Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi

 

Gleðilega páska

Í dag er mesta hátíð kristinna manna.

Kristur er upprisinn.  Kristur er sannarlega upprisinn!

Fram að uppstigningardag eru í kirkjunni gleðidagar. Löng hefð er fyrir á páskadag að þar ríki léttleiki og slegið á létta strengi.  Gleðilega páska!

Hér fylgja nokkrar tilkynningar sem gæti hafa birst í prófastsdæminu: Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason, 4/4 2010

Lestur Passíusálma í Hjarðarholtskirkju

Á föstudaginn langa voru Passíusálmar séra Hallgríms Péturssonar lesnir í heild sinni í sjöunda sinn í Hjarðarholtskirkju.  Björn Stefán Guðmundsson, Jóhannes Haukur Hauksson, Íris Björg Guðbjartsdóttir, Sesselja Árnadóttir og Eggert Aðalsteinn Antonsson sáu um lesturinn. Lesturinn hófst kl. 13:30 og tók rúmar 4 klst. Boðið var upp á kaffi og með því  í þjónustuhúsinu. Lesturinn var góður og þess má geta að Björn las sálma í fimmta sinn, en hann hefur þrisvar lesið sálmanna einn, þar af í fyrstu tvö árin.

Björn Stefán Guðmundsson les passíusálmana í Hjarðarholti 2010

Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason, 2/4 2010

Lestur Passíusálma og helgihald í Dalaprestakalli

  • Á skírdag, fimmtudaginn 1. apríl, verður messa með altarisgöngu kl. 14 í Hvammskirkju.
  • Sama dag verður lesguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 16 á Fellsenda.
  • Á föstudaginn langa, 2. apríl, munu Björn Stefán Guðmundsson, Jóhannes Haukur Hauksson, Íris Björg Guðbjartsdóttir, Sesselja Árnadóttir og Eggert Aðalsteinn Antonsson lesa Passíusálma Hallgríms í Hjarðarholtskirkju.  Lesturinn hefst kl. 1330 og tekur um 4,5 klst.  Einnig verður leikin tónlist.  Þetta er í sjöunda sinn hér sem sálmarnir eru lesnir í heild sinni á þennan hátt.  Kaffi og með því verður í þjónustuhúsinu.  Allir eru eins og ávallt hjartanlega velkomnir.  Það er í lagi að stoppa stutt, ef þannig stendur á og jafnvel koma aftur.
  • Á aðfangadag páska, laugardaginn 3. apríl, kl. 21 verður páskavaka í Staðarfellskirkju.  Kveikt verður á páskakertinu í upphafi stundarinnar í myrkraði kirkjunni og smátt og smátt fyllist kirkjan af ljósi.  Í athöfninni undirbúum við okkur fyrir stærstu hátíð kristinna manna.

  • Á páskadag, sunnudaginn 4. apríl, verður hátíðarguðsþjónusta kl. 11 í Hjarðarholtskirkju.  Boðið verður upp á heitt súkkulaði og með því í þjónustuhúsinu eftir athöfn.
  • Sama dag verður hátíðarguðsþjónusta kl. 14 í Snóksdalskirkju.
  • Á annan í páskum, mánudaginn 5. apríl, verður guðsþjónusta kl. 11 í Silfurtúni.
  • Sama dag verður hátíðarguðsþjónusta kl. 14 í Kvennabrekkukirkju.

Óskar Ingi Ingason, 30/3 2010

Dagskrá í kirkjum í dymbilviku og um páska

Á atburðarsíðu prestakallsins er kominn dagskrá í kirkjunum á næstu dögum, sem og dymbilviku og um páska

Óskar Ingi Ingason, 26/3 2010

Guðsþjónustur um bænadaga og páska í Stykkishólmsprestakalli.

Skírdagur:

Messa á St. Franciskusspítala kl. 14.00

Föstudagurinn langi:

Guðsþjónusta í Stykkishólmskirkju kl. 14.00.

(Píslarsagan lesin og passíusálmar sungnir)

Guðsþjónusta á Dvalarheimilinu kl. 16.00.

Páskadagur:

Hátíðarguðsþjónusta í Stykkishólmskirkju kl. 11.00.

Guðsþjónusta í Breiðabólstaðarkirkju kl. 14.00

2. í páskum:

Guðsþjónusta í Helgafellskirkju kl. 14.00

Óskar Ingi Ingason, 24/3 2010

Kjördæmisfundir í kjördæmum kirkjuþings

Kjörstjórn við kirkjuþingskjör 2010 boðar hér með til kjördæmisfunda í kjördæmum kirkjuþings, sbr. 5. gr. starfsreglna um kjör til kirkjuþings nr. 234/2006.

Kjördæmisfundum er ætlað að ganga frá tilnefningum á leikmönnum til kjörs til kirkjuþings og eru þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru á kjördæmisfundi.

4. kjördæmi, Borgarfjarðar,- Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi.

Fundartími: Fimmtudagur 11. mars kl. 20.
Fundarstaður: Safnaðarheimili Borgarnesskirkju, Borgarnesi.
Formaður sóknarnefndar Akranessóknar, Þjóðbjörn Hannesson setur fundinn og lætur kjósa fundarstjóra og ritara.
Tilnefna ber sex kjörgenga leikmenn.
Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason, 8/3 2010

Skátamessa í Grundarfirði

Síðastliðinn sunnudag (28. febrúar) var skátamessa í Grundarfirði. Skátarnir tóku virkan þátt í helgihaldinu, drekaskátar (8-9 ára) gengu inn með prestinum með logandi ljós og tveir fálkaskátar (10-12 ára) leiddu gönguna með íslenska fánan. Drekaskátarnir kveiktu kertin á altarinu og sungu Tendraðu lítið skátaljós eftir Hrefnu Tynes. Rekkaskátarnir (16-18 ára) höfðu undirbúið samtalspredikun með prestinum og var hún flutt í guðsþjónustunni. Sex fálkaskáta fluttu almennu kirkjubænina með prestinum og var beðið fyrir friði, börnum, öllu barnastarfi og íbúum Grundarfjarðar. Eftir guðsþjónustuna var skátakakó sem dróttskátar (13-15 ára) höfðu undirbúið í safnaðarheimilinu. Flott ungt fólk sem veldur öllum áskorunum og við megum sannarlega vera hreykin af.

Aðalsteinn Þorvaldsson, 5/3 2010

Kirkjustarf og helgihald í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli

Kominn er dagskrá vegna kirkjustarfs og helgihalds vor og sumar 2010 í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli.   Lesa áfram …

Ragnheiður Karítas Pétursdóttir, 23/2 2010

Myndir af innsetningu

Séra Gunnar Eiríkur Hauksson, prófastur Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmis, setti séra Ragnheiði Karítas Pétursdóttur, sóknarprests hins ný stofnaða Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalls, inn í embætti í guðsþjónustu í Ólafsvíkurkirkju á sunnudaginn kl. 11.  Á myndasíðu prófastsdæmisins eru myndir frá athöfninni.

Þar eru einnig myndir af Stykkishólmskirkju og Breiðabólstaðarkirkju.

Gunnar Eiríkur Hauksson, 9/2 2010

Jesú bænin - bæn hjartans

Boðið verður upp á námskeið í hinni vinsælu og gefandi Jesú bæn í þjónustuhúsi Hjarðarholtskirkju miðvikudagskvöldið 24. febrúar kl. 20:30. Námskeiðið nefnist Jesú bænin, bæn hjartans. Allir velkomnir, skráning óþörf. Bænina má nota á öllum tímum og aðstæðum, í hefðbundni bænastund sem utan þeirra.

Lesa áfram …

Óskar Ingi Ingason, 8/2 2010

Aðrir vefir
Dalaprestakall
Setbergsprestakall

Forsíðumyndin:
Innandyranámskeið í Stykkishólmi 2007.

Aðrir vefir
Vefur Þjóðkirkjunnar
Fjölskylduþjónusta kirkjunnar
Leikmannaskólinn
Skálholt

Kirkjualmanak

Hjálparstarf

Barnatrú.is

Miðvikudagur

Viðtalstími sóknarprests Dalaprestakalls í Stjórnsýsluhúsinu kl. 11-12.
Bæna-og helgistundir eru á miðvikudögum kl. 12.30 í Setbergskirkju.

Dagskrá ...