Uppstigningardagur 13. maí
Hátíðarhelgistund í Barmahlíð kl. 14:30.
Helgistundin er opin öllu fólki í Reykhólaprestakalli.
Komum saman og lofum Guð þrátt fyrir annir í sauðburði :o)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 11/5 2010
Hátíðarhelgistund í Barmahlíð kl. 14:30.
Helgistundin er opin öllu fólki í Reykhólaprestakalli.
Komum saman og lofum Guð þrátt fyrir annir í sauðburði :o)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 11/5 2010
Sunnudaginn 2. maí verður farið í vorferð og er ferðinni heitið í Gufudal.
Safnast verður saman við Reykhólakirkju kl. 10:00 og fyrir þau sem ekki búa á Reykhólum þá er Bjarkarlundur staðurinn.
Sunnudagskólinn verður svo haldinn í Gufudalskirku og nesti borðað og ef verður leyfir förum við í útileiki.
Hlakka til að sjá ykkur :o)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 1/5 2010
Héraðsfundur Vestfjarðaprófastsdæmis 2010 verður haldinn í Reykhólaprestakalli að þessu sinni.
Fundurinn hefst með messu sunnudaginn 25. apríl í Staðarhólskirkju kl. 11.00
Sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir prédikar og sóknarprestur Reykhólaprestakalls þjónar fyrir altari.
Organisti að þessu sinni er Viðar Guðmundsson og kór Reykhólaprestakalls leiðir sönginn.
Hlakka til aðsjá ykkur :o)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 20/4 2010
Sunnudagskólinn verður á sínum stað í Reykhólakirkju 11 apríl kl. 11.00.
Við höldum áfram að tala og syngja um vináttuna.
Hlakka til að sjá ykkur öll!
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 9/4 2010
Á skírdag er messað í Gufudalskirkju kl. 16 og í Staðarhólskirkju í Saurbæ kl. 19.
Á föstudaginn langa er helgistund í Garpsdalskirkju við Gilsfjörð kl. 20.
Á páskadag er guðsþjónusta í Reykhólakirkju kl. 13.30 og í Barmahlíð á Reykhólum kl. 14.30.
Organisti er Svavar Sigurðsson og kór Reykhólaprestakalls syngur.
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 2/4 2010
Sunnudagaskóli í Reykhólakirkju kl. 11:00
Skírnarmessa í Staðarhólskirkju kl. 14:00.
Sonur Ebbu og Kjartans á Bakka borinn til skírnar.
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 26/3 2010
Sunnudagaskóli Reykhólakirkju: kl. 11:00, við höldum áfram að tala um vináttuna.
Helgistund í Barmahlíð kl. 14:30, söngfólk hvatt til að koma og taka undir í sálmasöng.
Léttmessa í Reykhólakirkju kl. 20:30. Kórinn fer á kostum ásamt organista og a.m.k. Dagný og Ella og gott ef ekki Margrét ætla að syngja og spila. Fermingarbörnin láta ekki sitt eftir liggja.
Allar sófasveskjur hvattar til að segja skilið við sófan í smá stund og prufa hina mjúku og breiðu kirkjubekki í staðinn.
Hlakka til að sjá ykkur :o)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 12/3 2010
Kirkjan á Reykhólum stendur opin. Þangað er þér velkomið að leita til þess að finna frið og ró í húsi Guðs.
Símaviðtalstímar
Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir, sóknarprestur:
S. 434 7716 - GSM. 860 9987
6-9 ára starf í Reykhólaskóla, annan hvern þriðjudag.
Reykhólaprestakall, Hellisbraut 4, 380 Reykhólum. Sími 434 7716 , fax 434 7716 · Kerfi ![]()