Sauðárkrókskirkja

 

Messa á þjóðhátíðardeginum 17.júní

Þann 17.júní hefjast hátíðarhöld á Sauðárkróki með messu kl.11

Félagar úr kirkjukórnum leiða söng og syngja alla fallegu ættjarðarsálmana sem okkur þykir svo vænt um. Organisti Rögnvaldur Valbergsson og prestur sr.Sigríður Gunnarsdóttir.

Verið velkomin til kirkjunnar á þjóðhátíðardegi Íslendinga!

Sigríður Gunnarsdóttir, 16/6 2009

Tvær messur 14. júní

Um næstu helgi verður messað á Dvalarheimilinu kl.14,

VIð bregðum út af vananum og förum yfir Sauðármýrarnar og messum í Sjávarborgarkirkju kl.16

Sjávarborgarkirkja er ekki sóknarkirkja og er í umsjón Þjóðminjasafnsins, lítið og fallegt Guðshús sem vel þess virði er að skoða.

Sigríður Gunnarsdóttir, 10/6 2009

Hátíðarmessa á hvítasunnudag

Á hvítasunndag, 31.maí er hátíðarmessa kl.11
Kirkjukórinn leiðir söng og organisti er Rögnvaldur Valbergsson, sr. Sigríður Gunnarsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Í messunni verða fermd síðustu fermingarbörn þessa vors í Sauðárkrókssókn en þau eru Einar Logi Þorvaldsson, Lydía Ýr Gunnarsdóttir og Marta Laufey Árdal.
Verið velkomin til kirkjunnar!

Sigríður Gunnarsdóttir, 28/5 2009

Fermingarbörn 2010

Nú er ekki seinna vænna en skrá fermingarbörn næsta vors í fræðsluna og ferðalag. Þegar hefur verið dreift skráningarblöðum til 7.bekkinga sem foreldrar eru beðin að útfylla samviskusamlega og skila til sóknarprests eða á skólaslitum á föstudag.

Að vanda verður fermingarstarfið hafið með fimm daga ferð í Vatnaskóg. Lagt verður af stað að morgni mánudags 31.ágúst og komið tilbaka síðdegis föstudaginn 4. september. Í skóginum verður blandað saman fræðslu, helgihaldi, leik og útivist en fyrir þau sem ekki vita er Vatnaskógur við Eyrarvatn í Svínadal í Hvalfjarðarsveit, skammt frá Hótel Glym. Héraðssjóður Skagafjarðarprófastdæmis og Sauðárkrókssókn greiða niður ferðina að hluta en hvert fermingarbarn borgar 14.000 krónur.  Innifalið í því verði er fullt fæði og ferðir. Ef einhver er þarf á fjárhagsaðstoð að halda er viðkomandi beðinn að hafa samband við Sigríði, í síma 862 8293 eða tölvupósti sigridur.gunnarsdottir@kirkjan.is 

Sömu fermingardagar verða í boði og undanfarin ár, þ.e pálmasunnudagur sem ber upp á 28.mars og laugardagur eftir páska 10.apríl.

Hlakka til að kynnast nýjum árgangi og nýjum foreldrum:-)

Sigríður Gunnarsdóttir, 28/5 2009

Messa kl.11 á uppstigningardag

Þann 21.maí nk. er uppstigningardagur sem er einnig dagur aldraðra. Þá er messa kl.11 og við fáum góða gesti til að aðstoða við messugjörðina. Sönghópur eldri borgara leiðir söng við undirleik Jóhönnu Marínar Óskarsdóttur. Sr. Stína Gíslasdóttir á Blönduósi prédikar. Sr.Sigríður Gunnarsdóttir þjónar fyrir altari.

Verið velkomin til kirkju á uppstigningardegi!

Sigríður Gunnarsdóttir, 14/5 2009

Fögnum sumarkomu með skátamessu

Gleðilegt sumar og hjartans þakkir fyrir veturinn!

Á sumardaginn fyrsta er skátamessa kl.11. Skátar lesa ritningarlestra, skátasöngvar sungnir og Tryggvi Marinósson skáti frá Akureyri flytur hugleiðingu. Allir velkomnir, skrúðganga frá FNV kl.10.30.

Sigríður Gunnarsdóttir, 23/4 2009

Vorferð Stubba í Vatnaskóg

Dagana 1.-3.maí ætla Stubbar (10-12 ára börn í barnastarfinu) að bregða sér á mót í Vatnaskóg. Farið verður frá kirkjunni kl.08:00 stundvíslega. Hér fylgja DRÖG að dagskrá, mótsstjóri sr.Sigurður Grétar á Hvammstanga áskilur sér allan rétt til að breyta dagskrá ef að svo ber undir.

TTT-MÓT Í VATNASKÓGI 1.-3. MAÍ 2009

Fös. 1. maí

12.00  Komið á staðinn.  Hópur A kemur sér fyrir skv. auglýstu skipulagi.  Hópur B fer beint í mat.Allir koma sér fyrir skv. auglýstu skipulagi.

12.30  Hópur A í mat, hópur B kemur sér fyrir.  Í þessum matartímum eru reglur kynntar.

13.00  Frjáls tími.  Bátar, íþróttahús, knattspyrna ofl. tilboð.

15.30  Kaffi

16.00  Frjáls tími.  Bátar, íþróttahús ofl.

19.00  Kvöldmatur hópur A (auglýst á staðnum hver er í hvorum hóp)

19.30  Kvöldmatur  hópur B

20.00  Frjáls tími – íþróttahús, staðarskoðun, fótbolti, e.t.v. bátar.

21.30  Kvöldvaka í íþróttahúsi. 

22.30     Kvöldhressing

22.45     Kapellustund.  Umsjón Sig. Grétar

23.30     Allir inn á sín herbergi – búa sig í háttinn.

00.00  Svefnfriður

Lau. 2. maí

08.30     Vakið

08.50  Morgunmatur -fljótandi

09.45  Morgunstund í íþróttahúsi – Umsjón SGS, söngur, fræðsla.

10.30  Hópastarf.

12.00  Hádegisverður A

12.30  Hádegisv. B

13.00  Frjáls tími – ýmis dagskrártilboð eftir veðri. 

15.30  Kaffi – fljótandi umferð

16.00  Frjáls tími – áframhaldandi dagskrártilboð

19.00  Kvöldmatur A

19.30  Kvöldmatur B

19.30  Undirbúningur kvöldvöku, frjáls tími.

20.30  Kvöldvaka, atriði frá krökkum, söngur ofl

22.00   Farið í Hallgrímskirkju í Saurbæ – Sælustund með söng og hugvekju.  23.15  Kvöldhressing fyrir þau sem vilja, ávextir

 23.30  Allir í háttinn

00.30  Svefnfriður

Sun.  3. maí

09.00 Vakið – tiltekt, stafla dýnum.  Grófhreinsa herbergi og sópa.  Halda sunddóti aðgreindu

09.30  Morgunmatur - fljótandi

10.00  Frjálst

11.00  Útimessa í Skógarkirkju

11.45  Hádegisverður Sauðárkr. A

12.15  Hádegisverður  B

13.00  Brottför.  Farið í sund í Borgarnesi.  

Sigríður Gunnarsdóttir, 17/4 2009

Fermingarmessa 18.apríl

Síðasta ferming af þremur verður laugardaginn 18.apríl kl.11 

Kirkjukórinn leiðir almennan söng, organisti Rögnvaldur Valbergsson, meðhjálparar Baldvin Kristjánsson og Guðrún Björnsdóttir.

Verið velkomin til kirkjunnar

Sigríður Gunnarsdóttir, 17/4 2009

Helgihald um bænadaga og páska

Miðvikudagur 8.apríl

Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 20

Skírdagur 9.apríl

Margrét Eir heldur tónleika í boði sóknarinnar kl. 20.

Með henni koma fram Börkur Hrafn Birgisson gítarleikari úr Jagúar og Rögnvaldur Valbergsson organisti.

Síðustu kvöldmáltíðarinnar minnst með altarisgöngu, þar sem efnin eru nýbakað brauð úr Sauðárkróksbakarí og safaríkar vínþrúgur. 

Föstudagurinn langi 10. apríl

Messa kl.17

Píslarsagan lesin og litanían sungin.

Laugardagur 11.apríl

Fermingarmessa kl.11

Páskadagur 12. apríl

Hátíðarmessa kl.8

Sóknarnefndin býður upp á morgunverðarhlaðborð í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

Hátíðarmessa á Dvalarheimilinu Sauðárhæðum kl.14

Annar í páskum 13.apríl

Messa í Hvammskirkju kl.14 

 

 

Sigríður Gunnarsdóttir, 2/4 2009

Sunnudagaskóli og messa

Sunnudagur 15.mars, þriðji sunnudagur í föstu

Sunnudagaskóli kl.11

Guðsþjónusta kl.14

Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar organista, fermingarbörn lesa ritningarlestra. Barn borið til skírnar í messunni. Boðið upp á kaffisopa og kleinur í safnaðarheimilinu á eftir.

Verið velkomin til helgihaldsins!

Sigríður Gunnarsdóttir, 12/3 2009

Kirkjan er opin samkvæmt samkomulagi.
Kirkjuvörður Baldvin Kristjánsson, s:8925536.
Organisti Rögnvaldur Valbergsson s. 8635871.
Sóknarprestur Sigríður Gunnarsdóttir, s. 8628293

Miðvikudagur

13 Föndur heldri borgara

Dagskrá ...