Ný lög - nýtt form hjónavígsluKarl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent prestum til reynslu nýtt form fyrir hjónavígslu og tekur það mið af nýjum hjúskaparlögum sem taka gildi n.k. sunnudag. Tvennir tónleikar í Hallgrímskirkju um helginaTvennir tónleikar verða helgina 26. og 27. júní á vegum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju þar sem Jessica Buzbee, básúnuleikari mun leika með Herði Áskelssyni, orgelleikara. Nýtt hjónavígsluform tilbúið fyrir helgiVerið er að leggja lokahönd á nýtt hjónavígsluform sem sent verður til presta Þjóðkirkjunnar fyrir helgi. Formið tekur mið af nýjum hjúskaparlögum og verður heimilt að nota það fyrir öll pör er biðja um hjónavígslu. Árdegismessa og miðnæturmessa í Hallgrímskirkju á JónsmessuÁ Jónsmessu, miðvikudaginn 23. júní, verður messa í Hallgrímskirkju kl. 23. Séra Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir flytur hugvekju og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni og djáknunum Magneu Sverrisdóttur og Rósu Kristjánsdóttur. Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir messusönginn. Stjórnandi og organisti er Hörður Áskelsson. Helgistund og kvöldganga á Jónsmessu í KrýsuvíkVinafélag Krýsuvíkurkirkju gengst fyrir stuttri en táknrænni helgistund í Krýsuvík að kvöldi Jónsmessu 24. júní kl. 20. Sr. Gunnþór Ingason og sr. Þórhallur Heimsson stýra henni við grunn Krýsuvíkurkirkju. Menningarstundir í ÞorgeirskirkjuMenningarstundir þrjár verða í Þorgeirskirkju við Ljósavatn í sumar og Tekjustofn safnaðannaÍ grein sem biskup Íslands skrifar kemur fram að mikil skerðing hefur þegar orðið á sóknargjöldum, sem er tekjustofn safnaða. Frekari skerðing kæmi alvarlega niður á þjónustu safnaða, meðal annars barna- og æskulýðsstarfi og því mikla félagsstarfi sem þar fer fram. 32,5 milljónir til hjálparstarfa á HaítiAlls hafa safnast 32,5 milljónir króna til hjálpar - og uppbyggingarstarfa á Haíti á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar. Jónsmessan í umhverfi SkálholtsJónsmessu verður minnst í Skálholti með samveru um umhverfismál. Kennir þar ýmissa grasa; sagt frá lífrænni ræktun í Laugarási og umhverfisáherslum á Sólheimum, miðnæturganga á Vörðufell og erindi er nefnist: "von kristins manns á tímum umhverfisógnar". Geisli frá GuðiKirkjan er ekki aðeins innan þessara veggja, heldur líka þarna úti. Hér á heimilunum í sókninni er börnum kennt að signa sig og biðja í Jesú nafni, og þannig leggja sig í geislann frá Guði. |
![]() |
||||