Prestafélag Íslands

 

Menntadagur PÍ 2012

Menntadagur PÍ.

Málþing um embættisskilning.

Neskirkja, mánudagur 5. mars

Kl. 10:00  Upphafsorð:  sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir formaður PÍ.

Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur.

,,Í viðjum væntinga”.

Innan þjóðkirkjunar virðist ríkja viðvarandi spenna milli væntinga og veruleika. Í orðræðunni hefur þannig verið bent á að megin vandi þjóðkirkjunnar sé að hún mótist frekar af sterkri söguhyggju en skilgreindri framtíðarsýn. Í fyrirlestrinum verður leitast við að varpa  ljósi á stöðu þjóðkirkjunnar í tengslum við greiningu og út frá þeirri framtíðarsýn sem dr. Hjalti Hugason prófessor og dr. Gunnar Kristjánsson prófastur hafa sett fram.

Fyrirspurnir og umræður.

Dr. Gunnar Kristjánsson,

,,Frelsi embættisins”.

Um rætur lútherska prestsembættisins í suðupotti siðbótarinnar, mótun þess í þjóðkirkjuhugsjónum Schleiermachers og hina nýju prestastétt íslensku (þjóð)kirkjunnar árið 2012.

Fyrirspurnir og umræður.

Kl. 12 :30  Hádegismatur.

Kl. 13:00

Herra Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup í Skálholti.

,,Embættisskilningur í þjóðkirkjunni 2012”.

Eitt af því sem best birtir sjálfsskilning hverrar kirkjudeildar er embættisskilningur hennar. Þannig var úti um samtengjandi samtal kristinna kirkjudeilda um skírn, kvöldmáltíð og embætti, þegar kom að embættinu. Í þessu erindi verður stuttlega varpað ljósi á þá umræðu, en einnig yngri rannsóknir á embættinu innan lútherskrar guðfræðihefðar í þeim tilgangi að draga fram tiltekin einkenni þess embættisskilnings sem fyrir er í þjóðkirkjunni í þann mund sem hún kann að verða lögð niður með lögum”.

Fyrirspurnir og umræður

Kl. 14:00

Sr. Dalla Þórðardóttir prófastur.

,,Almennur prestsdómur. Prestar og leikmenn”.

Í erindinu verður leitast við að draga fram hvað það er sem aðgreinir vígða stétt og leikmenn. Öll þau sem skírð eru gegna almennum prestsdómi og bera skyldur.

Spurt verður hvort prestar hafi gengið of langt í því að bera sýnileg tákn vígslunnar þar sem þess gerist ekki þörf, hin vígða stétt hafi hlaðið messuna táknum og atferli, sem hafi fjarlægt kirkjufólkið.  Þá verða samskipti presta athuguð svo og samstarf þeirra og núningur við sóknarnefndir.  Voru tveggja manna prestaköll góð hugmynd?

Fyrirspurnir og umræður.

Kl. 15 Quaff

Kl. 15:30

Dr. Sigríður Guðmarsdóttir sóknarprestur

“Stóllinn og stjórnmálin: Embættisskilningur og pólitísk umræða”

Í erindinu verður tekist á við spurninguna um tengsl hinnar pólitísku umræðu og hins kristna boðskapar. Viðhorf um að þjónar kirkjunnar eigi ekki að skipta sér af pólitík koma oft fram í þjóðfélagsumræðunni. Þau sem eru á öndverðum meiði benda aftur á að fagnaðarerindið tengist samfélagsumræðu með órjúfanlegum hætti og að mörkin milli hins veraldlega og hins andlega mætist í hinu pólitíska orðræðurými. Í erindinu eru mörkin milli prédikunar og pólitíkur könnuð og reynt að finna leiðir til að prédika fagnaðarerindið í pólítísku samfélagi.

Fyrirspurnir og umræður.

Kl. 16:30

Dr. Haukur Ingi Jónasson lektor.

,,Sannleikurinn mun gera okkur frjáls”.

Dr. Haukur mun gera sitt besta til að ögra áheyrendum sínum með hugleiðingum um leiðtogafærni.

Kl. 17:30-19:30

Opið hús á Víðimel 35, 3.h.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Málþingið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

 

Málþingið erður tekið nir gilegt fyrir þau sem ekki eiga heimangengt.  Umræður verða ekki verður tekið  upp og upptakan sett á vefsvæði aðgengilegt fyrir þau sem ekki eiga heimangengt.

Vakin er athygli á að tímasetningar gætu riðlast örlítið og er fólk því hvatt eindregið til að koma og taka þátt allan daginn enda er hugmyndin að vinna frekar á vegum PÍ með það sem fram kemur á þinginu.

Skráning í síðasta lagi 3. mars skráningar sendist á gudbjorgj@simnet.is

Guðbjörg Jóhannesdóttir, 27/2 2012 kl. 19.48

     

    · Kerfi RSS