Þjóðkirkjan við utanverðan Eyjafjörð

 

Síungir sunnudagar um næstu helgar

Verkefnið Síungir sunnudagar á vegum ÆSKEY er að komast í gang á nokkrum stöðum en markmið þess er að vera með fræðslu fyrir og um æskuna. Næstu tvo sunnudag þann 6. nóvember á Dalvík og 13. nóvember á Ólafsfirði verður dagskrá fyrir fermingarbörn og foreldra þeirra sem byggist að nokkru á Kompás, handbók um mannréttindafræðslu fyrir ungt fólk. Hér á eftir er dagskrá þessa sunnudaga og upplýsingar fyrir áhugasama. Verkefnið er styrkt af Æskulýðssjóði ríkisins.

Fræðsludagskrá fyrir fermingarbörn og foreldra:

Sunnudaginn 6. Nóvember á Dalvík, sunnudaginn 13. Nóvember á Ólafsfirði.

Dagskrá hefst á Dalvík kl. 17:00-21:00 en 17:30-21:30 á Ólafsfirði

  • Kynningarleikir og Kompásverkefni
  • Byrjum á þættinum „Hverjir eru ég“ og nokkra létta leiki
  • Næsti þáttur: Taktu skref áfram
  • Þriðji þáttur námskeiðsins ,,Baráttan um auð og völd“
  • Kvöldverður
  • Fræðsla fyrir foreldra og fermingarbörn
  • Helgistund í framhaldi eða þátttaka í guðsþjónustu.

Í inngangi um Kompás er þessi kynning sem gefur nokkuð góða hugmynd um verkefnið:

Okkur er það ánægja að kynna Kompás, handbókina um mannréttindafræðslu fyrir ungt fólk!

Við vonum að hún gefi þér hugmyndir, innblástur og hvatningu til að starfa að mannréttindafræðslu með ungu fólki. Bókin var samin innan ramma áaetlunar aeskulýðs- og íþróttadeildar Evrópuráðsins um mannréttindafræðslu fyrir ungt fólk, sem var hleypt af stokkunum árið 2000 í tilefni af 50 ára afmæli mannréttindasáttmála Evrópu. Með áætluninni er stefnt að því að mannréttindi verði veigamikill þáttur í aeskulýðsstarfi og mannréttindafraeðsla verði þar með liður í almennri menntun.

Mannréttindafræðsla – í merkingunni námsáætlanir og verkefni sem stuðla að því að allir menn njóti jafnrar virðingar – hefur ómetanlegt gildi hvað varðar mótun evrópskrar borgaravitundar meðal allra íbúa álfunnar. Mannréttindafræðsla er þróuð í tengslum við aðrar áætlanir æskulýðs- og íþróttadeildar Evrópuráðsins, svo sem fræðslu um mismunandi menningu, þátttöku í samfélaginu, eflingu minnihlutahópa og ungmenna með rætur í minnihlutahópum, og getur hvatt til aðgerða og stuðlað að virku samstarfi. Þeir sem fást við óformlega fræðslu í æskulýðsstarfi þurfa að geta litið á mannréttindi, þróun þeirra, útfærslu og brýn úrlausnarefni í ljósi þess að þau eru algild, óskoruð og óafsalanleg, og einnig til þess hvaða þýðingu þau hafa fyrir ungt fólk nú á tímum.

Æskulýðs- og íþróttadeildin hefur, einkum með samvinnu sinni við æskulýðsmiðstöðvar Evrópu og æskulýðssjóð Evrópu (European Youth Centres og European Youth Foundation) öðlast mikla viðurkenningu fyrir sérfræðiþekkingu í þróun námsaðferða og námsefnis sem hentar jafnt í hefðbundnu skólastarfi, óformlegri fræðslu og við ólíkar menningarlegar aðstæður. Starf hennar með kynningaraðilum, áhrif verkefna eins og æskulýðsherferðarinnar „all different – all equal“ og langtímaáætlun hennar um þjálfun; allt þetta hefur stutt að þróun verkefna sem fyrst og fremst beinast að grasrótinni en eru um leið sérevrópsk.

Nýlegir atburðir, bæeði í Evrópu og annars staðar í heiminum, eru ógn við frið og mannréttindi. Þeir sýna að brýn þörf er á skýrari og markvissari aðferð við mannréttindafræðslu.

Guðmundur Guðmundsson, 3/11 2011 kl. 12.58

     

    Þjóðkirkjan við utanverðan Eyjafjörð. · Kerfi RSS