Kvennakirkjan heimsækir Reykhólaprestakall
Helgina 15-17 maí mun hópur kvenna úr Kvennakirkjunni heimsækja Reykhólaprestakall.
Kvennakirkjan er sjálfstæður hópur sem starfar í íslensku þjóðkirkjunni og byggir starf sitt á kvennaguðfræði. Hún var stofnuð 14. febrúar 1993.
Hópurinn mun gista á heimavistinni á skólanum og fyrir hádegi á laugardeginum er ætlunin að ræða um ábyrgð á eigin heilsu og lífshamingju. Eftir hádegið verður farið í vettvangsferð og síðan verður haldin messa í Reykhólakirkju kl. 17:00
Um kvöldið verður síðan kvöldvaka með innleggi þar sem meðal annars verður sagt frá góðum lífstíl í kristinni trú og daglegum venjum. Við leggjum allar orð í belg eins og við viljum.
Þrátt fyrir sauðburð og Eurovision vonumst við til að sjá ykkur sem flest í messunni á laugardaginnn einnig eru umræður og kvöldvakan opin öllum.
Heimasíða Kvennakirkjunnar:
http://www.kvennakirkjan.is/index.php
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 12/5 2009 kl. 23.01