Reykhólaprestakall

 

Sunnudagaskóli :o)

Sunnudagaskólinn verður í Reykhólakirkju  sunnudaginn, 1. nóvember kl. 11.

Hlakka til að sjá ykkur öll hress og kát :o)

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 30/10 2009

Flensan herjar á :o(

Sunnudagaskólinn fellur niður 18.október og einnig mömmumorgunn á mánudag sem og kirkjuskóli 6-9 ára.

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 17/10 2009

Reykhólakirkja

4. október

Sunnudagaskóli kl. 11:00


Helgistund í Barmahlíð kl. 14:30

Söngfólk hvatt til að mæta

5. október

Mömmumorgun frá kl. 9:00 á Prestsetrinu

6. október

Kirkjuskóli 6-9 ára kl. 15-16

Kirkjuskóli 10-12 ára fellur niður þessa viku :o(

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 1/10 2009

Bænastund í Reykhólakirkju í kvöld miðvikudag 23. september kl. 21:00

Haraldur organisti lést fyrir aldur fram síðastliðna nótt og því höldum við bænastund  í Reykhólakirkju í kvöld kl. 21:00.

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 23/9 2009

Sunnudagaskólinn fellur niður 20.september.

Enginn Sunnudagaskóli verður á næsta sunnudag í Reykhólakirkju enda réttadagur.

Góða skemmtun í réttunum, við sjáumst þar :o)

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 16/9 2009

Kvöldmessa í Staðarhólskirkju

Kvöldmessa verður haldin í Staðarhólskirkju sunnudaginn 13. september kl. 20:00

Hittumst og eigum ljúfa kvöldstund í kirkjunni okkar.

Fermingarbörn prestakallsins aðstoða í messunni.

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 8/9 2009

Sunnudagaskólinn hefst í Reykhólakirkju 6. september kl. 11. Hlakka til að sjá ykkur öll :o)

Örkin hans Nóa

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 24/8 2009

Messa í Flatey

Messa verður haldin í Flateyjarkirkju laugardaginn 8.ágúst kl. 14:00.

Barn verður borið til skírnar.

Hulda Gestsdóttir syngur einsöng.

Haraldur Guðni Bragason leikur á orgelið.

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 6/8 2009

Kirkjan á Stað

Messa verður haldin kl. 14:00 sunnudaginn 2. ágúst í Staðarkirkju.

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 1/8 2009

Gufudalskirkja 28. júní kl. 14:00

Helgistund í Gufudalskirkju kl. 14:00 sunnudaginn 28. júní

Elína Hrund Kristjánsdóttir, 28/6 2009

Kirkjan á Reykhólum stendur opin. Þangað er þér velkomið að leita til þess að finna frið og ró í húsi Guðs.

Símaviðtalstímar

Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir, sóknarprestur:
S. 434 7716 - GSM. 860 9987

Þriðjudagur

6-9 ára starf í Reykhólaskóla, annan hvern þriðjudag.

Dagskrá ...