Reykhólaprestakall

 

Hátíðarmessa á aðfangadagskvöld

Hátíðarmessan á aðfangadagskvöld hefur breyst í hátíðarhelgistund og hefst hún kl. 22:30 ef fært verður út úr húsi.

Ég er ekki alveg tilbúin enn til að blása allt helgihald af en ljóst er að organsitinn okkar kemst ekki til að leika á orgelið.

Messan í Gufudal á jóladag mun falla niður.

Guð gefi ykkur gleðileg jól.

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 24/12 2009 kl. 15.01

     

    Reykhólaprestakall, Hellisbraut 4, 380 Reykhólum. Sími 434 7716 , fax 434 7716 · Kerfi RSS