Þjóðkirkjan við utanverðan Eyjafjörð

 

Fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð

“… snaran þátt af sjálfum mér” nefnist fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð sem haldinn verður í Siglufjarðarkirkju mánudaginn 21. nóvember kl. 20:00. Fyrirlesari er sr. Halldór Reynisson, verkefnisstjóri fræðslumála á Biskupsstofu. Öll mætum við sorg og harmi í lífi okkar. Í fyrirlestrinum verður fjallað um ferli sorgarinnar, gerð grein fyrir þeim tilfinningum sem upp geta komið og úrvinnslu þeirra. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Sóknarnefndir og sóknarprestar í Hríseyjar-, Dalvíkur-, Ólafsfjarðar- og Siglufjarðarprestaköllum standa fyrir erindinu.

Guðmundur Guðmundsson, 8/11 2011 kl. 12.48

     

    Þjóðkirkjan við utanverðan Eyjafjörð. · Kerfi RSS