Reykhólaprestakall

 

Kirkjuskóli, Sunnudagaskóli og helgistund

Kirkjuskólinn hefst á ný í Staðarhólskirkju laugardaginn 14. janúar kl. 13:00. Við ætlum að vera í Tjarnarlundi að þessu sinni en næst verðum við í kirkjunni.

Sunnudagaskólinn verður svo í Reykhólakirkju sunnudaginn 15. janúar kl. 11:00.

Hafdís og Klemmi mæta á báða staðina og líka Mýsla og Rebbi og fermingarbörn vetrarins taka þátt í fjörinu.

Helgistund verður svo í Barmahlíð kl.14:30 á sunnudaginn og þar láta fermingarbörnin líka ljós sitt skína.

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 13/1 2012 kl. 20.35

     

    Reykhólaprestakall, Hellisbraut 4, 380 Reykhólum. Sími 434 7716 , fax 434 7716 · Kerfi RSS