Safnaðarstarf
Í Seljakirkju er fjölbreytt safnaðarstarf þar sem flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Ef smellt er á fyrirsagnir hér að neðan má finna nánari upplýsingar um viðkomandi þátt safnaðarstarfsins. Í öllu safnaðarstarfi þarf ekki að greiða þátttökugjöld nema í barnakórnum þar sem kostnaði er þó haldið í lágmarki. Komum til kirkjunnar og tökum þátt í safnaðarstarfinu.
KFUK
KFUK í Seljakirkju er fyrir 9 -12 ára stúlkur. Fundarefni eru fjölbreytt, fræðsla, leikir söngvar og létt gaman. Mánudagar kl. 17:30. Leiðtogar í KFUK eru Sólveig og Margrét Reynisdætur og Berglind.
KFUM
KFUM fyrir 9-12 ára stráka. Viðfangsefni fundanna er fjölbreytt og það eru hressir strákar sem þarna hittast. Fimmtudagar kl. 16:30. Leiðtogar KFUM eru séra Ólafur Jóhann Borgþórsson og Hreinn Pálsson
Barnakór
Í kirkjunni er starfandi barnakór fyrir börn frá 7 ára aldri. Lögð er áhersla á fallega raddbeitingu, nótnalestur, tónfræði og ekki síst gleði og góðan félagsskap.
Æskulýðsfélagið SELA
Starf fyrir unglinga safnaðarins. Fundarefni eru ævinlega við hæfi unglinga bæði til fræðslu og til skemmtunar. Fundirnir eru á mánudagskvöld kl. 20:00 - 21:30.
Foreldramorgnar
Í kirkjunni hittast foreldrar með litlu börnin og ræða saman. Fjallað er um málefni foreldra, en annars er samveran óformleg og börnin hafa úrval góðra leikfanga - Þriðjudagar kl. 10-12. Umsjón með morgnunum hefur Sigríður Sverrisdóttir.
Biblíulestrar
Þar eru tekin fyrir einstök rit Biblíunnar, þau útskýrð með fyrirlestri og síðan hópumræðum. Í vetur (2011 - 2012) verða tekin fyrir bréf Nýja testamentisins önnur en þau sem Páll postuli skrifaði.
Kór Seljakirkju
Kórinn leiðir söng við guðsþjónustur og flytur fjölbreytta tónlist við athafnir og hátíðir kirkjunnar. Kórstjóri er Tómas Guðni Eggertsson, tónlistarstjóri kirkjunnar - kórinn æfir á þriðjudögum kl. 20.
Kvenfélag Seljasóknar
Fundir kvenfélagsins eru að jafnaði fyrsta þriðjudag hvers mánaðar. Fundarefni er fjölbreytt með fræðslu skemmtun og námskeiðahaldi.
Seljur, kór kvenfélagsins
Innan Kvenfélags Seljasóknar starfar kvennakórinn Seljur. Á verkefnaskrá kórsins eru hin fjölbreyttustu verk.
- Miðvikudagar kl. 20.
Samverur eldri borgara
Samverur eru fyrir eldri borgara síðasta þriðjudag hvers mánaðar og hefjast kl. 18. Dagskrá tengd spjalli og skemmtun. Léttur málsverður í lok samkomunnar.
AA fundir
Í tengslum við safnaðarstarfið í Seljakirkju eru fjórar AA - deildir. Opnir AA - fundir eru á sunnudagskvöldum kl. 21. Sporadeildarfundir eru á mánudagskvöldum kl. 19.30. Almennir AA - fundir eru á fimmtudögum kl. 19 og á laugardögum kl. 16.
Skógarbær
Síðasta sunnudag í mánuði er guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 16. Prestar Seljakirkju leiða þar helgihaldið og organasti og kór kirkjunnar leiða sönginn.