Kirkjukór
Kirkjukórinn er undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar. Kórinn æfir á þriðjudagskvöldum kl. 19:30 - 21:30 einnig er gert ráð fyrir 1 klst æfingu fyrir athafnir.
Stofnfundur Kirkjukórs Seljakirkju var 16. maí 1981. Kórinn hefur síðan verið undir stjórn nokkurra kórstjóra. Ólafur Finnson var sá fyrsti.
Kórinn hefur það hlutverk að leiða almennan safnaðarsöng í guðsþjónustum og jafnframt það að flytja umfangsmeiri tónverk fyrir söfnuðinn til þess að setja hátíðlegri blæ á hana.
Kórinn kemur fram í Guðsþjónustum í hverri viku á sunnudögum kl. 14.00 í Seljakirkju, einnig tekur kórinn þátt í kvöldmessum þriðja sunnudag í hverjum mánuði með Þorvaldi Halldórssyni og eru þær kl.20.00. Síðasta sunnudag í hverjum mánuði eru svo guðsþjónustur í Skógarbæ kl. 16.00.
Gert er ráð fyrir því að kórinn haldi að minnsta kosti tvenna tónleika á ári, aðventu og vortóneikar.
Kórinn fer einu sinni á önn í æfingarbúðir sem eru skipulagðar af tónlistarstjóra og stjórn kórsins. Þær eru oftast yfir helgi.
Kórinn hefur reglulega farið í ferðir til útlanda sem eru í senn söng og skemmtiferðir. Árið 2005 fór kórinn til Austurríkis, Þýskalands og Sviss. Í ferðinni hélt kórinn tvenna auglýsta tónleika. Í kirkju í Austurríki nánar tiltekið í Lautasch og á útitónleikasviði í Ruhpolding í Þýskalandi. Þessi ferð var einstaklega vel skipulögð og frábærlega heppnuð.