Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi

 

Þingmálafundir

Þingmálafundir 4. kjördæmis verða haldnir annars vegar þriðjudaginn 27. september 2011 kl. 20 í í sal gamla skólans í Reykholti og hins vegar í Grundarfirði, safnaðarheimili Grundarfjarðarkirkju, fimmtudaginn 29. september 2011, kl. 20.

Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason, 23/9 2011

Settur prófastur

Séra Þorbjörn Hlynur Árnason, prófastur á Borg, hefur verið settur prófastur Vesturlandsprófastsdæmis frá 30. nóvember síðastliðnum til 1. mars 2011.

Engin héraðsnefnd er að störfum, en kosið verður í nýja héraðsnefnd fyrir 1, mars 2011.

Óskar Ingi Ingason, 2/12 2010

Prófastsdæmið sameinað Borgarfjarðarprófastsdæmi.

Nýtt prófastsdæmi verður til á morgunn, 30. nóvember, er Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi og Borgarfjarðarprófastsdæmi verða sameinuð í Vesturlandsprófastsdæmi.

Ekki hefur verið tilkynnt hver verður settur prófastur, en það skýrist líklega fljótlega.  Nýr prófastur verður svo skipaður fyrir 1. mars 2011.  Héraðsnefnd verður skipuð á næsta héraðsfundi, sem verður fyrir 1. mars 2011.  Kirkjuþing ákvað þetta gegn vilja heimamanna.

Óskar Ingi Ingason, 29/11 2010

Myndir frá fermingarbarnamóti 7. - 9. nóvember 2010

Myndir frá fermingarbarnamótinu sem haldið var dagana 7. - 9. nóvember eru komnar á netið. Krakkar frá Stykkishólms-, Dala- og Reykhólaprerstakalli voru á þessu móti.

Gunnar Eiríkur Hauksson, 19/11 2010

Tónlistarmessa í Stykkishólmskirkju

 Sunnudaginn 21. nóvember verður bryddað upp á þeirri nýbreytni að efna til tónlistarmessu í Stykkishólmskirkju kl. 17.00.

Lesa áfram …

Gunnar Eiríkur Hauksson, 18/11 2010

Fjölskylduguðsþjónusta í Ólafsvíkurkirkju og kirkjuskóli

ÓLAFSVÍKURKIRKJA SUNNUDAGINN 26. SEPTEMBER KL. 11:00

verður fjölskylduguðsþjónusta.
Barnakórinn syngur ásamt kór Ólafsvíkurkirkju.
Fermingarbörn og börn úr kirkjustarfinu lesa ritningarlestra og bænir.
Laugardaginn 25. september kl. 11:00 verður kirkjuskóli litla fólksins fyrir Ingjaldshólssókn og Ólafsvíkursókn. Kirkjumöppur vetrarins verða afhentar.
Komum í hús Drottins til bænar og þakkargjörðar
SÓKNARPRESTUR

Ragnheiður Karítas Pétursdóttir, 24/9 2010

NÁMSKEIÐ Í ANDLEGU FERÐALAGI SEM BYGGT ER Á 12 SPORA HUGMYNDAFRÆÐINNI

ÓLAFSVÍKUR OG INJGJALDSHÓLSSÓKNIR

STANDA SAMAN AÐ NÁMSKEIÐI Í ANDLEGU FERÐALAGI SEM BYGGT ER Á 12 SPORA HUGMYNDAFRÆÐINNI.

NÁMSKEIÐIÐ ER FYRIR ALLA ÞÁ SEM VILJA BYGGJA UPP ANDLEGA LÍÐAN SÍNA OG STYRK. NÁMSKEIÐIÐ ER FRÍTT OG HEFST Í
INGJALDSHÓLSKIRKJU FÖSTUDAGINN
24. SEPTEMBER FRÁ 20:00 TIL 22:00
OG LAUGARDAGINN FRÁ KL. 10:00 TIL 15:00

SÓKNARPRESTUR
Komum í hús Drottins til bænar og þakkargjörðar
Sóknaprestur

Ragnheiður Karítas Pétursdóttir, 24/9 2010

Helgiganga á Gufuskálum og ,,keltnesk” messa á Ingjaldshóli.

Sunnudaginn 19. september verður efnt til helgigöngu á Gufuskálum og  messu í Ingjaldshólskirkju.

Eftir stutta helgistund í kirkjunni sem hefst kl. 12. verður ekið í rútu að svokölluðum fiskibyrgjum við Gufuskála og gengið með keltneskan sólkross að einu byrgjanna og þar haldin stutt helgistund með keltnesku ívafi. Lesa áfram …

Ragnheiður Karítas Pétursdóttir, 14/9 2010

Velheppnuð helgiganga í Dölum

Helgingangan frá Auðartóftum að Krosshólaborg tókst afar vel.  Á vef Dalaprestakalls sagt frá göngunni og sýndar myndir.

Óskar Ingi Ingason, 20/6 2010

Helgiganga í Dölum 19. júní í minningu Auðar djúpúðgu

Helgiganga í minningu Auðar djúpúðgu verður farin laugardaginn 19. júní í Dölum, þar sem hún nam land fyrir rúmum 1100 árum. Auður djúpúðga Ketilsdóttir var eina konan í hópi landnámsfólks sem fór fyrir eigin leiðangri til Íslands og ein fárra þeirra sem Landnámabók segir að hafi verið kristinnar trúar. Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason, 11/6 2010

Aðrir vefir
Dalaprestakall
Setbergsprestakall

Forsíðumyndin:
Innandyranámskeið í Stykkishólmi 2007.

Aðrir vefir
Vefur Þjóðkirkjunnar
Fjölskylduþjónusta kirkjunnar
Leikmannaskólinn
Skálholt

Kirkjualmanak

Hjálparstarf

Barnatrú.is

Miðvikudagur

Viðtalstími sóknarprests Dalaprestakalls í Stjórnsýsluhúsinu kl. 11-12.
Bæna-og helgistundir eru á miðvikudögum kl. 12.30 í Setbergskirkju.

Dagskrá ...