Tenglar
Hér má finna tengla við ýmsar vefsíður sem snerta málefni samkynhneigðra almennt og um samkynhneigða og kirkju sérstaklega. Starfshópur um málefni samkynhneigðra í þjóðkirkjunni getur ekki tekið ábyrgð á því efni sem kann að finnast á þessum síðum. Engu að síður teljum við hjálplegt að þetta yfirlit sé að finna á vefsvæði þjóðkirkjunnar um málefni samkynhneigðra. Tenglasafnið verður yfirfarið og uppfært reglulega.
Vefsíða Samtakanna 78 (hagsmunasamtök samkynhneigðra og tvíkynhneigðra á íslandi) www.samtokin78.is/ inniheldur mikið efni um réttindabaráttu samkynhneigðra og sögu hennar, umfjöllun um starf samtakanna og ýmissa hópa sem starfa á vettvangi þeirra, féttaefni og margt fleira. Auk þess er mikið af fróðlegu efni margskonar og greinum um ýmis mál.
Vefsíða Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, FAS.
Vefsíða um Regnbogamessuna á vef Stokkhólmsbiskupsdæmis í Svíþjóð.
Evrópusíða Metropolitan Community Church. MCC er kirkjudeild sem starfar um allan heim og leggur sérstaka áherslu á starf meðal samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og kynskiptinga/klæðskiptinga (transgendered).
Heimasíða European Forum of Lesbian and Gay Christian Groups. European Forum eru regnhlífarsamtök kristilegra trúarhópa samkynhneigðra í Evrópu. Samtökin vilja leiða saman hópa frá ólíkum þjóðlöndum sem starfa að sama markmiði og halda þing einu sinni á ári í þeim tilgangi.
Malkus er kristilegur hópur SETA samtakanna í Finnlandi, sem eru réttindasamtök samkynhneigðra þar í landi. Þess virði að kynna sér starf þeirra sem hér er útlistað á enska tungu.
Á þessari vefsíðu er fjölbreytt og aðgengilegt efni sem haldið er úti af samkynhneigðum kristnum einstaklingum fyrir aðra samkynhneigða kristna einstaklinga.
The Gay and Lesbian Religious Archives inniheldur yfirlit um trúarlegt starf samkynhneigðra, sérstaklega í Bandaríkjunum.
Theology for Queer Youth and Adults er vefsíða sérstaklega ætluð ungu fólki.
Other Sheep eru samtök sem starfa meðal þeirra sem eiga undir högg að sækja af trúarsamtökum sökum kynhneigðar. Samtökin starfa aðallega í S-Ameríku. Vefsíða þeirra inniheldur mikið af upplýsingum, tenglum, bókaumfjöllunum o.fl.
HuK – Homosexuelle und Kirche. HUK eru samtök sem hafa það að markmiði að stuðla að umræðu um samkynhneigð og kirkju í þýsku samhengi. Fræðandi og vönduð síða sem snertir á ýmsum málum á bæði ensku og þýsku.
Queer Resources Directory er uppflettisíða með tenglum um ýmislegt sem snertir samkynhneigð.
Hér má finna leitarsíðu sem er vel sinnt og uppfærð reglulega.
Nokkrar vefsíður nágrannakirkna okkar er að finna hér:



