Miðvikudaginn 16. desember kl. 19:30 verður myndin “The Nativity Story” eða Ferðin til Betlehem sýnd í Reykhólakirkju.
Myndin er með ensku tali en íslenskum texta og þó allir skylji ekki ensku og allir geti ekki lesið textann þá er myndin svo skýr að það ætti ekki að koma í veg fyrir að njóta hennar.
Myndin er við hæfi allra aldurshópa.
Hlakka tilað sjá ykkur :o)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 14/12 2009
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað í Reykhólakirkju kl.11:00 á 3. sunnudegi í aðventu.
Hlakka til að sjá ykkur :o)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 11/12 2009
Fimmtudaginn 10. desember kl. 20:00 verður haldið aðventukvöld í Garpsdalskirkju.
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 10/12 2009
Aðventustundir verða í Reykhólakirkju og í Barmahlíð 2. sunnudag í aðventu.
Aðventustundin í Reykhólakirkju hefst kl. 13:30.
Þar mun Tómas Martin Bjargarson leika á trompet.
Svavar Sigurðsson stjórnar kór og almennum safnaðarsöng.
Hugleikur( hugvekja + helgileikur) með þátttöku barna og unglinga.
Fermingarbörn upplýsa leyndardóm sem sagður er búa að baki þekkts jóladægurlagatexta.
Aðventustundin í Barmahlíð verður kl. 14:30.
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 2/12 2009
Sunnudagaskóli verður í Reykhólakirkju kl. 11
Helgistund í Barmahlíð kl. 14:30
Aðventukvöld í Staðarhólskirkju kl. 19:00
Börnin syngja og spila, almennur safnaðarsöngur, hugvekja og jólasaga og síðast en ekki síðst hið landsfræga aðventukaffi í Tjarnarlundi að lokinni aðventustundinni.
Hlakka til að sjá ykkur sem flest taka þátt í helgihaldinu:o)
„Sjá, konungur þinn kemur til þín.“ (Sk 9.9)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 27/11 2009
Kóræfing verður í Tjarnarlundi fimmtudaginn 19. nóvember kl. 20:30
Nýir kórfélagar velkomnir :o)
Stjórnandi Svavar Sigurðsson.
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 19/11 2009
Sunnudagaskóli kl. 11:00 í Reykhólakirkju
Helgstund í Barmahlíð kl. 14:30
Verið öll velkomin í báðar stundirnar :o)
Hlakka til að sjá ykkur
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 14/11 2009
Kaffimessa verður haldin í Reykhólakirkju sunnudaginn 8. nóvember kl.16:00
Fermingarbörnin taka þátt og nýr organisti, Svavar Sigurðsson leikur á orgelið.
Kaffisopi á kirkjuloftinu eftir messu.
Hlakka til að sjá ykkur öll.
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 3/11 2009
Mömmumorgun mánudaginn 2. nóvember frá kl. 9:00 á prestsetrinu.
Hlakka til að sjá ykkur :o)
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 1/11 2009
1. nóvember verður helgistund í Barmahlíð kl.14:30.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Elína Hrund Kristjánsdóttir, 1/11 2009