Seljakirkja

 

Steindir gluggar

Það hefur frá upphafi verið löngun og ætlun safnaðarfólks að prýða kirkjuna með lituðu gleri. Ákveðið var að þar yrði myndefni, sem jafnframt væri ungum og öldnum í söfnuðinum fræðsla um þætti trúarinnar. Myndefnið fylgir hjálpræðissögunni, frá sköpun, um Gamla testamentið, frásögnum guðspjallanna, og sögu kirkjunnar. Til þess starfs var Einar Hákonarson myndlistarmaður ráðinn. Vinnsla myndanna í gler er nú hafin, en hún fer fram í glerverkstæði Oidtmans í Þýskalandi, en þar hafa verið unnin fjölmörg listaverk fyrir kirkjur og opinberar byggingar hér á landi.

Söfnunarátak

Kostnaður við gerð glugganna er mikill, en með samstilltu átaki okkar allra hér í Seljasókn náum við, sem öll erum eigendur þessa góða húss, að prýða kirkjuna okkar á þessum tímamótum. Við leitum því til allra sóknarbarna með von um góðar undirtektir, því það er vel við hæfi að þetta fallega myndverk verði sett upp fyrir 20 ára vígsluafmælið. Í tilefni þessa söfnunarátaks hefur verið opnaður sérstakur bankareikningur í nafni gluggasjóðs Seljakirkju nr. 0319 -13 - 301510. Kennitala sóknarinnar er 651180 - 0319. Hér að neðan má finna myndir af öllum gluggunum og ef smellt er á myndina má sjá stærri mynd af hverjum glugga.

 

Seljakirkja, Hagaseli 40, 109 Reykjavík. Sími 567 0110 , fax 557 1910 · Kerfi RSS