Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Ályktun um erfiða fjárhagsstöðu fjölskyldna og einstaklinga

„Prestastefna 2011 lýsir yfir miklum áhyggjum vegna gríðarlega erfiðrar fjárhagsstöðu margra fjölskyldna og einstaklinga í landinu. Prestastefna kallar eftir því að stjörnvöld geri enn betur en orðið er til að liðsinna fólki og greiða úr vanda þess og skapa því þannig vonarríka framtíð hér á landi, m.a. með því að reyna eftir megni að efla atvinnu sem er forsenda þess að efnahagsástandið batni.

Prestastefna þakkar mikilsverðan stuðning hjálparstofnana og fagnar nýjum aðferðum Hjálparstarfs kirkjunnar til að liðsinna þeim sem búa við erfið kjör.

Prestastefna hvetur söfnuði þjóðkirkjunnar um land allt til að vera vakandi fyrir því hvernig þeri geti liðsinnt þiem sem eru í andlegri og veraldlegri neyð. Prestastefnan hvetur kristið fólk um land allt til að styðja hjálparstofnanir og veita með orðum, verkum, von og trú, kærleika og samhug inn í íslenskt samfélag.“

Ályktunin var samþykkt samhljóða.