Sigurjón Árni Eyjólfsson, guðfræðingur, hefur skrifað mikið um kristinn hjónabandsskilning. Hann sendi okkur nýlega tvær greinar sem fjalla um það efni. Þær eru birtar á guðfræði.is.
Ágrip og útlínur kristins hjónabandsskilningsSigurjón Árni Eyjólfsson, guðfræðingur, hefur skrifað mikið um kristinn hjónabandsskilning. Hann sendi okkur nýlega tvær greinar sem fjalla um það efni. Þær eru birtar á guðfræði.is. Hjónabandið – fyrir hverja?Guðfræðistofnun og Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands efndu til málþings undir heitinu Hjónabandið – fyrir hverja? föstudaginn 17. febrúar. Stefnt er að því að birta nokkur erindi á guðfræðivefnum auk þess sem hægt verður að hlusta á upptökur af málþinginu. Erindi
Velkomin á vef um samkynhneigð og kirkjuVorið 2004 skipaði biskup Íslands starfshóp um málefni samkynhneigðra innan þjóðkirkjunnar. Í honum eru séra Jón Helgi Þórarinsson, séra Kristín Þórunn Tómasdóttir, og Grétar Einarsson. Í bréfi biskups til starfshópsins segir að eitt af verkefnum starfshópsins sé að miðla upplýsingum um stöðu þessara mála innanlands sem erlendis og gera aðgengilegt t.d. á kirkjuvefnum. Þessi vefsíða er því hluti af verkefni starfshópsins og er textinn hér skrifaður af honum. |
|||||