Hópur presta, djákna og guðfræðinga hlýtur mannréttindaverðlaun Samtakanna 78

Merki Samtakanna 78, hagsmuna- og baráttusamtaka samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender fólks á Íslandi.

Stór hópur presta, guðfræðinga og djákna hlaut mannréttindaverðlaun samtakanna 78 þegar þau voru veitt í fjórða sinn.

Auður djúpúðga og keltneskar rætur í kristni

Kross til minningar um Auði djúpúðgu

Um 50 manns tóku þátt í helgigöngu á Krosshólaborg fyrir skömmu. Gengið var að Auðartóft og Hvammskirkju og hugað að írskum rótum kristni á Íslandi, meðal annars Auði djúpúðgu og heilögum Kólumkilla. Myndskreytta frásögn er að finna á vef Dalaprestakalls.

Lesa á vef Dalaprestakalls.

Fjórði sunnudagur eftir þrenningarhátíð

Kirkjuárið - Þrenningarhátíð

 Sunnudagurinn 27. júní er fjórði sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestra, bæn og sálm dagsins má lesa á vefnum.

Alþjóðlegt mót Lúterskrar hjónahelgi á Laugarvatni

Merki Lúterskrar hjónahelgar

Rúmlega þrjú hundruð manns sækja alþjóðlegt mót sem hefst í dag á vegum samtaka er kallast Lútersk hjónahelgi. Samtökin halda námskeið eða hjónahelgar reglulega þar sem hjón taka frá tíma til að rækta samband sitt og gera gott hjónaband betra.
 

Helgistund á Esjubergi á Kjalarnesdögum

Kirkjutoft við Esjuberg, Kjalarnesi. Úr mynd frá Ferlir.is

Sunnudaginn 27. júní nk. kl 14 minnast Kjalnesingar þess að samkvæmt Landnámu stóð vagga kristinnar trúar á Kjalarnesi þar sem Örlygur Hrappson byggði fyrstu kirkju á Íslandi.

Tölur úr safnaðarstarfinu

Sr. Gísli Jónasson

Sr. Gísli Jónasson prófastur ritar grein á trúmálavefnum þar sem hann birtir tölur úr safnaðarstarfi Reykjavíkurprófastsdæmis eystra síðasta vetur.

Ný lög - nýtt form hjónavígslu

Hringar og Biblía - mynd af vef sænsku kirkjunnar

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent prestum til reynslu nýtt form fyrir hjónavígslu og tekur það mið af nýjum hjúskaparlögum sem taka gildi n.k. sunnudag.

Tvennir tónleikar í Hallgrímskirkju um helgina

Orgelið í Hallgrímskirkju

Tvennir tónleikar verða helgina 26. og 27. júní á vegum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju þar sem Jessica Buzbee, básúnuleikari mun leika með Herði Áskelssyni, orgelleikara.

Nýtt hjónavígsluform tilbúið fyrir helgi

Hringar og Biblía - mynd af vef sænsku kirkjunnar

Verið er að leggja lokahönd á nýtt hjónavígsluform sem sent verður til presta Þjóðkirkjunnar fyrir helgi. Formið tekur mið af nýjum hjúskaparlögum og verður heimilt að nota það fyrir öll pör er biðja um hjónavígslu.

Árdegismessa og miðnæturmessa í Hallgrímskirkju á Jónsmessu

Hallgrímskirkja

Á Jónsmessu, miðvikudaginn 23. júní, verður messa í Hallgrímskirkju  kl. 23. Séra Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir flytur hugvekju og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni og djáknunum Magneu Sverrisdóttur og Rósu Kristjánsdóttur. Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir messusönginn. Stjórnandi og organisti er Hörður Áskelsson.