkinu. Yfirskrift dagskrár fyrir unga fólkið sem mætir á Hólahátíð er „Unga kirkjan“ . Skálholtshátíð 2010Skálholtshátíð 2010 verður haldin næstu helgi, dagana 17. og 18. júlí, en hún er að vanda haldinn þann sunnudag er næstur er Þorláksmessu á sumri. Morgunsöngur verður báða dagana kl. 9.00 í kirkjunni og aftansöngur kl. 18.00. Pílagrímaganga á SkalholtshátíðHin árlega pílagrímaganga frá Þingvöllum til Skálholts verður gengin 17.-18. júlí nk. Gangan hefst í Þingvallakirkju kl. 10 árdegis laugardaginn 17. júlí. Sjötti sunnudagur eftir þrenningarhátíðSunnudagurinn 11. júlí er sjötti sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum. Hið íslenska biblíufélag 195 áraHinn 10. júlí næstkomandi fagnar Hið íslenska biblíufélag 195 ára afmæli. Stofnfundur þess var haldinn fyrrnefndan dag árið 1815 á heimili sr. Geirs Vídalín, biskups, en biskupsgarður var þá að Aðalstræti 10 en það hús stendur enn. Félagið telst af þessum sökum elsta starfandi félag á Íslandi. Nýr vefur um íslenskar kirkjurNý íslenskur vefur, kirkjukort.net, hefur verið opnaður. Á vefnum eru upplýsingar um allar kirkjur og bænhús á Íslandi. Vefurinn byggir á Google Maps og geta notendur því auðveldlega séð staðsetningu allra kirkna. Fimmti sunnudagur eftir þrenningarhátíðSunnudagurinn 4. júlí er fimmti sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestra og bænir og sálm dagsins er hægt að lesa á vefnum. Sumartónleikar í Skálholtskirkju hefjast um helginaSumartónleikar í Skálholtskirkju hefjast 3. júlí. Í ár er 35 ára afmæli hátíðarinnar, en fyrstu tónleikarnir voru haldnir 12. júlí 1975. Sunnudaginn fjórða júlí verða hátíðartónleikar þar sem fluttur verður Maríuvesper eftir Claudio Monteverdi. Gildin á Þjóðfundinum 2009 á bókGildin sem valin voru á Þjóðfundinum 2009 verða viðfangsefni bókar sem Skálholtsútgáfan gefur út í haust. Útgáfan hefur gert samning við Gunnar Hersvein rithöfund og heimspeking um að skrifa verkið. Boðað til aukakirkjuþings 7. ágústBoðað er til aukakirkjuþings 2010 laugardaginn 7. ágúst næstkomandi kl. 9.00 í Grensáskirkju í Reykjavík. Gert er ráð fyrir því að aukaþingið standi aðeins þennan eina dag. |
![]() |
||||