Um vefinn
Vorið 2004 skipaði biskup Íslands starfshóp um málefni samkynhneigðra innan þjóðkirkjunnar. Í honum eru séra Jón Helgi Þórarinsson, séra Kristín Þórunn Tómasdóttir, og Grétar Einarsson. Í bréfi biskups til starfshópsins segir að eitt af verkefnum starfshópsins sé að miðla upplýsingum um stöðu þessara mála innanlands sem erlendis og gera aðgengilegt t.d. á kirkjuvefnum. Þessi vefsíða er því hluti af verkefni starfshópsins og er textinn hér skrifaður af honum. Vefsíðan var opnuð á kirkjudögum 25. júní 2005. Stefnt er að því að auka við og bæta efni hennar í sumar og síðan áfram næsta vetur.
Í bréfi biskups til starfshópsins segir m.a:
‘Um árabil hefur átt sér stað óformlegt samtal milli þjóðkirkju og samtaka samkynhneigðra. Starfshópnum er ætlað að fylgja því samtali eftir með því að safna upplýsingum um það hvernig þessi mál standa innan kirkjunnar og gera aðgengilegar, t.d. á kirkjuvefnum. Safna saman og gera eins aðgengilegar upplýsingar um samþykktir og skýrslur kirkna og samkirkjustofnana og annað sem getur varpað ljósi á það hvernig umræðan er stödd í nágrannakirkjum okkar. Standa fyrir umræðum á vettvangi þjóðkirkjunnar, hlusta á sjónarmið og stuðla að skilningi og upplýstri umræðu.’
Nánar um starfshópinn
Jón Helgi Þórarinsson er sóknarprestur í Langholtskirkju, var formaður Prestafélags Íslands (PÍ) 2000 – 2004 og tók þar virkan þátt í samstarfi PÍ og FAS (Félagi aðstandenda samkynhneigðra), er í vinnuhópi sem fékk styrk úr Kristnihátíðarsjóði til að útbúa fræðsluefni um samkynhneigð og trú.
Kristín Þórunn Tómasdóttir er héraðsprestur í Kjalarnesprófastsdæmi, á sæti í helgisiðanefnd þjóðkirkjunnar og er í stjórn Lútherska heimssambandsins af hálfu þjóðkirkjunnar. Hún er formaður starfshóps Lútherska heimssambandsins um málefni fjölskyldu, hjónabands og kynlífs, sem vinnur að yfirliti og greiningu á því hvernig kirkjurnar hafa fjallað um þau mál innan sinni vébanda.
Grétar Einarsson er verslunarmaður og leiðir trúarhóp samkynhneigðra (ÁST).
Nánar um uppbyggingu vefsins
Vefurinn hefur nokkra meginkafla. Í fyrsta lagi Fræðslustarf og fjölskyldustefna þjóðkirkjunnar, sem gefur yfirlit um hvernig málefni samkynhneigðra hafa komið til umfjöllunar í þjóðkirkjunni, rekur yfirlit um samþykktir og nefndastörf og þá fræðslu sem þjóðkirkjan hefur staðið fyrir innan sinna vébanda. Í annan stað má finna svæði með fræðilegum greinum um guðfræðileg álitamál, sem starfshópurinn hefur látið vinna. Fyrsta greinin sem birtist er eftir dr. Clarence Glad og fjallar um kennivald Biblíunnar. Í þriðja lagi er yfirlit um umræðu um samkynhneigð og kirkju í hinu alþjóðlega kirknasamfélagi sem þjóðkirkjan er hluti af. Sérstaklega er hugað þar að starfi meðal annarra lútherskra kirkna. Þá er sérstakur kafli sem snertir umræðuna um staðfesta samvist og kirkjulega blessun samkynhneigðra. Sérstök síða er helguð tenglum í aðrar vefsíður um þetta efni og þá er stutt yfirlit um trúarlegt starf samkynhneigðra.
Það er von starfshóps um málefni samkynhneigðra innan þjóðkirkjunnar að vefsvæði þetta samræmist tilgangi starfshópsins, að miðla upplýsingum um stöðu þessara mála innanlands sem erlendis.



