Prófastsdæmið

Prófastur: séra Gunnar Eiríkur Hauksson
Lágholti 9
438-1632
Um prófastsdæmið
Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi nær yfir Snæfellsnes og Dali, eins og nafnið bendir til, en þó ekki Staðarhólssókn í Saurbæ og Skarðssókn á Skarðsströnd.
Í Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi eru fimm prestaköll og er hverju þeirra þjónað af einum sóknarpresti.
Séra Guðjón Skarphéðinsson þjónar Staðastaðaprestakalli.
Séra Ragnheiður Karítas Pétursdóttir þjónar Ólafsvíkur og Ingjaldshólsprestakalli.
Séra Aðalsteinn Þorvaldsson þjónar Setbergsprestakalli.
Séra Gunnar Eiríkur Hauksson þjónar Stykkishólmsprestakalli.
Séra Óskar Ingi Ingason þjónar Dalaprestakalli.
Ingjaldshólsprestakall var sameinað Ólafsvíkurprestakalli á árinu og heitir Ólafsvíkur og Ingjaldshólsprestakalli. Séra Ragnheiður Karitas er sópknarprestur þess prestakalls. Á næsta kirkjuþingi, 2010, mun tillaga um að sameina það prestakall Staðarstaðarprestakalli vera afgreidd.
Þar verður einnig afgreidd tillaga um að sameina prófastsdæmið Borgarfjarðarprófastsdæmi.
Í prófastsdæminu eru alls 22 sóknir og 27 kirkjur.
Prestar prófastsdæmisins eiga saman mánaðarlega samráðsfundi og ýmislegt samstarf.
Fulltrúar sókna og prestar mætast árlega á héraðsfundi, haldinn í apríl ár hvert. Á héraðsfundi eru lagðar fram skýrslur um starfsemi prófastsdæmisins auk fjárhagsáætlunar sjóðsins og reikningar safnaða, kirkjugarða og héraðssjóðs látnir liggja frammi. Þá er fjallað um ýmis málefni sem varða starf kirkjunnar í prófastsdæminu. Kosningar fara fram þegar það á við.