150 ára vígsluafmæli Vallakirkju í Svarfaðardal
Sunnudaginn 20. nóvember n.k verður hátíðarguðþjónusta í Vallakirkju kl 13:30 í tilefni þess að á jóladag n.k eru liðin 150 ár frá vígslu kirkjunnar á Völlum. Sóknarprestur sr. Magnús Gamalíel Gunnarsson þjónar fyrir altari og herra Jón Aðalsteinn Baldvinsson Hólabiskup predikar.

Í fréttatilkynningu frá sóknarnefndinni er einnig sagt frá kaupum á orgeli að þessu tilefni:
“Í tilefni þessara tímamóta hefur verið ráðist í kaup á nýju orgeli í kirkjuna sem er rafmagnsorgel af Ahlborn gerð með tveim spilaborðum og fótspili og verður orgelið vígt við guðþjónustuna. Orgelsjóður kirkjunnar var stofnaður af börnum og tengdabörnum Tryggva Jóhannssonar og Guðrúnar Soffíu Stefánsdóttur á Ytra-Hvarfi og hefur sjóðurinn eflst nokkuð í gegnum tíðina, þannig að um 60% af kaupverði orgelsins er nú til í sjóðnum. Ef velunnarar kirkjunnar vilja legga sjóðnum lið þá er bent á reikning 1177-18-660318 kennitala 6702697289.
Að athöfn lokinni er kirkjugestum boðið til kaffisamsætis í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju.
Sóknarnefnd”
Guðmundur Guðmundsson, 18/11 2011 kl. 14.14