Kirkjuskólinn er á sínum stað í Reykhólakirkju á laugardaginn kl. 11.00. Sáum fræjum og förum með heim :o)
Á sunnudaginn höldum við Taizémessu í Reykhólakirkju kl. 13:30.
Form Taizémessunnar er einfaldara en í hinni hefðbundnu sunnudagsmessu og er byggt á einföldum laglínum við stutta texta ritningarinnar. Þessi vers eru oft endurtekin og sungin til íhugunar. Þetta form er þekkt víða um heim og er kennd við Taizé sem er skammt frá Cluny í Frakklandi.
Kertaljósin loga, reykelsi brennt og fólk finnur ilminn þegar inn kemur. Stutt ávarp er flutt en ekki eiginleg prédikun. Lestrar eru úr Davíðssálmum, bréfum Nýjatesamentisins eða spámannaritunum og guðspjöllunum. Þögn til bænar og íhugunar.
Helgistund verður í Barmahlíðinni kl. 14:30
Hlakka til að sjá ykkur :o)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 7/10 2010
Fjórir flottir krakkar úr prestakallinu ætla að efla trú sína og styrkja í vetur. Fyrsta innilega fermingarhópsins verður á prestsetrinu núna um helgina.
Í fermingarfræðslunni fá krakkarnir fræðslu um kristna trú og leitað er svara við erfiðum spurningum sem þvælast fyrir okkur í daglegu lífi.
Laugardaginn 25. sept. er Kirkjuskóli kl. 11:00 í Reykhólakirkju og þar munu hin væntanlegu fermingarbörnin hjálpa til á ýmsan hátt.
Sunnudaginn 26. sept. er helgistund í Barmahlíð kl. 14:30. Þangað er öllum velkomið að koma og eiga ljúfa stund með Guði og íbúum Barmahlíðar.
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 23/9 2010
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 10/9 2010
Sunnudaginn 5. september verður haldin helgistund í Barmahlíð kl. 14:30 og kvöldmessa verður í Reykhólakirkju kl. 20:00.
Kirkjuskólinn hefst laugardaginn 11. september kl. 11:00
Allir krakkar hvattir til að mæta og taka uppáhalds leikföngin sín með :o)
Hlakka til að sjá ykkur!
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 5/9 2010
Námskeið fyrir sóknarnefndarfólk í Reykhóla-og Hólmavíkurprestakalli.
Námskeiðið verður haldið í Tjarnarlundi í Saurbæ laugardaginn 4. september frá kl. 11:00 - 15:00.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson, verkefnastjóri á Biskupsstofu, lektor við Guðfræðideild HÍ með meiru, mun fræða sóknarnefndarfólk um störf og skyldur sóknarnefnda.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið:
elina.kristjansdottir@kirkjan.is eða í síma: 434 7716
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 18/8 2010
Hin árlega messa í Flateyjarkirkju verður haldin laugardaginn 7. ágúst kl. 14:00
Undirleikari í ár er Viðar Guðmundsson og kór Reykhólaprestakalls mun leiða sönginn.
Hlakka til að sjá ykkur :o)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 2/8 2010
Messað verður í kirkjunni á Stað á Reykjanesi kl. 14:00 sunnudaginn 18. júlí.
Kirkjan á Stað var reist árið 1864 af Daníel Hjaltasyni gullsmið, hreppstjóra og bónda. Notaðist hann við hið svokallaða gullinsnið þegar hann teiknaði kirkjuna en það merkir að það er ákveðið hlutfall (1,681:1) milli lengdar og breyddar flestra meginatriða í kirkjunni.
Viðar mætir með nikkuna og við syngjum öll saman og eigum góða stund í húsi Guðs og svo drekkum við saman kaffi á eftir.
Hlakka til að sjá ykkur :o)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 15/7 2010
Sunnudaginn 13.júni kl. 20.00 verður kvöldvaka og aðalsafnaðarfundur Reykhólasóknar í Reykhólakirkju.
Við syngjum, hlustum og biðjum saman.
Í boði er sæti í sóknarnefndinni, boð sem erfitt er að hafna.
Látið sjá ykkur í kirkjunni ykkar og komið að mótun starfsins.
Hlakka til að sjá ykkur :o)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 13/6 2010
Reykhólakirkja 5. júni kl. 13:30.
Fermd verða:
Arnar Ingi Karlsson, Kambi
Dagný Bjarkadóttir, Reykhólum
Eydís Sunna Harðardóttir, Tindum
Gestur Ólafur Ingvarsson, Reykhólum
Hjálmar Karl Ragnarsson, Reykhólum
Sunnudaginn 6. júní kl. 15:00 Staðarhólskirkja:
Hlynur Snær Sæmundsson, Lindarholti
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 4/6 2010
Helgistund verður í Barmahlíð sunnudaginn 30. maí kl. 14:30.
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 30/5 2010