Helgihald
Almennar messur eru annan hvern sunnudag allt árið. Kór kirkjunnar leiðir söng, við sérstök tækifæri syngur Sigurdríf Jónatansdóttir einsöng með kórnum. Stjórnandi kórsins er Rögnvaldur Valbergsson. Yfir vetrartímann eru messurnar kl. 14 en sumarmessurnar eru kl. 20.
Sunnudagskóli kl.11 alla sunnudaga yfir vetrarmánuðina.
Kyrrðarstundir eru kvöldmessur með altarisgöngu alla miðvikudaga kl. 20 yfir vetrartímann. Messurnar eru um hálftímalangar og tekið er við fyrirbænum áður en athöfn hefst.
Í kirkjunum í Hvammsókn og Ketusókn er messað samtals fjórum sinnum á ári að meðaltali.