Fræðslustarf og fjölskyldustefna

Fræðsla innan þjóðkirkjunnar um samkynhneigð

Í tengslum við umræðu um samkynhneigð og kirkju á kirkjuþingi og prestastefnu árin 1996 – 1997 var greinargerðin Samkynhneigð og kirkja lögð fyrir Kirkjuþing 1997, ásamt með ritgerðinni Trú, kynhneigð og náungi minn, og með viðaukagreinum (sjá Prestastefna 1997). Samþykkt var svohljóðandi tillaga:

Kirkjuþing 1997 leggur til að markvisst verði unnið að fræðslumálum á vegum íslensku þjóðkirkjunnar um málefni samkynhneigðra í samhljóðan við samþykkt kirkjuþings 1996 og prestastefnu 1997.

Lagt var til að samstarf yrði á milli allra þeirra aðila sem störfuðu að því að framfylgja samþykkt prestastefnunnar. Markhópar voru skilgreindir, svo og leiðir. Í þeim var gert ráð fyrir því að prófastsdæmi yrðu heimsótt, komið á fundum með sóknarprestum og skólanefndum, framhaldsskólar heimsóttir, svo og efri bekkir grunnskóla í samráði við skólayfirvöld. Boða skyldi til fundanna með stórum félagasamtökum, s.s. Heimili og skóli, Kennarasamband Ísland, Félag námsráðgjafa, nemum í Kennaraháskóla Íslands og nemum í kensluréttindanámi við H.Í.

Í útgáfumálum var lagt til að gefið yrði út hefti með framsöguerindum þeim sem flutt voru í Keflavíkurkirkju 1996 og víðar og þeim dreift til áskrifenda Kirkjuritsins. Einnig var lagt til að gefið yrði út hefti um guðfræðileg álitamál sem snerta samkynhneigða. Þá komi einnig fram í fyrra heftinu lagaleg staða samkynhneigðra og gerð grein fyrir lögunum sem samþykkt voru á Alþingi á sl. ári [um staðfesta samvist] um mannréttindi og fordóma gagnvart minnihlutahópum á Íslandi. Einnig vísað til Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Í skýrslu kirkjuráðs fyrir starfsárið 1997 sem lögð var fyrir kirkjuþing 1998 kemur fram að samþykkt kirkjuþings 1997 hafi verið vísað til fræðsludeildar Biskupsstofu þar sem rætt hafi verið um að fá starfsmann í verkið. Fram kemur að fræðsludeild hafi gengist fyrir málþingi um málefni samkynhneigðra. Ennfremur segir: „…og nú er unnið á vegum fræðsludeildar að gerð fræðsluefnis fyrir söfnuði um þetta mál“.

Ekki urðu efndir eins og til stóð og var samráðsvettvangi ekki komið á fót né markvissri fræðslu um málefni samkynhneigðra, svo sem ályktað var um á Prestastefnu 1997 og Kirkjuþingi 1997. Þá hefur framangreint efni ekki verið gefið út af kirkjunni til fræðslu fyrir presta og söfnuði.

Á fræðslusviði Biskupsstofu hefur verið rætt um að efla þurfi fræðslu um samkynhneigð í tengslum við fermingarundirbúning og nú um þessar mundir er verið að vinna að útgáfu fermingarefnis sem séra Guðrún Karlsdóttir tók saman. Í því efni er fjallað um trú og samkynhneigð í tengslum við unglingsárin. Unnið er að frekari umfjöllun og þá í tengslum við Líflsleikni í framhaldsskólum og einnig á meðal eldri bekkja grunnskóla.

Á sviði fræðslu fyrir söfnuði kirkjunnar er nú unnið að verkefni sem styrkt er af Kristnihátíðarsjóði. Verkefnið ber yfirskriftina Trú og samkynhneigð og er tilgangurinn bæði að veita fræðslu um samkynhneigð sem og að efna til upplýstrar samræðu um ssamkynhneigð og trú á vettvangi safnaðarins. Áætlað er að fræðsluefnið sem verkefnið á að skila af sér verði tilbúið til notkunar haustið 2005 og þá verði strax farið að nota það í söfnuðum fyrir tilstuðlan verkefnisstjórnar.

Haustið 2004 var kennt á vegum Leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar námskeið sem bar yfirskriftina Trú og samkynhneigð. Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir kenndi á námskeiðinu og var þar gefið gott yfirlit yfir afstöðu kirkna heimsins til samkynhneigðar.

Fjölskyldustefna þjóðkirkjunnar

Árið 1994 var alþjóðlegt ár fjölskyldunnar samkvæmt samþykkt Sameinuðu þjóðanna. Þjóðkirkjan tók þátt í viðamiklu starfi undir forystu Félagsmálaráðuneytisins af því tilefni. Nefnd á vegum kirkjuráðs skilaði áfangaskýrslu til kirkjuþings haustið 1994 þar sem lögð var fram fjölskyldustefna þjóðkirkjunnar undir heitinu: ‘Heilsteypt fjölskyldulíf á grunni kærleika og réttlætis.’ (Sú góða skýrsla er því miður ekki aðgengileg á netinu).

Í ofangreindri fjölskyldustefnu er ekki sérstaklega fjallað um fjölskyldur samkynhneigðra. Starfshópur um málefni samkynhneigðra innan þjóðkirkjunnar sendi starfshópi um endurskoðun fjölskyldustefnunnar bréf vorið 2005 þar sem óskað er eftir því að skýrt komi fram í endurskoðaðri fjölskyldustefnu hver staða fjölskyldna samkynhneigðra sé innan þjóðkirkjunnar.

Í febrúar 2005 skipaði biskup Íslands starfshóp til að endurskoða fjölskyldustefnu þjóðkirkjunnar. Starfshópurinn skilaði tillögu að endurskoðaðri fjölskyldustefnu til kirkjuþings 2005.