Lög Prestafélags Íslands
Lög Prestafélags Íslands
Samþykkt á aðalfundi 2008
1. gr. Félagið heitir Prestafélag Íslands. Skammstafað P.Í.2. gr. Félagar geta orðið íslenskir prestar og guðfræðingar
Lögheimili og varnarþing er í Reykjavík.
sem starfa á grundvelli játninga þjóðkirkjunnar og
skuldbinda sig siðareglum félagsins (Codex Ethicus) og
greiða tilskilin félagsgjöld, sbr. 11. grein. Fagaðilar geta
jafnframt orðið þeir prestar og guðfræðingar sem starfa á
samkirkjulegum játningargrundvelli kristinnar kirkju, það er á
grundvelli Postullegu trúarjátningarinnar, Níkeujátningarinnar
og Aþanasíusarjátningarinnar. Þeir, sem ekki tilheyra
Lúthersk-Evangelískri kirkju hafa þó ekki atkvæðisrétt eða
rétt til setu í stjórn P.Í.
Stjórnin sker úr um ágreiningsatriði varðandi félagsaðild.
3. gr. Tilgangur félagsins er að vera málsvari íslenskra presta
og guðfræðinga og gæta hagsmuna þeirra í öllu því er
varðar störf þeirra og embætti, réttindi og skyldur. Félagið er
í senn stéttarfélag og fagfélag presta og guðfræðinga.
Félagið skal standa vörð um heill og sóma félagsmanna,
stuðla að endurmenntun þeirra og efla með þeim stéttvísi og
samstarf.
4. gr. Stjórn félagsins skal kosin til tveggja ára í senn og
skipa hana fimm menn: Formaður, varaformaður, ritari,
gjaldkeri og kjaramálafulltrúi. Formaður skal kosinn fyrst
bundinni kosningu. Hljóti enginn meirihluta atkvæða í fyrstu
umferð skal kosið strax milli þeirra tveggja sem flest atkvæði
hlutu. Að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Enginn
skal sitja lengur í stjórn en þrjú kjörtímabil samfellt. Sé
sitjandi stjórnarmaður kjörinn til formennsku hefst umboð
hans með því kjöri til setu næstu tvö ár. Endurkjör er heimilt,
en enginn skal gegna formennsku samfellt lengur en þrjú
kjörtímabil.
Þrír stjórnarmanna skulu vera úr hópi þeirra sem félagið
semur fyrir um kaup og kjör eða heyra undir kjararáð.
Stjórnin skal og bundin því að kjósa kjaramálafulltrúann úr
þeim hópi.
Stjórnarkosning fer fram á aðalfundi félagsins og ganga tveir
úr stjórn annað árið en þrír hitt. Sé formaður kjörinn úr hópi
sitjandi stjórnar skal þó nýr stjórnarmaður kjörinn í hans
stað til loka kjörtímabils nýkjörins formanns. Tveir varamenn
skulu kosnir í stjórn hverju sinni til eins árs. Fyrsti varamaður
skal ávallt vera úr hópi þeirra sem félagið semur fyrir eða
heyra undir kjaranefnd.
Stjórninni er heimilt að ráða sér starfsmann.
5. gr. Stjórnin skal hafa vakandi auga með öllum þeim
málum er varða hag presta og guðfræðinga, svo og hag
þjóðkirkjunnar. Hún skal í hvívetna standa vörð um réttindi
presta og guðfræðinga. Stjórnin skal láta sig varða fagleg
málefni svo sem endurmenntunarmál og gerð og dreifingu
hjálpargagna fyrir presta og guðfræðinga. Stjórnin skal
stuðla að guðfræðilegri umræðu meðal félagsmanna.
Skylt er að boða til stjórnarfundar ef þrír stjórnarmenn óska
þess.
6. gr. Fulltrúaráð skal starfa í félaginu og vera
samráðsvettvangur. Fulltrúaráðið er skipað stjórn félagsins,
einum fulltrúa frá hverri félagsdeild. Formaður félagsins
er formaður fulltrúaráðsins og skal hann kalla það saman
þegar stjórn P.Í. eða meirihluti fulltrúaráðsmanna óskar
þess. Stjórninni er skylt að leggja fyrir fulltrúaráðið öll
stefnumarkandi mál er varða kjör og réttindi presta. Skylt er
að kalla fulltrúaráðið saman einu sinni á ári. Skal boðað til
funda þess með hálfs mánaðar fyrirvara.
Félagsdeildir P.Í. eru: Prestafélag Austurlands, Prestafélag Suðurlands, Prestafélag Suðvesturlands, Hallgrímsdeild, Prestafélag Vestfjarða, Prestafélag Hólastiftis hins forna, Prófastafélagið og Félag fyrrum þjónandi presta.
Heimilt er með samþykki aðalfundar að fjölga deildum með
fulltrúaréttindum eða aukaaðild.
7. gr. Félagið er aðili að Bandalagi Háskólamanna (BHM)
og ber skyldur og réttindi samkvæmt lögum þess. Félagið
getur enn fremur gerst aðili að öðrum félögum og/eða
hagsmunasamtökum.
8. gr. Félagið hefur samstarf við prestafélög í nálægum
löndum, m.a. með aðild að sambandi norrænu
prestafélaganna og með þátttöku í mótum þess og fundum.
9. gr. Félagið gefur út tímarit, Kirkjuritið. Ritnefnd skal skipuð
fjórum mönnum er stjórn P.Í. kýs til tveggja ára í senn. Stjórn
félagsins ræður ritstjóra og er hann formaður ritnefndarinnar.
Ritnefnd og ritstjóri starfa í samráði við stjórn félagsins.
Stjórn P.Í. ber fjárhagslega ábyrgð á ritinu. Ritnefnd skal
færa fundargjörðabók.
Aðra útgáfustarfsemi á vegum félagsins skal stjórnin annast.
10. gr. Aðalfundur skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga til
eins árs í senn og einn til vara. Skulu þeir hafa farið yfir alla
reikninga félagsins fyrir lok febrúar.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
11. gr. Félagsmenn í starfi greiða félagsgjald samkvæmt
nánari ákvörðun aðalfundar. Það má nema allt að 1,5% af
byrjunarlaunum sóknarpresta. Fagaðilar greiða félagsgjald
eftir nánari ákvörðun stjórnar. Pastores emeriti eru
undanþegnir greiðslu félagsgjalds. Sbr. þó 1.mgr. 2.gr.
Áskrift að Kirkjuritinu skal vera innifalin í félagsgjaldi.
Stjórn félagsins er heimilt að innheimta félagsgjöld hjá
launagreiðanda.
12. gr. Stjórnarmenn og aðrir fulltrúar félagsins skulu fá
ferðakostnað greiddan samkvæmt þeim gjaldskrám og
reglum sem í gildi eru. Um annan kostnað úrskurðar stjórn
félagsins hverju sinni.
13. gr. Aðalfundur félagsins skal haldinn ár hvert, að jafnaði
í tengslum við Synodus. Dagskrá fundarins skal auglýsa
bréflega með hálfs mánaðar fyrirvara. Með fundarboði
skal senda útdrátt úr skýrslu stjórnar og tillögur um
lagabreytingar ef fram á að leggja. Taka má mál fyrir utan
dagskrár ef fundurinn leyfir. Formaður tilnefnir fundarstjóra
og fundarritara. Fundur er lögmætur ef hann er löglega
boðaður.
Formaður félagsins skal flytja skýrslu á aðalfundi um
störf félagsins á liðnu starfsári. Gjaldkeri skýrir frá fjárhag
félagsins og leggur fram endurskoðaða reikninga síðasta árs
og fjárhagsáætlun yfirstandandi starfsárs, sem borin skal
undir atkvæði á fundinum. Þá skulu nefndir og einstaklingar,
sem falin eru störf í þágu félagsins, skila skýrslu um störf og
fjárhag.
Á aðalfundi ræður afl atkvæða öllum málum, nema þeim er
snerta breytingar á lögum félagsins. Til lagabreytinga þarf
tvo þriðju atkvæða þeirra sem á fundi eru.
Atkvæðisréttur á aðalfundi er bundinn félagsaðild sbr.
1.mgr.2.gr.
Félagsfundi skal halda þegar stjórnin ákveður eða minnst 20
félagsmanna krefjast þess. Formaður boðar félagsfundi.
14. gr. Félagið setur siðareglur (Codex Ethicus). Stjórn P.Í. er
heimilt að vísa félagsmönnum um stundarsakir úr félaginu
gerist þeir brotlegir. Stjórn P.Í. skal kanna gaumgæfilega
alla málavexti og reynir að koma á sáttum studd niðurstöðu
siðanefndar.