Reykhólaprestakall

 

Helgihald um jól í Reykhólaprestakalli

Aðfangadagur:

Dvalarheimilið Barmahlíð Kl. 16.00
Söngur og undirleikur: Hrefna Jónsdóttir

Reykhólakirkja kl. 23:00
Organisti: Viðar Guðmundsson
Kór: Félagar úr kór Reykhólaprestakalls

2. jóladagur:

Garpsdalskirkja kl. 13:00
Staðarhólskirkja í Saurbæ kl. 15:00
Skarðskirkja á Skarðsströnd kl. 17:00
Organisti: Viðar Guðmundsson
Kór: Félagar úr kór Reykhólaprestakalls

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 19/12 2010

Kirkjuskóli :o)

Kirkjuskóli á morgun 18. desember kl. 11:00 í Reykhólakirkju.

Gluggum í gluggabókina um fæðingu Jesú, kveikjum á kertunum í aðventukransinum, syngjum og biðjum.

Hlakka til að sjá ykkur.

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 17/12 2010

Aðventukvöld í Garpsdalskirkju

Aðventukvöld verður haldið í Garpsdalskirkju fimmtudaginn 9. desember kl. 20:00.

Jólasögur, jólasöngvar og hugvekja.

Hafliði og Sóley leika undir almennum safnaðarsöng.

Hlakka til að sjá ykkur:o)

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 8/12 2010

Aðventustnd í Staðarhólskirkju

Fyrsta sunnudag í aðventu 28. nóvember verður aðventustund í

Staðarhólskirkju kl. 16:00.

Börnin spila og syngja,fermingarbörnin lesa jólasögu, kór Reykhólaprestakalls leiðir almennan safnaðarsöng og Viðar spilar undir á orgelið.

Kaffi á eftir í Tjarnarlundi.

Hlakka til að sjá ykkur :o)

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 23/11 2010

Kirkjuskólinn verður í Reykhólaskóla á laugardaginn

Kirkjuskólinn verður í Reykhólaskóla laugardaginn 6. nóvember v. útfarar frá Reykhólakirkju.

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 4/11 2010

Helgihald í Reykhólaprestakalli

Laugardagur 23. október kl. 11.00  Kirkjuskóli Í Reykhólakirkju
Sunnudagur 24. október kl. 14:30.Helgistund í Barmahlíð

Sunnudagur 31. október kvöldmessa í Staðarhólskirkju kl. 20:30

Allra heilagra messa Sunnudaginn 7. nóvember  messa í Reykhólakirkju kl. 13:30 og
helgistund í Barmahlíðinni kl. 14:30

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 19/10 2010

Helgihaldi í Reykhólaprestakalli 9.-10. október

Kirkjuskólinn er á sínum stað í Reykhólakirkju á laugardaginn kl. 11.00. Sáum fræjum og förum með heim :o)

Á sunnudaginn höldum við Taizémessu í Reykhólakirkju kl. 13:30.

Form Taizémessunnar er einfaldara en í hinni hefðbundnu sunnudagsmessu og er byggt á einföldum laglínum við stutta texta ritningarinnar. Þessi vers eru oft endurtekin og sungin til íhugunar. Þetta form er þekkt víða um heim og er kennd við Taizé sem er skammt frá Cluny í Frakklandi.
Kertaljósin loga, reykelsi brennt og fólk finnur ilminn þegar inn kemur. Stutt ávarp er flutt en ekki eiginleg prédikun. Lestrar eru úr Davíðssálmum, bréfum Nýjatesamentisins eða spámannaritunum og guðspjöllunum. Þögn til bænar og íhugunar.

Helgistund verður í Barmahlíðinni kl. 14:30

Hlakka til að sjá ykkur :o)

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 7/10 2010

Fermingarstarf, Kirkjuskóli og Helgistund í Reykhólaprestakalli 24.09-26.09.

Fjórir flottir krakkar úr prestakallinu ætla að efla trú sína og styrkja í vetur. Fyrsta innilega fermingarhópsins verður á prestsetrinu núna um helgina.
Í fermingarfræðslunni fá krakkarnir fræðslu um kristna trú og leitað er svara við erfiðum spurningum sem þvælast fyrir okkur í daglegu lífi.

Laugardaginn 25. sept. er Kirkjuskóli kl. 11:00 í Reykhólakirkju og þar munu hin væntanlegu fermingarbörnin hjálpa til á ýmsan hátt.

Sunnudaginn 26. sept. er helgistund í Barmahlíð kl. 14:30. Þangað er öllum velkomið að koma og eiga ljúfa stund með Guði og íbúum Barmahlíðar.

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 23/9 2010

Kirkjuskólinn hefst laugardaginn 11 september kl. 11:00 í Reykhólakirkju


Elína Hrund Kristjánsdóttir, 10/9 2010

Helgistund í Barmahlíð og kvöldmessa í Reykhólakirkju

Sunnudaginn 5. september verður haldin helgistund í Barmahlíð kl. 14:30 og kvöldmessa verður í Reykhólakirkju kl. 20:00.

Kirkjuskólinn hefst laugardaginn 11. september kl. 11:00

Allir krakkar hvattir til að mæta og taka uppáhalds leikföngin sín með :o)

Hlakka til að sjá ykkur!

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 5/9 2010

Kirkjan á Reykhólum stendur opin. Þangað er þér velkomið að leita til þess að finna frið og ró í húsi Guðs.

Símaviðtalstímar

Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir, sóknarprestur:
S. 434 7716 - GSM. 860 9987

 

Reykhólaprestakall, Hellisbraut 4, 380 Reykhólum. Sími 434 7716 , fax 434 7716 · Kerfi RSS