Messa í kirkjunni á Stað 18. júlí kl. 14:00
Messað verður í kirkjunni á Stað á Reykjanesi kl. 14:00 sunnudaginn 18. júlí.
Kirkjan á Stað var reist árið 1864 af Daníel Hjaltasyni gullsmið, hreppstjóra og bónda. Notaðist hann við hið svokallaða gullinsnið þegar hann teiknaði kirkjuna en það merkir að það er ákveðið hlutfall (1,681:1) milli lengdar og breyddar flestra meginatriða í kirkjunni.
Viðar mætir með nikkuna og við syngjum öll saman og eigum góða stund í húsi Guðs og svo drekkum við saman kaffi á eftir.
Hlakka til að sjá ykkur :o)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 15/7 2010 kl. 12.02