Jólagleði og jólasorg
Aðventan er gengin í garð með tilheyrandi auglýsingum og hvatningu um að fara af stað, hlaupa og kaupa. Þó er eitthvað öðruvísi en í fyrra. Við finnum það öll, komumst ekki hjá því að sjá og finna að hér hefur orðið breyting. Þeir erfiðleikar í efnahagslífinu sem skullu af þunga á þjóðinni okkar í haust hafa með einhverjum hætti áhrif á okkur öll. Það er allt svolítið lágstemmdara.
Ísland farsælda frón!
„Munum það nú sem fyrr að styrkur okkar sem þjóðar felst í því að við vinnum saman sem heild. Hugsum ekki einungis um eigin hag heldur berum hag náungans fyrir brjósti. Verum tilbúin að hjálpa þeim sem eru hjálparþurfi,“ sagði Erla Björk Jónsdóttir, stud. theol., í prédikun í stúdentamessu í dag.
… engin lán í myntkörfu
Aðventan og jólin eru merkilegur tími. Stundum er þetta tími gleði og birtu í sálinni, en, ef eitthvað er úr lagi gengið getur þetta verið erfiður tími. Aðventa og jól í skugga áfalla og missis eru dimmur tími. Hvernig förum við þá að? Hvað hjálpar? Er einhverja von?
Aðventa og jól í skugga áfalla
Reykjavíkurprófastsdæmin, Ný dögun og Biskupsstofa standa sameiginlega fyrir samveru um sorg og sorgarviðbrögð þriðjudaginn 2. desember n.k. Árbæjarkirkju kl. 20. Þar verður sr. Sigrún Óskarsdóttir með erindi um aðventu og jól í skugga áfalla og missis. Á eftir er svo helgistund í kirkju. Allir eru velkomnir.
Jóladagatal kirkjunnar
Jóladagatal kirkjunnar opnaði á fyrsta sunnudegi í aðventu. Þar er að finna hugmyndir að samverustundum fyrir fjölskylduna á aðventunni, fróðleik um aðventu og jól, sálma til að syngja og margt fleira.
Von í viðjum skuldanna
Látum aðventuljósin verða vonar ljós um betri framtíð á Íslandi! Betra samfélag, með styrkari stoðum undir efnahag og atvinnu, betra viðskiptasiðferði, og enn traustara öryggisnet velferðarinnar. Það munum við áorka með þeim mannkostum sem íslensk þjóð hefur jafnan metið mest: heiðarleika, iðjusemi, réttsýni og umhyggju um náungann.
Helgihald heimilanna á aðventu
Aðventan eða jólafastan er undirbúningstími fyrir jólahátíðina. Mikill tími fer í hinn ytri undirbúning fyrir hið ytra jólahald. Á trú.is er hægt að nálgast leiðbeiningar um helgihald heimilanna á aðventu.
Í sunnudagaskólanum fræðast börn og foreldrar um trúna, syngja og biðja saman. Barnatrú.is er vefur sunnudagaskólans.
Fermingin er tækifæri til að læra um trúna og okkur sjálf. Við tökum frá tíma í kirkjunni og heima og lærum um lífið. Á ferming.is er fermingarblogg kirkjunnar.
Víðförli er fréttabréf þjóðkirkjunnar. Hann er sendur reglulega í tölvupósti. Hægt er að gerast áskrifandi á vefnum.