Trúarlegt starf samkynhneigðra

Þrátt fyrir útskúfun og bannfæringar hafa hommar og lesbíur alltaf verið og eru enn virkir þátttakendur innan kristinnar kirkju alls staðar í heiminum. Hommar
og lesbíur koma að störfum kirkjunnar á ýmsum sviðum þó það sé ekki alltaf sýnilegt. Lengst af hefur verið nánast útilokað að starfa í því umhverfi ef viðkomandi einstaklingar hafa verið opnir um sína kynhneigð. Sem betur fer verður það þó æ auðveldara í mörgum löndum. Það má glögglega sjá á hræringum innan ýmissa kristinna kirkjudeilda í heiminum hve mjög umræðan um stöðu homma og lesbía skiptir máli í grunn starfi og kenningum hennar. Á undanförnum áratugum hafa frjálslyndari trúarleg viðhorf sótt á og það hefur sett fylgismenn íhaldssamari skoðana í varnarstöðu. Þetta hefur orðið til þess að skilin á milli ólíkra viðhorfa hafa orðið sýnilegri og ýtt undir nýjar leiðir til túlkunnar og skilnings á kristinni trú. Víða hefur þetta bil þó leitt til alvarlegrar misklíðar. Vegna afstöðu margra trúarhreyfinga gegn samkynhneigð þurfa hommar og lesbíur enn að þola mikið misrétti í trúmálum. Skal því engan undra að hommar og lesbíur tortryggi trúarstofnanir.

Trúarlegt starf samkynhneigðra er sýnilegt víða erlendis (sjá m.a. tenglasíðu). Hér á landi starfar hópur á vettvangi Samtakanna 78 undir heitinu
“Áhugahópu samkynhneigðra um trúarlíf” skammstafað Á.S.T. (sjá hér að neðan).

Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf – ÁST

Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf starfar á vettvangi Samtakanna 78 og hittist reglulega yfir veturinn í húsnæði Samtakanna 78 að Laugavegi 3. Á.S.T. hefur starfað með hléum í hartnær 10 ár. Hópurinn hefur það að markmiði að skapa samkynhneigðu fólki vettvang til að rækta sína trú á eigin forsendum, fjarri hvers kyns kreddutúlkunum. Á fundunum sameinast fólk í helgihaldi og umræðum og oft býður hópurinn leikum og lærðum gestum á samverustundir sínar. Á.S.T. er samstarfsaðili að Regnbogamessum og aðili að EF (Euoropean Forum of Lesbian and Gay Christian Groups). Allir sem áhuga hafa eru velkomnir á atburði hjá Á.S.T.

Regnbogamessan

Regnboginn táknar sáttmálann milli Guðs og manneskjunnar, hann brúar bilið á milli manna sem hafa fjarlægst vegna fordóma og hræðslu hver við annan, hann felur í sér fyrirheit fjölbreytileikans og hann er tákn réttindabaráttu samkynhneigðra.

Regnbogamessan á sér nokkuð langa sögu erlendis en fyrsta messan hér á landi var haldin í Langholtskirkju 12.desember 2004. Það voru söfnuðirnir við Laugardalinn, Langholts-, Ás- og Laugarnessöfnuðir, og Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum, sem ásamt Á.S.T., Áhugahópi samkynhneigðra um trúarlíf, höfðu frumkvæði að messunni. Félagar í Á.S.T. taka virkan þátt í Regnbogamessunni. Víða erlendis er Regnbogamessan haldin í ákveðnum kirkjum en stefnt er á að Regnbogamessan ferðist á milli kirkna hér á landi svo sem flestir fái að taka þátt í henni í sinni sóknarkirkju.

Regnbogamessan er tilboð um opið og öruggt og fordómalaust samfélag í kirkju sem boðar skilyrðislausa gæsku Guðs. Í henni viljum við biðja saman og hvíla í samfélaginu við Guð sem hefur skapað okkur öll og elskar okkur öll.

Önnur Regnbogamessan var haldin í Laugarneskirkju 22 maí 2005. Næsta Regnbogamessa verður haustið 2005 og verður hún nánar auglýst hér á vefnum. Lesa má um sænsku Regnbogamessuna á vef Stokkhólmsbiskupsdæmis í Svíþjóð hér.

Í Regnbogamessunni hefur verið notuð almenn kirkjubæn sem séra Bjarni Karlsson samdi.

Almenn kirkjubæn notuð í Regnbogamessu:

1.
Við þökkum þér, almáttugi skapari, fyrir lífið. Við þökkum þér að við skyldum vakna í morgun og eiga þessa stund. Allt sem þú skapar er fallegt og gott, og við þökkum þér fyrir fjölbreytileika lífsins í öllum þess myndum. Það er svo gaman að ekkert okkar skuli vera eins, að hvert og eitt erum við sértök sköpun, einstök
börn þín. Gefðu okkur þitt augnaráð, þegar við horfum hvert á annað. Hjálpaðu okkur að dást hvert að öðru með þakklæti.
2.
Við biðjum fyrir þeim sem einangrast vegna elli eða sjúkdóma, biðjum fyrir föngum og öllum sem ratað hafa í ógæfu. Hjálpa fjölskyldum sem lokast inni í sjálfum
sér vegna alkahólisma eða annarra erfiðleika. Miskunnsami frelsari Jesús Kristur, þú vilt ekki að neinn lifi í einsemd eða þoli útilokun samfélagsins. Gerðu okkur hugrökk og útsjónarsöm þegar við leitumst við að vinna þitt verk og rjúfu einangrun meðbræðra okkar. Já, leyfðu okkur að fylgja þér í raun og sannleika.
3.
Við biðjum fyrir öllu gagnkynhneigðu fólki í landinu. Hjálpa þeim Drottinn að sjá hið fagra og göfuga í lífi samkynhneigðra. Leyfðu okkur að helgast þér á öllum
sviðum lífsins. Helgaðu líkama okkar, því hann er musteri anda þíns. Helgaðu sál okkar, því þar býr viljinn. Helgaðu líka andann í brjósti okkar, að þinn heilagi
andi móti hverja hugsun.Já, Drottinn Jesús Kristur, við leggjum okkar vilja undir þinn vilja og felum þér sjálfa ástina í hjarta okkar.
4.
Jesús, við biðjum þig að gefa okkur kjark til að hætta að metast hvert við annað. Hjálpaðu okkur að þora að sjá að við erum systkin og jafningjar, og gefðu okkur
þrek til að lifa samkvæmt því. Við biðjum fyrir starfinu í kirkjunum okkar, hér í Langholtskirkju, Áskirkju og í Laugarneskirkju. Láttu alla sem þar koma inn fyrir þröskuld skynja að í húsi Guðs er pláss fyrir fólk af því þú hefur pláss fyrir alla. Almáttugi faðir, skapari allra manna,Jesús Kristur, frelsari allra manna,Heilagur andi, huggari allra manna. Við viljum vera þitt fólk, þínir lærisveinar, þín kirkja í Jesú nafni. Amen.

(Séra Bjarni Karlsson)

Málþing PÍ og FAS

Prestafélag Íslands (PÍ) og samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra (FAS) efndu til þriggja málþinga um samkynhneigð, kirkju og trú á árunum 2003 – 2005 þar sem að fjallað var m.a. um blessanir samkynhneigðra para. Erindi þeirra málþinga komu út í sérriti Kirkjuritsins sumarið 2005.

Um málþing PÍ og FAS um samkynhneigð, kirkju og trú

Undanfarna áratugi hefur töluverð umræða farið fram hér á landi, sem víða um heim, um stöðu samkynhneigðra í samfélaginu sem og innan kristinna kirkna. Óhætt er að segja að staða samkynhneigðra hafi breyst verulega til batnaðar hér á landi á síðustu áratugum, ekki síst fyrir þrotlaust starf Samtakanna ´78 og annarra málsvara samkynhneigðra. Stjórnvöld hafa unnið farsællega að réttarbótum til að jafna stöðu samkynhneigðra til jafns við aðra þegna þessa lands,
m.a. með löggjöf frá Alþingi. Ljóst er að viðhorf til samkynhneigðra hafa breyst – en þó er mikið verk óunnið. Prestastefna og Kirkjuþing tóku þetta málefni
til umræðu á árunum 1996-1998 og var stefnt að aukinni fræðslu og umræðu innan íslensku þjóðkirkjunnar. Af því varð þó ekki eins og stefnt var að.

Hver var aðdragandinn að samstarfi FAS og PÍ? Foreldrar og aðstandendur samkynhneigðra hafa starfað undir regnhlíf Samtakanna ´78, samfellt frá árinu 2000. Flestir sem að því starfi hafa komið eru þegnar þjóðkirkjunnar. Mörgum foreldrum hefur fundist skorta á málefnalega umræðu um samkynhneigð, kirkju og trú og þögn þjóðkirkjunnar hefur valdið mörgum áhyggjum. Í ljósi þess var ákveðið að leita til Prestafélags Íslands eftir samstarfi og samræðu um málefni samkynhneigðra og kirkju. Haustið 2003 voru Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, FAS, formleg stofnuð. Nokkru fyrir stofnfundinn átti Harpa Njáls, sem leitt hafði starf foreldra og aðstandenda frá upphafi og Jón Helgi Þórarinsson, formaður PÍ, samtal þar sem formaður FAS spurði hvort Prestafélag Íslands væri reiðubúið að ganga til samstarfs við foreldra og aðstandendur og taka upp samræður um stöðu samkynhneigðra og fjölskyldna þeirra innan þjóðkirkjunnar og væntingar þeirra. Var þeirri málaleitan vel tekið og eftir nánari umræðu stjórnar PÍ var ákveðið að taka höndum saman við FAS um að hefja faglega umræðu og fræðslu á vegum félaganna. Stjórnir FAS og PÍ skipuðu starfshóp með þremur aðilu frá hvoru félagi. Frá samtökunum FAS þau Ingibjörgu S. Guðmundsdóttur, varaformann, sr. Sigfinn Þorleifsson sem situr í stjórn og Hörpu Njáls formann. Fulltrúar Prestafélags Íslands voru sr. Ólafur Jóhannsson, formaður, sr. Hreinn Hákonarson, fangaprestur og sr. Jón Helgi Þórarinnsson f.v. formaður PÍ. Eftir að Jón Helgi hætti formennsku vorið 2004, óskaði hann eftir að draga sig út úr hópnum vegna annarra verkefna og kom þá sr. Guðný Hallgrímsdóttir, prestur þroskaheftra, til liðs við hópinn.

Tilgangur samstarfsins og markmið voru skýr frá upphafi: Að ræða á opinskáan hátt málefni samkynhneigðra og kirkjunnar og leitast við að vinna
faglega að upplýstri og málefnalegri umræðu. Ákveðið var að ná því fram með þremur málþingum og voru öll haldin í safnaðarheimili Grensáskirkju. Fyrsta
málþingið um Samkynhneigð, kirkju og trú var haldið í febrúar 2004. Það hafði yfirskriftina: Hvar stöndum við? Annað málþingið var haldið í maí 2004:
Fjölskyldur samkynhneigðra og hjúskarparform. Hið þriðja var haldið í mars 2005. Yfirskrift þess var: Getur íslenska þjóðkirkjan haft frumkvæði í málefnu samkynhneigðra? Biskup Íslands ávarpaði fyrsta málþingið.

Óhætt er að segja að samstarf FAS og PÍ hafi eflt umræðu í samfélaginu og komið umræðu um málefni samkynhneigðra á hreyfingu innan kirkjunnar. Hér verða
nefnd dæmi. Starfshópur FAS og PÍ spurðist fyrir um Fjölskyldustefnu þjóðkirkjunnar í ársbyrjun 2004. Í ljós kom að á Kirkjuþingi 1994 var lögð fram vönduð
skýrsla um málefnið og kynnti starfsmaður Biskupsstofu hana fyrir hópnum. Nú er verið að endurskoða fjölskyldustefnu þjóðkirkjunnar. Vorið 2004 hvatti
samstarfshópur FAS og PÍ biskupi Íslands til að koma af stað umræðu og starfi um málefni samkynhneigðrir innan kirkjunnar. Biskup skipaði starfshóp um málefni
samkynhneigðra innan þjóðkirkjunnar á Prestastefnu 2004. Þá átti samstarfshópurinn gagnlegan fund með biskupi Íslands síðla hausts. Leikmannaskóli
þjóðkirkjunnar fékk dr. Sólveigu Önnu Bóasdóttur til liðs við sig haustið 2004 og hélt námskeið um samkynhneigð og kirkjuna. Það var fyrsta skref kirkjunnar til fræðslu um samkynhneigð frá árinu 1998.

Það sama haust var myndaður samstarfshópur til að vinna að fræðsluefni fyrir presta, sóknarnefndafólk og annað starfsfólk kirkna. Sótt var um styrk til
Kristnihátíðarsjóðs til að vinna verkefninu brautargengi, sem fékkst. Hópinn skipa f.v. formaður PÍ, formaður FAS, forsvarsmaður trúarhóps Samtakanna´78 (ÁST) og fulltrúi Leikmannaskóla þjóðkirkjunnar sem er starfsmaður Biskupsstofu og átti frumkvæði að samstarfinu. Gildi verkefnisins felst m.a. í því að breiður hópur fólks sem lætur sig fræðslu um trú og aðstæður samkynhneigðra varða mun hafa umsjón með verkefninu. Hér er um að ræða ákveðið brautryðjendastarf á svið fullorðinsfræðslu innan kirkjunnar.

Á síðasta málþingi félaganna í mars 2005 var ákveðið að stjórnir FAS og PÍ skipi þriggja manna starfshóp. Hlutverk hópsins er að gera hjónavígsluritual sem gildir jafnt fyrir vígslu allra hjóna óháð því hvort um gagnkynhneigða eða samkynhneigða er að ræða. Hópurinn mun skila af sér á haustdögum.

Þegar litið er til baka er óhætt að segja að samstarf FAS og PÍ hafi borið blómlegan ávöxt. Samstarf þessara tveggja félaga hefur verið mjög farsælt og segja má að
þar hafi einstaklingar mæst með opinn huga og vilja til að ræða viðkvæmt málefni af einurð og einlægni og finna farveg og vettvang til umræðu og fræðslu. Verkefnið var brýnt.

Afrakstur ofangreindra málþinga FAS og PÍ er útgefinn í sérriti Kirkjuritsins “Samkynhneigð, kirkja og trú: Hvar stöndum við?”. Tuttugu erindi voru flutt. Með
útgáfu erindanna er þess vænst að efla megi enn frekar málefnalega umræðu og fræðslu á vettvangi samfélags og kirkju. Formaður FAS, Harpa Njáls félagsfræðingur, skipulagði málþingin þrjú og hún safnað efninu einnig saman og undirbjó til útgáfu.

Málþing PÍ og FAS um samkynhneigð, kirkju og trú
Texti: Harpa Njáls