Seljakirkja

 

KFUM

KFUM starfið í Seljakirkju er fyrir alla 9 - 12 ára drengi. Leiðtogar eru þeir Ólafur Jóhann Borgþórsson, Bogi Benediktsson, Björn Leví Óskarsson og Hreinn Pálsson. Fundir eru alla fimmtudaga kl. 16.30 og eru þeir bæði skemmtilegir og uppbyggjandi. Fundirnir byggjast upp á þann hátt að fyrst er helgistund, þar sem er sungið, beðið og Biblíusaga sögð og síðan er farið í önnur verkefni. Að sjálfsögðu eru engin þátttökugjöld.

 

Seljakirkja, Hagaseli 40, 109 Reykjavík. Sími 567 0110 , fax 557 1910 · Kerfi RSS