Seljakirkja

 

Æskulýðsstarf

Í Seljakirkju starfar æskulýðsfélagið Sela fyrir unlinga í 8. - 10. bekk. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og miðar að þörfum unglinga. Hver einasti fundur hefst með helgistund í kirkjunni, þar sem bænir eru beðnar og hugleiðing flutt. Að helgistund lokinni taka við fjölbreytt verkefni og skemmtileg sem miða að því efla félagsandann og styrkja trú þátttakenda. Samstarf er haft við önnur æskulýðsfélagið og Sela tekur virkan þátt í starfsemi ÆSKR. Að sjálfsögðu eru engin þátttökugjöld, en upp kunna að koma sérstakir viðburðir sem þar að greiða einhvern kostnað.

Fundartími er mánudagur kl. 20.
Leiðtogar: Berglind Ólafsdóttir, Gunnar Óli Markússon,  Sandra Rut Ásgeirsdóttir, Sunna Björg Gunnarsdóttir, Unnur Rún Sveinsdóttir.

 

Seljakirkja, Hagaseli 40, 109 Reykjavík. Sími 567 0110 , fax 557 1910 · Kerfi RSS