Helgihald í Reykhólaprestakalli 28. og 29. janúar
Laugardaginn 28. janúar:
Kirkjuskóli í Staðarhólaskirkju kl. 13:00.
Klemmi og Hafdís mæta og Mýsla og Rebbi líka.
Sunnudaginn 29. janúar:
Sunnudagaskóli í Reykhólakirkju kl. 11:00.
Hafdís og Klemmi mæta á svæðið ásamt Mýslu og Rebba og Harpa kemur líka :o)
Messa í Reykhólakirkju kl. 13:30.
Viðar er mættur aftur og spilar á orgelið og kórinn syngur með okkur.
Helgistund í Barmahlíð kl. 14:30. Kórinn og Viðar fylgja prestinum að þessu sinni.
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 24/1 2012 kl. 12.39