Næstkomandi sunnudagskvöld, 26.febrúar kl.20.30 verður kvöldmessa í Sauðárkrókskirkju sem tileinkun er austuríska tónskáldinu Wolfgang Amadeusi Mozart. Kirkjukórinn hefur æft af kappi lög eftir tónskáldið og öll tónlist í messunni er eftir Mozart. Helga Rós Indriðadóttir syngur einsöng með kórnum. Organisti og stjórnandi er Rögnvaldur Valbergsson, prestur sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Fermingarbörn lesa ritningarlestra.
Enginn tónlistarunnandi ætti að láta þessa messu framhjá sér fara. Verið velkomin til kirkjunnar.
Sigríður Gunnarsdóttir, 23/2 2012
Sunnudaginn 19. febrúar verður sunnudagaskóli kl.11. Umsjón hafa Guja, Fanney Rós og Rögnvaldur situr við píanóið. Gæðastund fyrir foreldra og börn.
Að þessu sinni fá fimm ára börn (börn fædd árið 2006) gefins skemmtilega bók frá kirkjunni sem heitir Óli og Kata fara í kirkju.
Verið velkomin!
Sigríður Gunnarsdóttir, 14/2 2012
Sunndaginn 12.febrúar er sunnudagaskóli kl.11 í umsjón Guju, Fanneyjar Rósar og Rögnvaldur leikur á píanóið. Hafdís og Klemmi kíkja í heimsókn. Gæðastund fyrir börn og foreldra.
Messa kl. 14. Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Rögnvaldar organista. Fermingarbörn lesa ritningarlestra. Kleinukaffi í safnaðarheimilinu eftir messu.
Verið velkomin til kirkjunnar!
Sigríður Gunnarsdóttir, 7/2 2012
Sunnudaginn 5.febrúar er sunnudagaskóli kl.11 og messa kl.14. Kirkjukórinn leiðir söng og fermingarbörn lesa ritningarlestra. Kaffi og kleinur í safnaðarheimilinu á eftir. Verið velkomin til kirkjunnar.
Sigríður Gunnarsdóttir, 1/2 2012
Næstkomandi sunnudagskvöld er kyrrðarstund (Taize-messa) í Sauðárkrókskirkju kl.20.30.
Einfaldleikinn er í fyrirrúmi, aðgengilegir sálmar, ritningarlestrar, bænir og altarisganga. Tekið við fyrirbænum á staðnum. Verið velkomin til kirkju.
Sigríður Gunnarsdóttir, 27/1 2012
Gleðilegt nýtt ár og bestu þakkir fyrir gamla árið.
Nú fer allt að færast í fastar skorður í kirkjustarfinu
Opið hús fyrir foreldra ungra barna á þriðjudögum kl.10-12.
Föndur fyrir (h)eldri borgara á miðvikudögum kl.13-16.
Stubbarnir, kirkjustarf fyrir 10-12 ára krakka á fimmtudögum kl.17-18.15 (fyrsti fundur 19.janúar)
Fermingarfræðslustundir byrja þriðjudaginn 7. febrúar á sama tíma og áður.
Fyrsta messa á nýju ári verður á þriðja sunnudegi eftir þrettánda, 22. janúar kl.14
Kyrrðarstund (Taize-messa) verður 29.janúar kl.20.30
Sigríður Gunnarsdóttir, 10/1 2012
Kyrrðarstund á Þorláksmessukvöldi kl.21:00. Ólöf Ólafsdóttir sópran syngur jólasálma og sígild jólalög.
Aftansöngur á aðfangadegi jóla kl.18:00. Matthildur Kemp Guðnadóttir leikur á fiðlu og Sveinn Sigurbjörnsson blæs í trompet.
Miðnæturmessa kl.23.30. Sigurdríf Jónatansdóttir syngur einsöng.
Hátíðarmessa á jóladag kl.14. Árni Geir Sigurbjörnsson syngur einsöng.
Hátíðarmessa á jóladag kl.15.30, dvalarheimilinu Sauðárhæðum.
Jólamessa á öðrum degi jóla kl.14 í Hvammskirkju á Laxárdal. Forsöngvari Pétur Pétursson.
Verið velkomin til kirkj!
Sigríður Gunnarsdóttir, 23/12 2011
Aðventukvöld verður í Skagaseli, sunnudaginn 11.desember, kl.20. Ræðumaður kvöldsins verður sr. Ólafur Hallgrímsson emeritus á Mælifelli. Rakel Rögnvaldsdóttir syngur nokkur lög við undirleik Rögnvaldar Valbergssonar. Kaffiboð að hætti Skagakvenna. Verið hjartanlega velkomin.
Sigríður Gunnarsdóttir, 7/12 2011
Aðventuhátíðin verður annan sunnudag í aðventu, 4.desember kl.20. Að venju koma margir að hátíðinni, kirkjukórinn syngur jólasálma undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar, yngstu börnin úr skólakór Árskóla flytja nokkur lög, stjórnandi þeirra er Íris Baldvinsdóttir og börn úr Stubbastarfinu koma fram.
Skátar koma með friðarlogann frá Betlehem og tendra ljós á aðventukransinum. Arnrún Halla Arnórsdóttir flytur hugvekju. Eftir stundina í kirkjunni er kirkjugestum boðið upp á heitt súkkulaði og piparkökur í safnaðarheimilnu.
Verið hjartanlega velkomin!
Sigríður Gunnarsdóttir, 30/11 2011
Næsta sunnudag, 27.nóvember er fyrsti sunnudagur í aðventu. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað kl.11 og nú er óhætt að byrja að syngja jólalögin. Hátíðarmessa verður kl.14 og þar verður m.a minnst víglsuafmælis Sauðárkrókskirkju en kirkjan okkar var vígð 18.desember 1892 og rúmaði 350 manns. Við fögnum nýju kirkjuári, upphafi aðventunnar og afmælis kirkjunnar, syngjum hátíðartónið og aðventusálma. Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng, fermingarbörn lesa ritningarlestra og sóknarprestur þjónar fyrir altari og prédikar.
Eftir messuna bjóða velunnarar safnaðarins í kvenfélagi Skarðshrepps til kaffisamsætis í safnaðarheimilinu og ef að líkum lætur verður það mikil veisla.
Verið hjartanlega velkomin til kirkjunnar!
Sigríður Gunnarsdóttir, 24/11 2011